Sól í Straumi

Þverpólitískur hópur áhugafólks um stækkunarmálið í Straumsvík


Sjáum saman til sólar

Hrönn Ingólfsdóttir 

NýlegarFærslur

Flokkar

EldraEfni

Tenglar

MetaGögn

Um okkur

14. October 2006

Sól í Straumi - skrifstofa S: 661 2495

Í vetur þurfa Hafnfirðingar að gera upp hug sinn um það hvort þeir vilji að leyfð verði stækkun álverksmiðjunar í Straumsvík eins og Alcan, eigandi fyrirtækisins, vinnur að.

Búið er að selja Alcan lóð undir stækkaða starfsemi og kynna deiliskipulag sem miðað er við stækkun. Önnur yfirvöld eru búin að gefa grænt ljós m.a. á umhverfismat og starfsleyfi. Alcan er nú að semja við birgja um aðföng fyrir stækkaða verksmiðju.

Þegar kosið verður um málið þurfum við öll að vera búin að skoða þetta mál ofan í kjölinn og allir bæjarbúar búnir að mynda sér skoðun. Ef við veljum að leyfa nærri þrefalda stækkun álverksmiðjunar þá hefur sú ákvörðun áhrif um ókomna framtíð í bænum okkar.

Við þáttakendur í hópnum “Sól í Straumi” komum úr ólíkum áttum og höfum ólíkar stjórnmálaskoðanir. Við erum óflokksbundin eða starfandi í Sjálfstæðisflokki, Samfylkingu eða Vinstri grænum. Við erum launþegar, atvinnurekendur, opinberir starfsmenn eða námsmenn.

Það sem tengir okkur saman er sú afstaða okkar að ekki sé ráðlegt að leyfa Alcan að stækka verksmiðju sína í bænum okkar. Við munum svara spurningunni um stækkun neitandi þegar til kosninga kemur.

Þó að við höfum komist að sameiginlegri niðurstöðu byggir hún á ólíkum rökum fyrir hvert og eitt okkar. Við höfum farið yfir rökin með og á móti og komist að niðurstöðu hver og einn á eigin forsendum. Við hvetjum alla Hafnfirðinga til þess að gera slíkt hið sama.

Það er ekki eftir neinu að bíða, setjum stækkunarmálið á dagskrá og förum að ræða saman.
Skoðaðu málið og taktu afstöðu.

Sól í Straumi
Þverpólitískur hópur áhugafólks um stækkunarmálið í Straumsvík
Hafnarfirði 23. október 2006.

Valgerður Halldórsdóttir  íbúi í vesturbæ
Svala Heiðberg               íbúi á Völlum
Pétur Óskarsson            íbúi í Áslandi
Margrét Pétursdóttir       íbúi í suðurbæ
Guðni Kjartansson         íbúi í norðurbæ
Kristín Einarsdóttir         íbúi í suðurbæ
Hrönn Håkansson          íbúi í Áslandi
Aðalsteinn Eyþórsson    íbúi í vesturbæ
Gestur Svavarsson        íbúi í norðurbæ
Haukur Agnarsson         íbúi í suðurbæ
Kolbrún Benediktsdóttir íbúi í suðurbæ
       

postur@solistraumi.org 

Símanúmer: 892 8550 (Þröstur), 692 9101 (Valgerður), 897 5488 (Pétur)

Símar í Kynningarmiðstöð: Aðalsími: 661 2495,   661 2496,   661 2497          

     

Skrifað undir Óflokkað |

4 Responses

  1. xx Says:

    Þekkið þið fyrirlestur á Orkuþingi um “þarfir stóriðju”. Þar kemur fram að ef álver er stækkað þá er oftast notuð sama tækni og upprunaleg. Þetta þíðir að byggja á nýtt álver í straumsvík ekki stækka. Einnig kemur fram þar um umhverfismál að lykilatriði séu 1 framleiðslutækni 2 vinnugæði starfsmanna 3 hráefni. Eigilega ekkert er fjallað um þessa þætti í umhverfismatsskýrslu. Hún er í raun og veru ekki í lagi. sennilega skrifuð af verkfræðing sem hefur ekki þekkingu á sviðinu.

  2. Bjarni Says:

    Er búið að opna skrifstofu hjá ykkur? Hvað á að framkvæma hjá ykkur fyrir kosningar? Útifundur?
    kv. Bjarni

  3. Guðrún Tryggvadóttir Says:

    Sæl sólarsinnar. Hlakka til morgundagsins. Það væri gaman ef að tengil á Grasaguddu væri að finn á þessum annars yndislega vel heppnaða vef;)
    kveðja, Gunna Tryggva
    http://www.grasagudda.is

  4. Sig.Gylfi Sigfusson Says:

    Sæl.Hef miklar ahyggjur ef af stækkun Alversins verður.Astæðurnar eru margar eins og margir hafa verið að tja sig um.Mer finnst loftmengunin skipta hvað mestu mali,eins sjonmengun þ.e.a.s haspennulinur og haspennustaurar ut um allt svo og Alverið sjalft,i framtiðinni RYSASKRYMSLI i miðjum Hafnarfjarðarbæ.Hvað um fasteignir a Völlum,halda þær ser i verði,verður hægt að selja þær ef Alverið stækkar þrefalt,vill folk flytja til Hafnarfjarðar.Ætli fyrirtækið Alcan hafi nokkrar ahyggjur af þvi.Mer fynnst Petur og felagar hja Sol i Straumi,hafa verið heiðarlegir og synt drengskap i sinum malflutningi,en þvi miður er ekki hægt að segja það sama um Alcan folk sbr.mengunarmælingar a Holtinu,”gjafapakkningar” sem þeir senda Hafnfirðingum o.fl.
    Nei,Hafnfirðingar sja i gegnum svona lagað og lata ekki sla sig ut af laginu.Hugsum til framtiðar,hvað vilja börnin okkar gera eftir 15 til 20 ar.
    N.k.laugard.kjosum við Hafnfirðingar um stækkun Alversins.”Segjum NEI”
    Kveðja. Sig.Gylfi Sigfusson

Skrifaðu Athugasemd

Vinsamlegast athugið:Ef athugasemdin þín birtist ekki strax er það vegna þess að eigandi síðunnar er ekki búinn að samþykkja hana.

copyright © 2oo6 by Sól í Straumi | Powered by Wordpress

Ported by ThemePorter - template by Design4 | Sponsored by 47channel