Sól í Straumi - fyrsti fundur
25. október 2006Fyrsti fundur þverpólitísks áhugahóps um stækkunarmálið í Straumsvík “Sól í Straumi” var haldinn á Ásvöllum á mánudagskvöld Óhætt er að segja að mæting hafi verið framar öllum vonum en um 150 Hafnfirðingar mættu á fundinn. Fundarstjóri var Ásgrímur Sverrisson kvikmyndagerðarmaður.
Á fundinum var lesin upp yfirlýsing frá hópnum og meðlimir hans kynntir fyrir fundargestum. Kom þar fram að hópurinn er fjölbreyttur og meðlimir hans hafa ólikar pólitískar skoðanir og sýn á stækkunarmálið. Það sem hinsvegar sameinar þetta fólk er sú afstaða að ekki sé ráðlegt að leyfa Alcan stækkun á álverksmiðjunni í Straumsvík.
Pétur Óskarsson fór síðan vítt og breytt yfir stækkunaráformin og kynnti ný kort af núverandi og væntanlegu þynningarsvæði samkvæmt starfsleyfi Alcan til ársins 2020 sem hægt er að skoða hér á síðunni. Pétur nefndi svo til sögunar ýmis rök gegn stækkun og velti upp spurningum sem hann telur vert að skoða. Í lok máls síns nefndi hann líka rök sem mæla með stækkun álversins og undirstrikaði að hópurinn Sól í Straumi vldi skoða málið frá öllum hliðum. (sjá glærusýningu hér til vinstri á síðunni)
Á eftir Pétri tók Valgerður Halldórsdóttir til máls og fór yfir ýmis rök gegn stækkun sem hópurinn hefur viðað að sér frá bæjarbúum undanfarið. Hún lagði fram lista með rökum og bað gesti um að bæta við rökum bæði með og á móti á þartilgerð eyðublöð sem gengu um salinn. Valgerður undirstrikaði að öll rök í þessu máli eru gild og að hópurinn legði áherslu á málefnalega umræðu um málið.
Margrét Pétursdóttir las síðan upp góða kveðju til fundarins frá óformlegum, þverpólitiskum hópi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi sem hefur áhyggjur af virkjunaráformum í Þjórsárverum og víðar á Suðurlandi í tengslum við álbræðslur á höfuðborgarsvæðinu. Þetta minnti fundarmenn á að stækkunarmálið í Straumsvík er ekki einkamál Hafnfirðinga heldur varðar þjóðina alla.
Síðari hluti fundarins fór í umræður og fyrirspurnir þar sem Valgerður, Pétur og Gestur Svavarsson sátu í pallborði. Umræðurnar voru hressilegar og mátti heyra fjölbreytilegar raddir bæði með og á móti stækkunaráformunum.
Þetta var aðeins byrjunin á langhlaupi sem gengur út á það að ræða stækkunarmálið hér í bænum frá öllum hliðum. Það kom berlega í ljós að þörfin til að ræða þetta mál í bænum er mikil og við fögnum því mjög að Hafnfirðingar tóku þessu tilboð okkar um samræður um þetta mál eins vel og raun bar vitni.
TÖLUM SAMAN - TÖKUM AFSTÖÐU
Endilega sendið okkur ykkar rök á postur@solistraumi.org og takið þátt í umræðu hér á síðunni. Næsti fundur verður á Ásvöllum 1. nóvember 2006.
Skrifað undir Tilkynningar |