Hafnarfjörður og framtíðin
17. febrúar 2007Á dögunum lauk starfshópur Hafnarfjarðarbæjar og Alcan við tillögur að deiliskipulagi sem lagðar verða til grundvallar í kosningum um stækkun álversins í Straumsvík 31. mars n.k. Á blaðamannafundi sem bæjarstjóri hélt í kjölfarið og í fjölmiðlum þann dag sem vitnað var í, sendi bæjarstjóri Hafnarfjarðar út villandi skilaboð sem ekki hafa enn verið leiðrétt. Fullyrðingin um að nær engin mengunaraukning verði við stækkun álbræðslunnar í Straumsvík er einfaldlega ekki rétt og það er ábyrgðarlaust að halda slíku fram. Ef við Hafnfirðingar veljum stærstu álbræðslu í Evrópu í garðinn okkar næstu 50-60 árin þá mun mengunin aukast töluvert miðað við þá mengun sem við búum við í dag. Rétt er að öll mengunargildi nema brennisteinsmengun mun tvö- til þrefaldast við stækkun. Línumannvirkin sem flokkast líka sem mengun (sjónmengun) verða þau umfangsmestu sem við höfum séð á Íslandi, enda mun álbræðslan ein og sér þurfa meira rafmagn en Reykjavík öll með öllum sínum íbúðum, fyrirtækjum og stofnunum.
Samtök atvinnulífsins héldu fund um stækkunina og var öllu tjaldað til um hversu arðbær og frábær stækkunin væri í alla staði fyrir Hafnfirðinga og íslenskt atvinnulíf. Þennan sama dag og fundurinn var haldinn birtu Sameinuðu þjóðirnar (UN) skýrslu sína um loftslagsbreytingar á jörðinni okkar og kemur þar skýrt fram að losun gróðurhúsalofttegunda hefur ótvírætt áhrif á veðurfarsbreytingar í heiminum. Bæjarstjórinn gerði í fjölmiðlum lítið úr þessu alvarlega alheimsvandamáli og veifaði gömlum og gauðslitnum rökum álbræðslusinna um að á Íslandi verði að framleiða ál af því að hér sé orkan svo hrein. Þessi rök er margbúið að hrekja enda hrein vatnsorka í boði í tugum annara landa í heiminum m.a. í Brasilíu og Venesúela.
Sól í Straumi, þverpólitísk samtök gegn stækkun álbræðslunnar hafa verið starfandi síðan í október 2006. Hópurinn hefur unnið að því að upplýsa íbúa Hafnarfjarðar um hina hlið málsins, en það gerir það enginn annar í Hafnarfirði. Sól í Straumi heldur út öflugri heimasíðu www.solistraumi.org þar sem við söfnum efni sem er fræðandi og upplýsandi fyrir fólk sem vill kynna sér málið.
Framundan er mjög ójöfn kosningabarátta: lítill hópur fólks með bjarta framtíðarsýn og hugsjón að leiðarljósi í sjálfboðavinnu annars vegar og hins vegar Alcan, kanadískt fyrirtæki og gaf Straumsvík af sér um 4 milljarða í hagnað á síðasta ári og vill hefta eðlilega framtíðarþróun Hafnarfjarðar um ókomna framtíð.
Næst álverksmiðjunni í Straumsvík er að byggjast upp líflegt hverfi í hrauninu, nálægðin við hraunið, hafið og náttúruperlur er ómetanleg. Mér finnst harla ólíklegt að hérna geti þrifist blómleg íbúabyggð í nokkra metra fjarlægð frá stærstu álbræðslu Evrópu ef af stækkun verður, þar verður t.d. losun á brennisteinsdíoxíð 9,3 tonn á sólarhring! Ég vona að allir Hafnfirðingar kynni sér málið og láti ekki slá ryki í augun á sér vegna loforða um peninga. Það er ekki allt falt í þessum heimi. Eðlileg framtíðarþróun í Hafnarfirði sem og börnin okkar sem erfa landið eiga betra skilið en að við látum stjórnast af peningagræðgi.
Svala Heiðberg
Höfundur er meðlimur í Sól í Straumi
Skrifað undir Rök Hafnfirðinga gegn stækkun |
febrúar 18th, 2007 at 03:12:27
Ég var að frétta að Lúlli bæjarstjóri? hefði missti út úr sér á fundi við foreldra á Völlunum að ef bærinn fengi ekki stækkun þá hefði bærinn minna svigrúm til að semja kennara sambandi við kennaradeiluna og kennarar fengu minni laun. (Var óbeint að segja;; Hver passar börnin þín þegar við höfum ekki efni á að borga kennurum laun, hver passa þau)?Það verður verkfall. Er það loforð eða hótun/ kúgun til að kjósa með Risa álveri kasta ábyrgð á þá foreldra sem eru óvissir.Því bærinn fengi minni tekjur. Sem er deilanlegt er hann ekki að reyna að hafa óbein áhrif á kostningar? Mér finnst einum og augljóst að hann vill stærra álver?????
Ég er ekki að fatta Sjálfstæðisflokkinn núna? Þeir hefðu getað sparkað í liggjandi Lúlla co. sem eru ”í vandræðum” (orðalag lagað af umsjónarmanni umræðuborðs) í sambandi við álversmálið. Ef Sjáflstæðisflokkurinn hefði verið klókur þá hefðu þeir verið sammála 52% Hafnfirðinga sem vilja EKKI stærra álver (samk. síðustu könnun) Nei nei þei vilja vera í minnahluta í bænum. VIÐ VILJUM STÆRRA ÁLVER. Og orðið sterkur fyrir.
Eini flokkurinn sem græðir á þessu er VG í næstum kostningum og á örugglega eftir að ná manni inn bænum.
febrúar 18th, 2007 at 16:44:09
Það er athyglisvert að fylgjast með umræðunni hér hjá ykkur í Sól í Straumi, þið leggið áherslu á að þið séuð þverpólitísk samtök, það segir mér ekkert, málið er að Sól í Straumi eru samtök fólks sem eru á móti stækkun ekki bara það heldur tali með því að fyrirtækið hætti alfarið rekstri og að það gætir hipjað sig til Brasilíu eða Argentínu og það sagt í neikvæum tón gagnvart þessum þjóðum. Nú er Lúðvík bæjarstjóri sem hefur haldið á máefnum okkar Hafnfirðingar af einurð og það sem meir er hann hefur náð þverpólitískri samstöðu um lausn á okkra kröfum og til viðbótar er hann að gera kröfur á ríkisstjórnina að skattar skili sér betur til okkar samfélags og einnig að gera kröfur um að raflínur verði lagðar í jörð.
Þið hafið gagnrýnt marga liði en þegar verið er að landa þeim hverjum eftir öðrum þá skiptir það engu máli. Því þið eru ekk að leita að annari lausn en að stækkun verði hafnað. Áfram haldið þið að kjökra undan því að þið séuð minnimáttar, ég hef ekki farið svo á fund að fulltrúi ykkar hafi ekki verið og í blöðum er ykkar rödd háværi en þeirra sem eru fylgjandi. Eg spyr af hverju ættu VG að græða á málinu þeir mæltu með virkjun á neðsta svæði Þjórsár, þeir eru með álveri á Húsavík Kjördæmi formannsins!!!!! þeir voru sammála deilsikipulaginu en hafa nú í aumingjaskap verið að hlaupa frá sínum hlut, það er nú allt þólitíska hugrekkið? Ég vona að Hafnfirðingar sjái í gegnum neikvæðan málfutning margra sem eru á móti stækkun og þróun álversins og meti af raunsæi kosti og galla stækkunar fyrir Hafnfirskt samfélag og taki ákvörðun í samræmi við sitt mat.
Kveðja
Gylfi Ingvarssn
febrúar 18th, 2007 at 19:47:01
Það væri líka óskandi að Hafnarfjarðarbær og Alcan kæmu fram af heilindum og bæru á borð réttar og heilstæðar upplýsingar.
Í öllum málflutningi reyna bæði Alcan og Lúðvík að láta líta svo út sem mengun aukist ekki við stækkun (hversu fáranlegt sem það nú annars hljómar).
Ég hef haft samband við bæði Alcan og Hafnarfjarðarbæ og beðið um réttar upplýsingar um mengun frá stækkuð álveri samanborið við 2005 útblástur, en hvorugur vill svara.
Bærinn heldur úti heimasíðu um stækkunina og mér finnst afar skrýtið að ekki sé hægt að birta þar nákævmar upplýsingar um þetta efni. Í staðinn eru birt óljós loforð og línurit, sem og ákvæði um minna þynningarsvæði. En það virðist ekki mega tala um staðreyndirnar, þ.e. að mengun í tonnum á ári tvöfaldast eða meira fyrir flest mengandi efni.
febrúar 18th, 2007 at 20:33:25
Sæll Gylfi,
og takk fyrir innleggið. Já það er rétt hjá þér að við erum þverpólitískur hópur. Hluti okkar eru félagar í pólitískum flokkum og en aðrir eru óflokksbundnir. Þannig að innan Sólar í Straumi er fólk með ólíkar skoðanir en þá sameiginlegu sýn að Hafnarfjörður eigi áfram að vera blómlegur og vaxandi bær með fjölbreyttu atvinnulífi, öflugu menningar- og íþróttastarfi ásamt því að vera aðlaðandi valkostur fyrir stækkandi hóp ferðamanna.
Það sem sameinar okkur er að við teljum að ofangreint fari ekki saman við að LANGSTÆRSTA álbræðsla Evrópu verði staðsett innan bæjarmarka Hafnarfjarðar (Sunndal í Noregi verður 350þ. tonn á þessu ári og þar með stærst í bili).
Lúðvík bæjarstjóri er í vandasamri stöðu og er í ýmsu að halda vel á málum. En hann hefur einnig lýst því yfir að hann vilji að þetta deiliskipulag, og þar með að stækkunin, verði samþykkt eins og það hefur verið lagt fram.
Gylfi, þó ég hafi nefnt það hér að ofan að við séum sjálfboðaliðasamtök en Alcan í Straumsvík fyrirtæki með 4 milljarða árshagnað er enginn kjökra undan neinu heldur aðeins verið að benda á aðstöðumun í aðgangi að fjármagni.
Hafnarfjarðarbær er ekki á vonarvöl og umræðan snýst um þessa fyrirhuguðu risastækkun og okkar framtíðarsýn er sú að bænum muni vegna betur án hennar.
En hvers vegna lýsir æðsti yfirmaður þinn, Dick Evans forstjóri(CEO) Alcan Inc., því yfir að verið sé að stækka í Straumsvík án þess að minnast einu orði á að bæjarbúar séu í aðstöðu að hafna stækkuninni? (Reuters 16. des. 2006) Býr þar eitthvað að baki sem við Hafnfirðingar vitum ekkert um eða er þetta til marks um virðingarleysi þessa æðsta yfirmanns Alcan samsteypunnar gagnvart skoðunum kosningabærra Hafnfirðinga?
Með kveðju,
Svala Heiðberg
febrúar 18th, 2007 at 20:34:29
Ef Hafnfirðingar segja já í atkvæðagreiðslunni um stækkun í Straumsvík. Þá segja þeir já við umhverfisvænni og grænni framkvæmd.
Það vita starfsmenn álversins sem flytjast óhræddir með fjölskyldur sínar á Vellina í nágrenni álversins.
Línulagnir í nágrenni Vallanna fjarlægjast byggðina við stækkun og sjónmengun minnkar.
Það er ekki um það deilt að losun gróðurhúsalofttegunda hafi áhrif á veðurfarsbreytingar.
Álver í Brasilíu eða Venesúela breyta engu þar um. Þau draga ekki björg í bú í Hafnarfirði eins og álverið í Straumsvík gerir.
Samtök atvinnulífsins hafa bent á að ef stækkað verður í Straumsvík munu árlegar tekjur beinar og óbeinar fyrir Hafnarfjörð nema a.m.k. 1.400.000.000.- kr. á ári (800.000.000.- + 600.000.000.-). Eitt þúsund og fjögurhundruð milljónir á ári.
Ekki verður séð að Sól í Straumi þurfi að kvarta þegar horft er til fréttaflutnings og aðgengis andstæðinga stækkunar að fjölmiðlum.
Kveðja Tryggvi L. Skjaldarson
Starfsmaður Alcan
febrúar 18th, 2007 at 21:02:45
Andstæðingar álvers hafa að mörgu leyti fengið ágætis fjölmiðlunaumfjöllun. Það breytir samt ekki því að þegar bæjaryfirvöld kynntu deiliskipulagið sem kjósa á um og á fundum Samtaka atvinnulífsins mm. er því haldið fram að mengun verði sambærileg fyrir og eftir stækkun. Hins vegar fást hreinar tölulegar STAÐREYNDIR ekki birtar (mengun í tonnum á ári).
Það er kannski skiljanlegt að Alcan sækist ekki eftir því að birta þessar upplýsingar, en mér finnst merkilegt að Hafnarfjarðarbær, sem heldur úti heimasíðu um stækkun sjái ekki sóma sinn í að birta þessar staðreyndir.
Varðandi háspennumannvirki á Völlunum sem Tryggi ræðir hér að ofan þá NEITAR Landsnet að flytja umdeilda spennistöð sem er nokkra tugi metra frá íbúðarbyggð á Völlunum. Sjá texta á blaðsíðu 19 í drögum að matsáætlun:
http://www.lh.is/umhverfismat/umhverfi.php
“Í athugasemdum við drög að tillögu að matsáætlun óskaði Hafnarfjarðarbær eftir því að
fjallað verði um færslu tengivirkisins við Hamranes inn á iðnaðarsvæði, í samræmi við
aðalskipulag Hafnafjarðar 2005-2025.
Tengivirkið við Hamranes var tekið í notkun 1989 en hefur verið stækkað með tveimur
viðbótaráföngum, síðast árið 1997 með nýjum þéttavirkjum til spennustýringar, og fjölgun
132 kV rofareita. Hlutverk þess er orkudreifing til Alcan, og almennra veitna á
höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi og er hún því mikilvæg í flutningskerfinu.
Landsnet telur ekki raunhæft að leggja til færslu tengivirkisins við Hamranes í Hafnarfirði.
Það er einkum tvennt sem veldur því. Í fyrsta lagi er kostnaður við færslu stöðvarinnar
talinn vera u.þ.b. 2 milljarðar króna og í ljósi þess að um nýlegt mannvirki er að ræða er
ekki verjandi að ráðast í slíka fjárfestingu. Í öðru lagi er mikilvægt vegna
afhendingaröryggis að álverið sé fætt frá tveimur tengivirkjum eftir stækkun Alcan, þ.e. frá
Hamranesi og frá nýju 245/420 kv tengivirki..”
Í sömu skýrslu er miklu púðri eytt í að tala um galla þess að leggja raflínur í jörð, en lítið fer fyrir umræðu um kostina. Svo það er alls ekki víst að þær línur og ný spennistöð sem fylgir stækkun verði sem jarðstrengir að hluta til.
Ég er sjálfur verkfræðingur og þekki aðeins vinnubrögð virkjunaraðila af eigin raun. Mér finnst framkoma Landsvirkjunar og Landsnets í málinu bera vott um að hér eru á ferðinni aðilar sem eru vanir að fá allt sem þeir vilja. Umrædd skýrsla og (bæði frumdrög frá í sept og nýja útgáfan) bera það með sér að þessir aðilar eru vanir að geta tekið kort, teiknað inná það línur og svo pantað jarðýtuna. Þeim virðist það erfitt að vinna í umhverfi þar sem taka þarf tillit til þátta sem erfitt er að mæla í krónum og aurum (umhvefismál, vellíðan íbúa osfrv).
Ég skora á þá sem áhuga hafa á þessu máli að taka sér göngutúr gegnum nýbyggingarsvæðið þar sem byrjað er að steypa upp raðhús nokkra tugi metra frá spennistöðinni og væntanlegum háspennulínum vegna stækkunar. Það er ekki skemmtileg upplifun. Ég hef það eftir fólki sem fékk lóðir á þessu svæði að bærinn hafi lofað því að spennistöðin yrði flutt, en þess í stað stefnir allt í að hún verði áfram og að henni komi bara fleiri línur eftir stækun.
febrúar 18th, 2007 at 21:16:13
Gaman að heyra þetta með kennaralaunin og álverið! Nú skal múta kennurunum. Lúðvík ætti nú að vera ánægður með þær auknu tekjur sem bærinn fær af þeirri gífurlegu hækkun fasteignagjalda (hærra fasteignamat)sem renna til bæjarins þessa daga. Og talandi um kennara, segjum að álverið verði stækkað og flytja þurfi inn erlenda verkamenn sem margir hverjir koma með fjölskyldur með sér. Það þarf að skóla þau börn og það kostar peninga!! Þau þurfa líka heilsugæslu og eiga líka rétt á niðurgreiðlsu fyrir íþróttir. Hér er kostnaður sem fer í mínus dálkinn á móti tekjunum til viðbótar við lækkandi fasteignaskatt (lækkandi fasteignamat vegna lækkandi húsnæðisverðs).
febrúar 18th, 2007 at 21:30:23
Það eru meira en dálítið einkennilegar frásagnir starfsmanna Alcan í Straumsvík núna þessa dagana.
Ég var í afmæli í gær hér í Hafnarfirði. Þar á meðal gesta voru nokkrir starfsmenn Alcan.
Þessi stækkunarmál bar eðlilega á góma. Starfsmennirnir sögðu lífið þarna í Straumsvíkinni orðið vægast sagt þungbært. Skoðanakúgun af hálfu yfirmanna varðandi stækkunarmálin yfirþyrmandi og væri orðin hreint og klárt einelti af vestu gerð. Enginn þyrði að tjá sig á annan hátt en væri fyrirtækinu þóknanlegt.
Búið væri að stofna kosningateymi úr hópi yfirmanna og millistjórnenda sem hefði það eitt starf með höndum að ná utanum starfsmenn og þvinga fram vilja sinn um “rétta kosningu” 31 mars í þágu Alcan. Starfsfólk sé tekið í smá hópum og messaður yfir þeim boðskapurinn.
Þeir hvattir mjög til að skrá niður nöfn ættinga ,vina og nágranna á sérstök eyðublöð.
Síðan yrði opnuð símstöð innan Alcan og þá myndu starfsmenn koma með eyðublöð sín út fyllt og hefja upphringingar til áráðurs fyrir stækkun Alcan.
Einnig væri í gangi myndataka allra starfsmanna og þeir beðnir að undirrita yfirlýsingu um að Alcan væri heimilt að nota myndirnar í væntanlegum útgáfuáróðri.
Einnig voru starfsmenn hvattir til að ganga í hús nágranna og milli íbúða í fjölbýli og boða fagnaðarerindið “Stækkum Alcan”
Nú hafa tveir starfsmenn Alcan verið að tjá sig á síðunni hér að framan.
Væntanlega myndu þeir vilja vera svo vænir að segja okkur eitthvað frá þessu.
Því miður get ég ekki sett eigið nafn undir þennan pistill vegna þeirra starfsmanna sem ég hitti í þessari annars ágætu afmælisveislu. Aðaltrúnaðarmaðurinn skilur það ábyggilega mjög vel eftir þá reynslu sem hann hefur varðandi uppsagnir starfsmanna gegnum tíðina.
febrúar 19th, 2007 at 00:04:09
Góðan daginn,
ég er nú í hálfgerðu sjokki eftir síðasta ræðumann. Getur þetta verið? Getur verið að ástandið sé svona og að trúnaðamenn láti þetta yfir sína skjólstæðinga ganga? Ég skora á Gylfa trúnaðarmann að skýra lesendum frá staðreyndum málsins.
Mér er bæði ljúft og skylt að ítreka einu sinni enn að Sól í Straumi er hópur fólks sem er eingöngu á móti STÆKKUN álbræðslunnar í Straumsvík. Allar fullyrðingar um að við séum á móti fyrirtækinu eða viljum það í burtu hér og nú eiga sér enga stoð í raunveruleikanum.
Það voru fulltrúar Alcan sem fóru að tala um að þeir myndu fara fljótlega fengju þeir ekki stækkun. Hugmyndin um brottför kom úr Straumsvík og hvergi annarstaðar frá.
Með bestu kveðju,
Pétur Óskarsson
febrúar 19th, 2007 at 00:44:30
pétur minn, þú kallar álverið alltaf bræðslu, það eitt kallar á neikvæðni þína gagnvart álverinu, svo þú villt losna við hana, og svo þið vitið það þá erum við starfsfólkið ekkert þvingað til að mæla með stækkun, en erum flest hlynnt stækkun vegna þess að við vitum hversu gott er að vinna þar
febrúar 19th, 2007 at 00:56:17
Blessaður Haukur,
álbræðsla er gott og fallegt orð, þýðing á enska orðinu aluminium smelter og var kynnt sem grundvallarhugtak um starfsemina í Straumsvík árið 1966. Á árunum 1966 til 1995 var þetta orð notað athugasemdalaust í öllum fjölmiðlum landsins um starfsemina í Straumsvík. Ég nota stundum orðið “álver” en mér finnst það vera hálfgert orðskrípi miðað við orðið álbræðsla.
Ég á bæði vini og vandamenn sem vinna í Straumsvík. Ég er á móti stækkun en vil hafa fyrirtækið áfram í bænum, helst þangað til að raforkusamningarnir renna út árið 2024.
Með bestu kveðju,
Pétur Óskarsson
febrúar 19th, 2007 at 06:26:27
Sælir Straumar menn.
Ég vil byrja á því að lýsa yfir hneykslun mína með þessa síðu ykkar. Fjölda manna hafa komið að máli við mig og vilja koma með athugasemdir á þráð ykkar undir dulnefni en ef eitthvað er játkvætt álverinu í Straumsvík þá er það umsvifalaust ritskoðað og þurrkað út. En eitthvað er öðruvísi við þann sem skrifar undir “ Íbúi Hafnarfjarðar “
Auðvitað ætlum við álversmenn ekki að láta ykkur afturhaldsinna einorða umræðuna? Við erum rétt að byrja og ætlum að sækja fram og láta í okkur heyra. Nú er um rúmlega ár síðan ég tjáði mig fyrst um stækkun Straumsvíkur. Lengi vel var ég einn en í okkar hópi en það er alltaf að fjölga þar sem fólk veit að það er tvennt ólíkt að skrumstæla sannleikann eða skrifa út frá sínu hjarta. Ég hef alltaf talað út frá mínu hjarta og styð þetta kosningateymi sem mun örugglega létta mikilli vinnu af okkur sem vinnum við það að skrifa um það sem er rétt og satt.
Að segja að þessi hótun um lokun komi frá yfirmönnum okkar er fjarstæður sannleiki. Þessi hótun ef kalla skal hótun kom fyrst frá mér sjá gestasíðu Vallarbúa en auðvitað skynjum við veruleikann. Forsætisráðherrann á sínum tíma skynjaði veruleikann nokkrum dögum síðan og þá var allt vitlaust.
Mér finnst ömurlegt að til er fólk sem vinnur hjá okkar ágæta fyrirtæki miðað við grein íbúa Hafnarfjarðar eru einhverjir starfsmenn tilbúnir að gera allt til að tala niður til okkar sem störfum á sama stað. Miðað við skrif “íbúa Hafnarfjarðar” þá væri ég löngu hættur hjá fyrirtækinu ef þetta væri svona ömurlegt eins og hann þykist skrifa um.
Að sjálfsögðu ætlum við að berjast og við munum berjast fyrir framtíð Hafnarfjarðar. Það er alveg á hreinu að ég mun aldrei láta Sigurð Pétur og Pétur sem eru að sinna sínum pólitísku þörfum hrekja mig burt af mínum vinnustað baráttulaust. Kannski sigra þeir? En þá þegar allt er þrennt þá byrjar maður aftur nýtt líf.
Að lokum þá tala ég eins og sannur íþróttamaður? Ef þú hefur reynt allt til að sigra og segja sannleikann þá er engin skömm að tapa. Samt skal það viðurkennast að mér þætti ömurlegt að tapa fyrir ferðamanfrömuði sem kannski aldrei hefði difið hendi í kalt vatn en þá yrði bara að hafa það.
Sannleikurinn sigrar að lokum og viska Hafnfirðinga.
Kveðja Á. Örn Þórðarson.
febrúar 19th, 2007 at 09:00:51
Blessaður Alli,
frá upphafi hafa fjórar athugasemdir verið teknar út af umræðusvæðinu hjá Sól í Straumi. Í öllum tilfellum hefur verið um að ræða persónulegar svívirðingar gagnvart nafngreindum persónum sem settar hafa verið inn nafnlaust. Þannig málflutningur verður áfram fjarlægður af síðunni þó að einhver kunni að vera ósáttur við það.
Ég ítreka að við í Sól í Straumi erum ekki á móti Alcan í Straumsvík eða starfsmönnum fyrirtækisins. Það er líka fjarri öllum raunveruleika að halda því fram að Sól í Straumi vilji hrekja einhverja úr störfum sínum. Við viljum hinsvegar málefnalega umræðu um málið og til þess er þessi heimasíða hugsuð. Mjög margir bæjarbúar hafa komið að máli við okkur og þakkað okkur fyrir að taka stækkunarmálið upp tímanlega til gagnrýnnar umræðu.
Hótunin um brottför hefur ítrekað verið kynnt undir yfirskriftinni “upphafið að endinum” af talsmönnum Alcan m.a. á fundi hjá Sól í Straumi á haustmánuðum. Við í Sól í Straumi höfum kallað það hræðsluáróður sem kristallast í því að maður hittir starfsmenn Alcan sem telja sig í stækkunarmálinu vera að berjast fyrir brauðinu ofan í börnin sín.
Samkvæmt könnun Alcan er meirihluti Hafnfirðinga mjög sáttur við Alcan eins og það er en vill samt ekki stækkun. Ég get sagt það sama um mig. Alcan já takk, stækkun nei takk.
Það er stórkostlegur misskilingur hjá þér Alli að þú sért í keppni við einstaklinga innan Sólar í Straumi. Alcan vill leyfi til stækkunar hjá bæjarbúum og við í Sól í Straumi erum hluti af þeim bæjarbúum sem kjósa að svara stækkunaráformunum með “NEI TAKK”.
Bestu kveðjur,
Pétur Óskarsson
febrúar 19th, 2007 at 09:03:10
Góðan dag, ég sé það að það er farið að hitna í kolunum og margur kominn í kosningaham. Ég og aðrir fulltrúar starfsmanna höfum tjáð okkur um málið út frá okkar sjónarmiðum og okkar hagsmunum sem starfsmenn, og ekki síður sem Íslendingar og hagsmunum okkar samfélags, ég hef ekki orðið var við hótanir eða þvinganir hér, en vissulega er búið að skipa hér vinnuhóp. Það er alveg hugsanlegt að einhverjir reki harða kosninga áróður því miður virðist það henda suma og minni ég á pistil Sigurðar Péturs “Við hvað eru Alcan menn hræddir” Það er við því að búast að einhverjir missi sig í hita leiksins. Ég legg áherslu á að menn haldi áfram að vera vinir þó menn hafi ólíkar skoðanir.
Vinar kveðja úr sólinni í álverinu í Straumsvík
Gylfi Ingvarsson
febrúar 19th, 2007 at 10:24:38
Á þessari blogsíðu er listi yfir álver í heiminum fyrir utan Kína. Álverin eru 119. Þar af eru 54 minni en álverið í Straumsvík. Þau eru á öllum aldri allt upp í 106 ára! Það virkar hæpið að álverið í Straumsvík verði tæknilega úrelt eða óhagstæð stærðareining á næstunni.
http://sas.blog.is/blog/sas/entry/126486/
febrúar 19th, 2007 at 11:00:29
Svona “vinnuhópar” geta nú verið fj. ýtnir!
febrúar 19th, 2007 at 18:45:41
Góðan dginn. Ég styð stækkun og vill að opin umræða fari fram með og á móti.Það er síðasta sort að vera með ummæli úr einhverju afmæli og fara með það eins og staðreyndir.Ég hef líka tekið eftir að fólk sem eru íbúar í Áslandi og eru að komast að því að fyrir vestan Ásland og Valla hverfi er skipulagt iðnaðarhverfi sem er búið að úthluta sem slíku og eru mörg fyrirtæki þar og enn fleiri á leiðinni.Að horfa yfir svæðið í dag og meta ljótleikan ,þá hefur svæðið sem tilheyrir Hafnarfirði vinningin.Álver er eins og hvert annað fyrirtæki sem skaffar vinnu og öll þurfum við vinnu.Við skulum vona að þeir sem fara með völdin í bænum sjái til þess að Alcan fari að ströngustu kröfum um mengun.Að segja að þarna vinni aðeins 250 hafnfirðingar er mikil rangfærsla og er ekki upplýstu fólki sæmandi.
kv HÞH
febrúar 19th, 2007 at 18:55:16
Mér finnst svolítið einkennilegt við þessa umræðu um mengun álversins, að enginn talar um hina hrikalegu sviryksmengun á höfuðborgarsvæðinu af völdum bílaumferðar vegna slits á dekkjum og malbiki.
Sama fólk og gagnrýnir álverið harðlega er sama fólk og er með 2-3 bíla í heimili og fer allra sinna ferða á einkabílnum með tilheyrandi mengun.
Álverið gerir þó hið minnsta tilraun til þess að draga úr sinni mengun með síum og með vothreinsun.
Afhverju mótmæla samtök eins og Sól í Straumi og Vinstri græn ekki svifryksmengun vegna bílaumferðar í stað þess að ráðast á álverið.
Vinstri græn hafa alltaf verið á móti álverinu, áður var Alþýðubandalagið á móti álverinu vegna þess að það var í eigu alþjóðafyrirtækisins.
Álverið í Straumsvík er að mínu mati fyrirmyndarfyrirtæki og hefur verið mikil lyftistöng fyrir Hafnarfjörð alla tíð.
febrúar 19th, 2007 at 19:27:20
Blessaðir Harrý og Hannes,
það eru aðrir starfsmen Alcan búnir að staðfesta ummælin úr afmælinu a.m.k. að hluta til þannig að það er ekki óeðlilegt að líta á það sem staðfest hefur verið sem staðreyndir.
Það er ekki mjög málefnalegt að benda á einhverja mengun sem er tilkomin vegna samgöngukerfisins eða annars nauðsynlegs kerfis og reyna með því að réttlæta mengun frá stærsta álveri í Evrópu í miðjan Hafnarfjörð. Við þurfum samgöngur í þessu landi, við þurfum að komast frá A til B en við þurfum ekki að bræða ál í miðbænum. Það er ekkert í Hafnarfirði sem kallar á þessa stækkun. Þegar verður kosið um breytingar á samgöngukerfinu skulum við ræða það mál ofan í kjölinn.
Það vinna 216 Hafnfrðingar hjá Alcan í Straumsvík. Upplýsingar um það er að finna á heimasíðu Alcan www.alcan.is
Það er rétt að halda því til haga að Alcan hefur ekki skuldbundið sig til að nota vothreinsibúnað eftir stækkun. Fyrirtækinu ber einungis að stefna að eftir mætti að ná brennisteinsmengun niður í 9,3 tonn á sólahring. Ef fyrirtækið hefði skuldbundið sig til þess að setja vothreinsibúnað á alla framleiðsluna við stækkun hefði brennisteinsmengunin farið niður í 1,5 tonn af brennisteinsmengun á sólahring. Því miður var Alcan ekki fáanlegt til þess.
Með bestu kveðju,
Pétur Óskarsson
febrúar 19th, 2007 at 22:55:31
Gylfi segir hér á undan um okkur Sólarmenn: ,,Þið hafið gagnrýnt marga liði en þegar verið er að landa þeim hverjum eftir öðrum þá skiptir það engu máli.” Hann nefnir þar til að raflínur fari í jörð og að Lúðvík bæjarstjóri sé að gera kröfur á stjórnvöld um breytingu á skattaumhveri Alcan.
Það er ekkert fast í hendi hvað þessi atriði varðar. Engar ákvarðanir verið teknar og því villandi hjá Gylfa að tala um einhverja áfangasigra í þessu máli.
Í mínum huga er stækkun álversins ekki verslunarvara. Fólk sem hefur raunverulegan áhuga á framtíð Hafnarfjarðar lætur ekki kaupa afstöðu sína með einhverjum krónum í bæjarkassann eða með óræðum yfirlýsingum um takmörkun mengunar. Í mínum huga verður framtíð Hafnarfjarðar ekki keypt með skiptimynt.
Gylfi segir ofangreindan pistil minn harðan kosningaáróður. Við getum auðvitað kallað málflutning hvors annars áróður. Í mínum huga eru þetta eðlileg skoðanaskipti sem studd eru með þeim rökum sem hvor um sig telur best við eiga.
Hagsmunir fólks eru mismunandi. Hvers vegna ættu hagsmunir Gylfa og félaga að vikta meira en hagmunir okkar Sólarfélaga? Niðurstaðan verður vonandi sú að hagsmunir fjöldans, heildarinnar, verða ofan á. Þannig virkar lýðræðið best.
Alli vinur minn er gamall keppnismaður. Ekkert nema gott um það að segja. Á inni hjá honum kaffiboð sem ég ætla að þiggja fyrr en síðar. Við munum sjálfsagt taka smá snerru en skilja svo sem vinir. Tek undir með Gylfa að menn verða að þola skoðanaágreining.
febrúar 20th, 2007 at 00:01:36
Er ekki kominn tími til að við gætum aðeins hófs og höfum hlutina svona eins og þeir eru í dag og hægjum aðeins á. Einhver sagði við mig að allt væri gott í hófi, ef maður borðar of mikið þá verður maður feitur og ef maður tekur of mikið frá náunganum í viðskiptum þá skapast ágreinungur. Einfalt ekki satt?
Við erum með álver sem er ekkert að fara á næstunni, það er búið að stækka það nokkrum sinnum sem er/var í góðu lagi á sínum tíma. Flestir sáttir þá.( eins og það á að vera)
Ég sé ekki betur en að þeir sem vilja stærra álver vilji valta yfir hina sem viljum hafa álverið eins og það er í dag. Þetta er bara frekja og yfirgangur.
Álvers eigendur eru sniðugir þeir láta ykkur vinna fyrir sig frítt með að tala með stækkun. Eina sem þeir hugsa um er að græða 10 milljarða í staðinn fyrir 4 milljarða eins og þeir gera í dag. Alþjóðleg fyrirtæki ganga bara út á það að hámarka hagnað fyrir eigendur. Ég spyr hvað fáið þið í staðinn fyrir að vera með þennan álversáróður eða yfirgang eins og ég kalla það. Er búið að lofa ykkur hærri launum, veit ekki betur en að þið eruð með vinnu á þessum ágæta stað. Hvað viljið þið meira.
Ekki erum við að fara að taka af ykkur vinnuna. Nei nei.
En þið viljið troða í okkur auka 280.000 tonnum af áli á ári, ég segi nei takk því þá verð ég bara feitari, er bara sáttur eins og ég er í dag með 180.000 tonn.
Getum við ekki bara sæst á að hafa álverið eins og það er og farið hinn gullna meðalveg, þá verða flestir sáttir í okkar fagra bæ.
febrúar 20th, 2007 at 09:01:16
Manneskjan er nú bara þannig (og fyrirtæki eru manneskjurnar sem það eiga og því stjórna)að hún fær ALDREI nóg nema að hún sé orðin vitrari en gengur og gerist. 4 milljarðar eru ekki nóg og 10 milljarðar munu ekki vera nóg, 20 milljarðar munu ekki vera nóg og ekki 100 milljarðar og ekki heldur 10000 milljarðar. Við getum því alveg stöðvað þetta núna í stað þess að fara að berjast við tæpl. 500 þús tonna álver eftir einhver ár sem vill meira og meira…Við skulum bara kenna þeim að það er ekki hægt að fá allt sem að hugurinn girnist…bara eins og við kennum börnunum okkar að það er ekki hægt að fá og eiga allt. Fyrir vikið verða þau vitrari. Við þurfum ekki að mæta allri þeirri eftirspurn sem er af áli. Fólk þarf ekki á öllu þessu áli að halda…nær væri að endurnýta það sem er kastað á haugana t.d. í USA. Kennum Alcan hófsemi og nægjusemi, fellum stækkunarmálið.