Sól í Straumi

Þverpólitískur hópur áhugafólks um stækkunarmálið í Straumsvík


Sjáum saman til sólar

María Kristín Gylfadóttir fyrsti varabæjarfulltrúi og fulltrúi í Menningar- og ferðamálanefnd

NýlegarFærslur

Flokkar

EldraEfni

Tenglar

MetaGögn

Hver er að hugsa um hag Hafnarfjarðar?

26. febrúar 2007

Sól í Straumi gerir alvarlegar athugasemdir við málflutning fulltrúa hóps fyrirtækja, sem eiga viðskipti við álverið í Straumsvík, í fjölmiðlum í gær undir nafninu “Hagur Hafnarfjarðar”. Þær fullyrðingar og röksemdafærslur sem þar voru tíundaðar eru því miður meira eða minna úr lausu lofti gripnar og eiga alls ekki heima í annars málefnalegri og upplýsandi umræðu um þetta mál í bænum.

Af hverju segir hópurinn “Hagur Hafnarfjarðar” ekki eins og satt er að hópurinn hefur áhuga á því að auka hjá sér veltuna og þar með ábata sinn af rekstri sínum? Það er eðlilegt og ekkert við það að athuga. Sú aðferð að nota hræðslu áróður og reyna að stilla Hafnfirðingum upp við vegg með fullyrðingum um að störf séu í hættu og allt fari á versta veg samþykki Hafnfirðingar ekki stækkun er þessum hópi til minnkunar og skorar Sól í Straumi á hópinn að stunda ábyrgari umræðu um þetta mikilvæga mál.

Á heimasíðu Alcan www.alcan.is segir orðrétt “,Engar áætlanir eru uppi um lokun álversins ef ekki kemur til stækkunar, enda gengur verksmiðjan vel og árangurinn er góður, bæði á tæknilegum mælikvörðum og í umhverfismálum.” Til frekari stuðnings þessum upplýsingum er rétta að benda á að 2/3 hlutar álvera Alcan í heiminum eru 200.000 tonn eða minni og hvergi er rætt um það sem ógnun við framtíð samsteypunnar..  (heimild:  Can Alcan claim to be the best?, Polaris Institute Researcher, Oktober 2005).
Í málflutningi hópsins var fullyrt að Alcan ætti viðskipti við 100 fyrirtæki í bænum. Á heimasíðu Alcan www.alcan.is er eftirfarandi upplýsingar að finna: “Ef allir hafnfirskir birgjar eru taldir með (blómabúðir, ljósmyndaframköllun og ýmislegt fleira tilfallandi) eru þeir líklega um 50 talsins, en meðal þeirra sem við eigum veruleg viðskipti við mætti nefna Raf-x, Stálvirki, VSB Verkfræðistofu, ISO-tækni, Sandtak, Körfubílar, Trefjar, Augnsýn, Íssegl, KM Bygg, Véla- og skipaþjónustan Framtak, Hafnarfjarðarhöfn og Vörubretti.” (heimild: http://www.alcan.is/?PageID=172 )
Fullyrt var að hvergi í heiminum væri hægt að framleiða ál á jafn umhverfisvænan hátt og á Íslandi. Það er fjarstæða enda er endurnýjanlega orku að finna víða í heiminum og umhverfisvænast af öllu er að vinna ál þar sem ekki þarf að flytja hráefnið um langan veg og allt er á einum stað, báxítnámur, súrálsverksmiðjur og álver eins og t.d. í Brasilíu.

Fullyrt var að 5-7% af tekjum bæjarins komi frá álverinu. Rétt er að beinar tekjur bæjarins undanfarin ár af álverinu hefur verið á bilinu 1-2% af heildartekjum bæjarins.

Við í Sól í Straumi höfum lagt okkur fram um málefnalega umræðu um stækkunarmálið í Hafnarfirði undanfarna mánuði og við bjóðum öllum sem hafa áhuga á að taka þátt í þeirri umræðu á þeim grundvelli velkomna til skoðunarskipta.

Styrkur bæjarins til lengri tíma liggur í möguleikum bæjarins til þess að vaxa og dafna og þar setjum við í Sól í Straumi hagsmuni Hafnarfjarðar ofar skammtímahagsmunum einstakra fyrirtækja um aukinn ábata.

Sól í Straumi

(fréttatilkynning 26. febrúar 2007)

Skrifað undir Tilkynningar |

15 Responses

  1. Bjarni Magnússon Says:

    Þetta eru óttalegir jólasveinir sem þessi samtök skipa, og flest fólk sem tengist verktakabisness og er því að hugsa um hag eigin fyrirtækja.

  2. Jóhanna Fríða Dalkvist Says:

    “Ef allir hafnfirskir birgjar eru taldir með (blómabúðir, ljósmyndaframköllun og ýmislegt fleira tilfallandi) var heildarfjöldi þeirra árið 2006 á annað hundrað talsins, eða nákvæmlega 104 virkir birgjar. Meðal þeirra sem við eigum veruleg viðskipti við mætti nefna Raf-x, Stálvirki, VSB Verkfræðistofu, ISO-tækni, Sandtak, Körfubílar, Trefjar, Augnsýn, Íssegl, KM Bygg, Véla- og skipaþjónustan Framtak, Hafnarfjarðarhöfn og Vörubretti.”
    http://www.alcan.is/?PageID=172

  3. Pétur Says:

    Blessuð Jóhanna,

    það var merkilegt í hádeginu í dag hvernig fjöldi birgja tvöfaldaðist allt í einu á heimasíðu Alcan. Fyrir hádegi voru þeir 50 og eftir hádegi rúmlega 100. Ég sendi fyrirspurn um þetta mál á síðasta ári til Hrannars og hann svaraði mér með sömu orðum að birgjarnir væru u.þ.b. 50, Hrannar kynnti þessa tölu líka á fundi á haustmánuðum.

    Það sem skiptir samt aðalmáli er að þessi fyrirtæki koma til með að njóta viðveru álversins í Straumsvík næstu árin og áratugina. Álverið lokar ekki á næstunni þó að það stækki ekki. Bæði hafa fulltrúar Alcan sagt það sjálfir og svo eru ýmsar staðreyndir uppá borðinu sem benda til áframhaldandi reksturs mörg ár í viðbót.

    Með bestu kveðju,

    Pétur Óskarsson

  4. Tryggvi L. Skjaldarson Says:

    Sæll Pétur

    Hvaða staðreyndir eru uppá borðinu sem benda til áframhaldandi reksturs næstu áratugina??

    Kveðja Tryggvi L. Skjaldarson
    Starfsmaður Alcan

  5. Gummi Says:

    Fyrirtæki sem græðir 4 milljarða á ári er ekkert að fara, ef þeir fara þá koma bara einhverjir aðrir í staðinn. Ekki mundi ég loka fyrirtæki sem græðir svona mikið, þeir vilja bara græða 10 milljarða í staðinn fyrir 4.

    Gummi

  6. Ágúst Eiríksson Says:

    Sæll Tryggvi,

    Ég er alveg sannfærður um að ef Alcan vill loka eru margir sem vilja kaupa. E.t.v er það góð hugmynd að starfsmenn Alcans óski eftir að koma að kaupum að félaginu.

    kv.

    Ágúst

  7. Hannes Sigurðsson Says:

    Sól í Straumi tala títt um að álverið verði inn í miðri íbúðarbyggð verði af stækkun.
    En er ekki staðreyndin að hverfið umhverfis álverið er skilgreint sem iðnaðarsvæði?
    Er ekki verið að byggja upp myndarlegt iðnaðarsvæði í Helluhverfinu rétt hjá?
    Stendur til að byggja íbúðarhúsnæði þar líka?

  8. Hannes Sigurðsson Says:

    Annað sem að mig langar að tala um er andstaða Sólar í Straumi við álverið í Straumsvík.
    Sól í Straumi tala um að þau séu ekki á móti álverinu sem slíku heldur á móti staðsetningu þess.
    En samt er rekinn áróður gegn álverum almennt á síðunni.
    T.d.eru tenglar á efni þar sem rekinn er áróður gegn álverum í Afríku.
    Mín spurning er því er Sól í Straumi á móti álverinu eða á móti staðsetningu þess?

  9. Karl Magnússon Says:

    tekið af heimasíður Alcan

    Verður álverinu lokað ef ekki kemur til stækkunar?

    Með stækkun álversins verður samkeppnishæfni þess tryggð til lengri framtíðar. Engar áætlanir eru uppi um lokun álverins ef ekki kemur til stækkunar, enda gengur verksmiðjan vel og árangurinn er góður, bæði á tæknilegum mælikvörðum og í umhverfismálum. Hins vegar er ljóst að líftími verksmiðjunnar styttist umtalsvert ef hún verður ekki stækkuð þótt óljóst sé hversu mikið.

    Flutningur á verksmiðjunni er heldur ekki raunhæfur möguleiki, enda kostnaður og fyrirhöfn við slíkt líklega meiri en að reisa nýja verksmiðju frá grunni – það þyrfti jú að byggja nýtt undir starfsemina og rífa byggingar o.fl. á núverandi stað með tilheyrandi kostnaði. Þá er ólíklegt að jafngóður staður finndist í nágrenninu, enda þarf að huga að ýmsu þegar álveri er valinn staður, t.d. góðri hafnaraðstöðu og góðu aðgengi að vatni, svo eitthvað sé nefnt.

    ——————————————————————————–

  10. Pétur Says:

    Það hefur verið alveg skýrt frá upphafi að það sem sameinar einstaklingana í Sól í Straumi er andstaðan við STÆKKUN álversins. Á fyrsta fundi hópsins var sú afstaða tekin og hún hefur ekki breyst. Sól í Straumi er ekki á móti álverinu eins og það er í dag og við berum mikla virðingu fyrir þeim sem þar vinna og hagsmunum þeirra sem hafa sitt lifibrauð af verksmiðjunni.

    Með bestu kveðju,

    Pétur Óskarsson

  11. Gummi Says:

    Þeir verða bara að endurnýja tækjakost eins og mörg önnur fyrirtæki hafa gert hér í bænum til að verða ekki úreld, þá geta þeir verið hér mun lengur.
    Fyrst það er svo gott að vera hér með alla þessa aðstöðu og næstum gefins rafmagn,þá ráðast þeir í þær framkvæmdir þegar sá tími kemur.
    Ég héld ef verður að stækkun þá ráðst þeir í að endurnýja eldri tækjakost og verða þá kannski stærri 500.000 tonn framleiðslugetuvsvo eftir 15 ár verður sagt það sama við okkur ef við fáum ekki stækkun þá lokum við.
    Ég héld að við Hafnfirðingar séum aðeins klárari en svo að við tökum mark á þessum hótunar eða hræðsluáróði frá alþjóðlegu stór fyrirtæki sem gengur bara út á það að græða, græða og aftur græða.
    Annað sem við megum ekki gleyma er að Alcan er með samningateymi sem eru sér þjálfaðir í samningaviðræðum, ef við samþykkjum stækkun áður en það er búið að klára alla samninga, þá taka þeir okkur í bakaríið.´
    Hefur okkar ágæta bæjarstjórn getu til að semja við svona stórkalla sem gera lítið annað?

    Er ekki algjör óþarfi að fá Ofur stóra álbræðslu í garðinn okkar.

    Litla sæta dýrið sem öllum þótti vænt um hér áður fyrr er orðið/verður að risa skrýmsli sem étur nágrana sína.

    Baráttu kveðja til þeirra sem vilja fjölbreytta atvinnu og hreint loft í bænum.

  12. Lárus St. Guðmundsson Says:

    Hvernig væri að byggja þróunarmiðstöð fyrir Hýbríðbíla í Hafnarfirði!

    Ef að álverið er ekki stækkað þá þarf að fara að huga að því hvað tekur við þegar það fer.
    Þetta gæti verið nokkurra ára þróunarferill. En þeir sem eiga álverið þurfa alls ekki að tapa á því.

    Ef að ríki heims ætla virkilega að taka á umhverfismálum og setja þau í forgang þá er víst að margið möguleikar opnast til dæmis í framleiðslu visvænna faratækja. Ef að gjöld á hefðbundin farartæki hækka verður mun hagkvæmdara að reka vetnis eða hybríðbíla.
    Við getum tekið þátt í þróun slíkra farartækja þó að framleiðsla þeirra á stórum skala yrði líklega ekki hagkvæm hér.

    Starfsmenn álversins gætu t.d. unnið við að breyta hefðbundnum bensínbílum í hybrið bíla, framleiða álblokkir í bíla eða aðra hluti úr áli sem hægt væri að nota í bíla eða e-ð einhverja aðra hluti sem þyrfti að sérsmíða.

    Landsnet er með dreifikerfi um allt land þannig að það væri hægt að setja upp “rafmagns-bensínstöðvar” um allt land.

    Meiri notkun á rafmagni í stað bensíns. Allar raflagnir eru til staðar í álverinu í Hafnarfirði. Hægt að selja rafmagnið á hærra verði til notkunar í bíla heldur en til bræðslu áls.

    Það væri hægt að láta bílana í höfuðborginni aka 80-90% af innanbæjarakstrinum á rafmagni ef að geymar þeirra hybríðbíla sem eru á markaði í dag væru stækkaðir. Þetta hefði mjög mikil áhrif til batnaðar á mengun í borginni.

    Nota ódýra rafmagnið til að knýja bílana. Menga minna.

    Þetta gæti verið samstarfsverkefni Alcan, olíufélagana, háskólanna, Nýorku og allra þeirra sem hefðu áhuga á nýsköpun og vistvænum fararkostum.

    Það væri hægt að bjóða upp á mörg spennandi störf í Hafnarfirði við slíka þróunarmiðstöð.
    Starfsmenn álversins gætu fengið vinnu í þróunarmiðstöðinni. Það væri hægt að byggja upp mikla þekkingu við að þróa farartæki líkt og við höfum byggt upp þekkingu við að nýta jarðvarma. Nú erum við að flytja þá þekkingu út…

    Ef að Alcan er hluthafi í verkefninu, Hafnfirðingar, starfsmenn álversins, Landsvirkjun og svo framvegis, þá geta allir grætt á þessu…

  13. Pétur Says:

    Blessaður Lárus,

    þetta er góð hugmynd. Ein af fjölmörgum góðum hugmyndum sem eru að skjóta upp kollinum út um allan bæ. Við erum Íslendingar erum frábær þjóð sem er að ná árangri á mörgum sviðum. Það þarf enginn að kvíða framtíðinni hér á landi, við eigum stórkostleg tækifæri víða.

    Með bestu kveðju,

    Pétur Óskarsson

  14. Jóhanna Fríða Dalkvist Says:

    Mér finnst allar svona hugmyndir frábærar og efast ekki um að við getum framkvæmt fullt af þeim og ættum að gera það. Ég skil þó ekki af hverju við ættum ekki að geta það þó við stækkum álverið í Straumsvík. Getum við ekki bara gert bæði? Getum við ekki framleitt bíla í Helguvík, eða annarsstaðar í Hafnarfirði? Þetta er hugmynd sem við ættum alls ekki að gefa upp á bátinn þó verði af stækkun.

  15. Stefán Says:

    Bara eitt dæmi um hvað stækkun í Straumsvík gerir.

    Stækkun ýtir væntanlega undir hátt gengi krónunnar sem gerir útflutningsatvinnuvegunum erfitt fyrir.
    Stækkun ýtir líka undir þenslu sem aftur ýtir undir verðbólgu og háa vexti.
    Allt þetta er ekki beinlínis óskaumhverfi fyrir nýsköpun.

    kk,
    stefán

Skrifaðu Athugasemd

Vinsamlegast athugið:Ef athugasemdin þín birtist ekki strax er það vegna þess að eigandi síðunnar er ekki búinn að samþykkja hana.

copyright © 2oo6 by Sól í Straumi | Powered by Wordpress

Ported by ThemePorter - template by Design4 | Sponsored by 47channel