Sól í Straumi

Þverpólitískur hópur áhugafólks um stækkunarmálið í Straumsvík


google
yahoo
bing
Sjáum saman til sólar

Christiane Finke 

NýlegarFærslur

Flokkar

EldraEfni

Tenglar

MetaGögn

Mengunaraukningin verður mjög mikil

30. March 2007

Það er ekki undarlegt að Alcan í Straumsvík reyni að losna við að leggja staðreyndir um aukningu á mengun við stækkun á borðið fyrir Hafnfirðinga. Sú mynd sem reynt er að draga upp af mengunarmálunum er kolröng og alls ekki ætluð til þess að upplýsa Hafnfirðinga. Það er auðvitað einfaldast og heiðarlegast að sýna Hafnfirðingum mengun fyrir stækkun og mengun eftir stækkun á súluriti eða í tölum sem allir skilja. Stefán Georgsson verkfræðingur og Finnbogi Óskarsson efnafræðingur hafa sitt í hvoru lagi sett fram upplýsingar um þetta mál á skýrann og skilmerkilegan hátt sem eru hér samanteknar í einföldu súluriti.

mengunarsamanburdhur-iii.jpg

Á þessu línuriti sést mengunaraukningin miðað við grænt bókhald Alcan árið 2005 (grænt) , samkvæmt minnismiða starfshóps um deiliskipulag Hafnarfjarðarbæjar og Alcan (blátt) og samkvæmt starfsleyfi sem gildir til ársins 2020 og stendur ekki til að endurskoða fyrir kosningarnar 31. mars. Á bak við þetta súlurit standa eftirfarandi tölulegar upplýsingar.

Grænt bókhald Alcan 2005:
Losun 2005 tonn/ári 
Flúoríð  111
Svifryk 150
Brennist 2.470
CO2 ígildi 283.178
Kerbrot   3.455   
Áætluð losun e. stækkun tonn/ári skv. minnisblaði
Flúoríð  253
Svifryk 386
Brennist 3.450
CO2 ígildi 727.720
Kerbrot   8.878    
Losunarmörk skv. Starfsleyfi Umhverfisstofnunnar til 2020
Flúoríð  253
Svifryk 552
Brennist 6.900
CO2 ígildi 805.460
Kerbrot 11.500

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni berst mengunin frá álverinu i Straumsvík 66 daga á ári yfir íbúabyggð í Hafnarfirði. Þá daga skiptir þessi mengunaraukning Hafnfirðinga máli, viðkvæmir geta fundið fyrir henni, sérstaklega börn en í bygðinni í nágrenni álversins verða bæði skóli, leikvellir, kirkja og sundlaug. Ég hef ekki trú á því að þessi mengun sé lífshættuleg fyrir Hafnfirðinga en öfugt við mengun af bíla- og flugumferð höfum við VAL núna um þessa mengunaraukningu. Sú fullyrðing að mengun aukist hlutfallslega lítið eða minnki á hvert áltonn við stækkun er fáránleg enda skiptir fjöldi áltonna almenning í Hafnarfirði engu máli. Það sem skiptir máli er mengunin sem kemur frá verksmiðjunni og hún mun aukast mjög mikið við stækkun. Verði hinsvegar ekki af stækkun og settur verður vothreinsibúnaður eða sambærileg tækni á verksmiðjuna má segja að mengunarmálin séu komin í ásættanlegt horft og við Hafnfirðingar getum haldið áfram að byggja upp okkar blómlega bæ, líka í nágrenni álversins.

Pétur Óskarsson

talsmaður Sólar í Straumi

Skrifað undir Rök Hafnfirðinga gegn stækkun |

26 Responses

  1. Pétur Says:

    Nágranni minn var með partí í gærkvöldi. Það var mikill hávaði eða 140db eins og fyrir aftan þotu í flugtaki. Ég ákvað að taka hús á honum og biðja hann að lækkka músíkina en hann svaraði “hér eru 70 manns í partíi, að meðaltali er hávaðinn aðeins 2db á mann, það er hlutfallslega miklu minni hávaði en frá þér og þinni fjölskyldu og vertu sæll”.

    Þessi dæmisaga skýrir hvers vegna hlutfallsleg mengun á áltonn skiptir engu máli fyrir almenning í þessari umræðu.
    Góðar stundir,

    Pétur Óskarsson

  2. Rúnar Óskarsson Says:

    Þessi umræða um að eitthvað sé undir heilsuverndarmörkum er líka undarleg.
    Ef við tökum t.d. hávaða sem dæmi eru menn sammála um að allt yfir 65 db sé óviðunandi. Samt eru hættumörkin á bilinu 80-85 db.
    (heimild: www.umhverfisstofnun.is)
    Að standa í 65 db lengi er gjörsamlega óþolandi - en maður skaðast samt ekki til langframa.
    Þetta ber líka að hafa í huga þegar talað er um að mengun sé undir heilsuverndarmörkum - hún getur samt verið óþolandi.

  3. Jóhann Gunnar Jónsson Says:

    Það er einfaldlega ekki hægt að líkja loftmengun frá álverinu við hávaða.
    Þessi samlíking lítur svakalega vel út á pappír hjá ykkur en þegar farið er að hugsa aðeins út í málið þá hljótið þið að sjá að þetta er algert rugl.

  4. Rúnar Óskarsson Says:

    Nei, ég er sammála því að þetta er sitthvor týpan af mengun - en líkingin stendur eftir sem áður.
    Maður þarf ekki að skaðast til langframa þó að maður standi í óþægilegri mengun í smátíma. En vill maður standa í óþægilegri mengun þó að maður viti að maður drepist ekki úr henni med de samme?
    Heilsuverndarmörkin segja ekki alla söguna

  5. Pétur Says:

    Í mínum huga er aðalatriðið að við höfum val um aukna mengun eða ekki. Ef við veljum að auka ekki á mengun í Hafnarfirði og krefjumst þess að sett verði upp vothreinsun eða sambærileg tækni á verksmiðjuna eins og hún er í dag þá opnast ótrúlegir möguleikar á svæðinu.
    Kveðja,
    Pétur Óskarsson

  6. Gunnar Theodór Gunnarsson Says:

    Er það ekki staðreynd að mengunin verður innan við 5% af því sem talið er í lagi?

  7. Guðmundur Guðmundsson Says:

    Alcan er að herja á fleiri en Íslendinga. Sjá eftirfarandi heimasíðu um álverð sem stendur til að reisa í S-Afríku:
    http://theantidote.wordpress.com/2007/01/16/aluminium-smelter-in-the-eastern-cape/

  8. Gylfi Ingvarsson Says:

    Það er ekki á menn logið og það hlýtur að var satt þar sem tveir háskólaborgarar hafa kannað málið og sett í súlurit, já mikill er máttur menntunar, það var líka háskólaborgari sem stóð með annan fótinn í sjóðandi vatni og hinn í jökulköldu vatni og hafði það að meðaltali gott.
    Kveðja Gylfi Ingvarsson

  9. Rúnar Óskarsson Says:

    Blessaður Gylfi
    Ég skil ekki alveg þetta komment þitt, ertu að segja að það séu rangar upplýsingar í súluritinu? Geturðu útskýrt það nánar?
    Eða ertu að segja að upplýsingarnar séu réttar en settar fram á villandi hátt?

  10. stefán Says:

    Ég verð að játa það að rök Gylfa Ingvarssonar hér að ofan eru mér óskiljanleg.

    Staðreyndir eru að losun mengandi efna eykst mikið við stækkun, svo ekki sé talað um sjónmengun, raflínur og áhrif á þróun byggðar. Loftmengunin verður ekki lífshættuleg (enda hefði þá Alcan ekki fengið starfsleyfi), en þó mjög mikil þá daga sem vindur stendur af álverinu á byggðina í Hafnarfirði.

    En hvað er þá hægt að segja um málflutning Alcan? Starfsmönnum og fjölskyldum þeirra er stillt upp og látið líta út eins og heilu fjölskyldurnar svelti fái álverið ekki að þrefalda framleiðslugetuna. Af viðbrögðum sumra Hafnfirðinga sem maður hittir á förnum vegi virðist fólk virkilega trúa því að framtíð þeirra persónulega velti á stækkuðu álveri. Máttur hræðslunnar er greinilega mikill.

    Það er óskandi að Hafnfirðingar láti ekki óttann sigra sigra í kosningunum 31. mars.

  11. Benjamín Says:

    Maður á ekki að láta óttann ráða kosningunni. Það er aftur svo að ef við látum óttann ráða munum við kjósa gegn stækkun. Það eina sem við þurfum að óttast eru áhrif og afleiðingar stækkunar.

  12. Hrefna Says:

    Þessi stækkun kemur ekki til greina frá mínum bæjardýrum séð.

    Ég mun mæta snemma á kjörstað og merkja við X Andvígur.

  13. Brynjar Óskarsson Says:

    Sæll Gylfi

    Ertu eitthvað ósáttur við þetta súlurit? Eru tölurnar á bak við það rangar? Er það illa upp sett? Sést of vel hvað mengunin mun aukast?

    Ég næ allavega ekki alveg þessu kommenti frá þér. Þú mættir gjarnan útskýra það fyrir okkur.

  14. Þórður Ingi Bjarnason Says:

    Þeir sem vilja stækkun vilja ekki skilja að mengun eykst eftir stækkun. Þess vegna vilja þeir ekki lesa þessi súlurit með réttum augum. Látum ekki hræðsluáróður Alcan og þeirra starfsmanna hafa áhrif á okkar skoðanir. Neitum stækkun.

  15. haukur kristinsson Says:

    er það ekki sjálfgefið að ef hvaða fyrirtæki sem er stækkar þá mengi það meira? fatta ekki svona umræðu,en ég er tilbúinn að láta gera eiturefnarannsókn á mér til að afsanna að það er hættulegt að vinna hjá ísal,hef verið löðrandi í þessum eiturefnum sem þið talið um í 20 ár og hef ekki haft skaða af,en að taka svona eitt fyrirtæki og súlurita það er eins og ef þú selur yaris og kaupir jeppa og súluritir mengunaraukninguna, það yrði mjög sjokkerandi niðurstaða,

  16. stefán Says:

    Haukur.
    Munurinn er sá að Yarisinn er risasmár, en álverið risastórt.

    Til að setja þetta í samhengi kemur Alcan til með að losa meira CO2 = gróðurhúsaáhrif eftir stækkun heldur en allur bílafloti Íslendinga.

    Við Hafnfirðingar eigum val um hvort við viljum umtalsvert meiri loftmengun eða ekki. Það er það eina sem súluritin sýna.

    kv,
    Stefán

  17. Hrefna Says:

    Haukur, þín vegna vona ég að heilsan sé góð og verði það alltaf en veistu að sjúkdómar af völdum eiturefna koma ekki endilega fram á fyrri hluta ævinnar (veit reyndar ekkert um aldur þinn)…það þýðir þó ekki að þú getir ekki veikst seinna af þeim á ævinni. Dæmi: Reykingarmaður deyr sjaldnast úr lungnakrabba á fyrstu árum reykinga en líkurnar stóraukast með árunum. Eins er það staðreynd að mengun og eiturefni fara mun verr með börn heldur en fullorðna. Í börnum er öndunarkerfið að þroskast, þau draga andann oftar en við fullorðna fólkið, osfrv. Við eigum því að miða alla mengun við krakka. Þó svo að þú sért heill heilsu (7-9-13) þá þýðir það ekki að aðrir þoli þessi efni og mengun.

  18. Tryggvi L. Skjaldarson Says:

    Sæll Pétur

    Sneitt er framhjá þeirri staðreynd að álverið mun standast allar kröfur sem gerðar eru til umhverfismála. Gefið er í skyn að loftgæði muni ekki vera nógu góð þrátt fyrir að himinn og haf sé á milli losunar frá Straumsvík og heilsuverndarmarka. Hversvegna?

    Kveðja Tryggvi L. Skjaldarson
    Starfsmaður Alcan

  19. Stefán Says:

    Sæll Tryggvi.
    Loftmengun eftir stækkun verður innan heilsuverndarmarka og ekki lífshættuleg (eins og Pétur bendir á).

    Þetta snýst um lífsgæði, stórkostleg aukning loftmenguanr mun skerða lífsgæði okkar Hafnfirðinga.

  20. Benjamín Says:

    Skemmtilegt að fylgjast með því hvernig er hopað með fullyrðingar. Fyrst var það “mengun eykst ekki”, svo “kannski smá”, núna “hún hefur engin áhrif”, þegar er bent á óyggjandi staðreyndir í sumum tilfellum 2.5-faldrar aukningar mengunar.

  21. Andrea Sigurðardóttir Says:

    Ég vil benda ykkur á að fara varlega í tölfræðina, hún er villandi þar sem þeir sem með hana kunna að fara geta auðveldlega sett sama dæmið upp og fengið þær niðurstöður sem óskað er eftir hverju sinni.
    Fólk ætti að hafa í huga er það skoðar þetta súlurit hér að ofan að framleiðslugeta álversins eykst um 155% en losunarheimild vegna flúors aðeins um 25%.
    Rannsóknir leiða einnig í ljós að innihald flúors í gróðri í nágrenni álversins er svipaður og áður en álverið tók til starfa.
    Einnig er rætt um starfsleyfi umhverfisstofnunar en ekki verið að ræða um einhverja fína línu sem skilur á milli þess hvort fólk skaðist af þessu eður ei. Starfsleyfið er væntanlega langt undir þeim mörkum að losunin hafi skaðleg áhrif á fólk, enda er það öllum ljóst að gerðar eru strangar kröfur um mengunarvarnir til álversins og lýsi ég andúð minni á hverskyns hræðsluáróðri varðandi þetta.
    Allir vita að mengunin eykst, og þætti mér áhugavert að vita Benjamín, hvenær talsmenn Alcan lýstu því yfir að mengun aukist ekki við stækkun?

    Virðingarfyllst, Andrea Sigurðardóttir.

  22. Benjamín Plaggenborg Says:

    Ég átti að sjálfsögðu við 2.5 faldrar mengunar, ekki aukningar.

    Villandi upplýsingar voru lengi frammi þar sem auglýst var mengun/tonn, ekki heildaraukning mengunar. Þeir sem töluðu fyrir stækkun gripu þessar upplýsingar á lofti og ef mig misminnir ekki (mér finnst eins og ár og öld sé síðan ég fór á fundinn í Árnesi, þar sem þetta byrjaði) þá héldu sumir þeirra, m. a. talsmaður Hags Hafnarfjarðar, fram að mengunin jykist ekki. Það hafði að sjálfsögðu verið byggt á villandi upplýsingum frá Alcan.

    Að sjálfsögðu á hvorki Sól í Straumi né nokkur maður að leggjast jafn lágt og Alcan hefur gert með villandi framsetningu og breyttum framburði á síðu sinni í þessari kosningabaráttu. Heiðarleiki og rök mynda leiðina að trúverðugleika.

  23. Sigrún Rohleder Says:

    Sá einhvers staðar upplýsingar um leyfileg mengun eftir stækkun (mér brá) og hvað stækkað álver væri langt undir þessum mörkum. Ætlum við ekki aðeins að klappa fyrir það? En,… nei takk. Notum orkuna frekar til að setja X við Nei!

  24. Stefán Georgsson Says:

    Sigrún.
    Mengun frá Alcan verður innan marka utan þynningarsvæðis. Annars hefði fyrirtækið ekki starfsleyfi. Mengun eykst hins vegar mikið við stækkun (miðað við til dæmis 2005) og við Hafnfirðingar eigum val um hvort við viljum þessa auknu mengun eða ekki.

    Dæmi:
    Brennisteinstvíoxíðmengun frá stækkkuð álveri verður 10-19 tonn á dag. Það mætti með vothreinsun ná þessu niður í næstum ekki neitt, en það er dýrari valkostur en þurrhreinsun sem Alcan notar. Heilbrigðsnefnd Hafanrfjarðar fer framá vothreinsun.

    Alcan mun eftir stækkun losa jafn mikið brennisteinstvíoxíð á 3-6 dögum og allur bílafloti landsmanna gerir á heilu ári!

    Þessi mengun hefur verið allt að 8% af heilsuverndarmörkum fyrir stækkun (sjá gögn á heimasíðu Umhverfisstofnunnar fyrir 2004 og 2005). Mengunin mun aukast við stækkun í allt að 10-20% af heilsuverndarmörkum í íbúðarbyggðinni. Gróðurverndarmörk eru svo mun lægri en heilduverndarmörk.

    Alcan hefur því miður birt villandi upplýsingar um þetta efni, sjá grein hér á síðunni frá Landvernd.

  25. Sigtr. Ingi Jóhannsson Says:

    Stefán

    Telur þú vothreinsun betri kost? Ég man ekki betur en Dr. Þórður Tómasson segði á fundinum um mengunarmál í Hafnarborg að affallið frá vothreinsun kæmi til með að drepa allt lífríki í sjónum í Straumsvík og næsta nágrenni.

    Kv, Sigtr. Ingi

  26. Stefán Georgsson Says:

    Sigr. Ingi
    Alcan hefur notað álit frá Hollustuvernd sem röksemd til að nota ekki vothreinsun. Þór Tómasson sagðist sjálfur ekki hafa komið að því áliti. Hann sagði jafmeð að með hæfilegri útrás væri PAH mengunin sem þú væntanlega ert að vísa til ekki vandamál. Hins vegar þyrfti alltaf að setja upp útrás útúr sjálfri Straumsvíkinni.

    Þetta er sama niðurstaða og Heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis komst að.

    kv,
    Stefán

Skrifaðu Athugasemd

Vinsamlegast athugið:Ef athugasemdin þín birtist ekki strax er það vegna þess að eigandi síðunnar er ekki búinn að samþykkja hana.

copyright © 2oo6 by Sól í Straumi | Powered by Wordpress

Ported by ThemePorter - template by Design4 | Sponsored by 47channel