YFIRLÝSING SAMTAKA UM BETRI BYGGÐ
28. mars 2007Samtök um betri byggð lýsa yfir eindreginni andstöðu við fyrirhugaða stækkun álvers ALCAN í Straumsvík.
Samtökin benda á að útblástur frá stækkuðu álveri getur haft verulega neikvæð áhrif á heilsufar íbúa í Hafnarfirði og í öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu.
Samtök um betri byggð telja að álver af þeirri stærð, sem fyrirhuguð er svo nærri byggð á höfuðborgarsvæðinu, sé fullkomin tímaskekkja, sé óheppilegt fyrir ímynd svæðisins og valdi umtalsverðri sjónmengun.
Samtökin benda á að virkjanir í neðri hluta Þjórsár, sem áformaðar eru vegna hugsanlegrar stækkunar álversins í Straumsvík, eru mjög umdeildar. Þær munu valda umtalsverðum náttúruspjöllum og háspennulínur að álverinu munu valda mikilli sjónmengun í átta sveitarfélögum.
Samtök um betri byggð harma það hve ójafn leikurinn er í áróðursstríðinu í Hafnarfirði á milli álrisans ALCAN með ótakmarkað fjármagn og grasrótarsamtakanna Sól í Straumi, sem væntanlega þurfa að skrapa eldhúsbauka félagsmanna sinna. Á meðan standa bæjaryfirvöld í Hafnarfirði á hliðarlínunni.
Samtök um betri byggð eru umhverfis- og neytendasamtök á sviði borgarskipulags á höfuðborgarsvæðinu. Þau fengu því til leiðar komið 2001 að kosið var um flug í Vatnsmýri. Þrátt fyrir að samtökin hafi staðið þar ein og óstudd gegn ofurvaldi og óheftu fjármagni samgönguráðherra og flugrekenda og með borgarstjórn Reykjavíkur sitjandi á hliðarlínunni sigruðu þau samt.
27. mars 2007,
Stjórn Samtaka um byggð
Skrifað undir Almennt um stækkun, Tilkynningar |
mars 28th, 2007 at 14:06:49
Takk kærlega fyrir samstöðuna
kv.
Guðbjörg Þórisdóttir