Umhverfisnefnd bókaði gegn stækkun álversins
30. mars 2007
Umhverfisnefnd Hafnarfjarðar sem í gegnum tíðina hefur fengið ítarlegar kynningar og fræðslu á mengun og afleiðingum stækkunar álversins bókaði á fundi sínum svo snemma sem 16 júní 2005 þegar deiliskipulagstillaga um stækkunina var til umræðu svohljóðandi bókun:
,,Umhverfisnefnd Staðardagskrá 21 leggst ekki gegn því að tillaga Alcan að deiliskipulagi fyrir stækkun álversins í Straumsvík verði send út til kynningar og umræðu, en nefndin tekur fram að í því felst engin skuldbinding um að styðja stækkunina á síðari stigum málsins. Helst kysi nefndin að öll áform um þessa stækkun yrði lögð til hliðar og telur það þjóna best hagsmunum Hafnfirðinga til lengdar að ekki verði tekið meira land svo nærri íbúðabyggð undir mengandi stóriðju en það sem þegar er búið að ráðstafa til slíkrar starfsemi.”
Það var einróma álit fundarmanna að stækkun gengi í berhögg við samþykkta stefnu bæjarins í málefnum Staðardagskrár 21. Fundarmenn ræddu einnig alvarlegar afleiðingar þess að leggja ætti háspennulínur um útivistarsvæði, skóglendi og uppland hafnarfjarðar með tilheyrandi sjón- og hljóðmengun.
Hólmfríður Finnbogadóttir sem þekkt er fyrir skógrækt og útiveru og kemur fram þessa dagana fyrir hönd Hags Hafnarfjarðar og segist ætla segja Já við stækkun álversins. Það er öllum hollt að skipta um skoðun en afstaða hennar vekur furðu í ljósi ofangreindrar bókunnar sem hún skrifaði undir.
Mér þykir afar ólíklegt að frjálsum félagasamtökum og einstaklingum sem hafa fengið úthlutaða skógræktarreiti í upplandi Hafnarfjarðar, í umsjá Hólmfríðar, vilji fá suðandi háspennumöstur með tilheyrandi sjónmengun og raski í uppland bæjarins þar sem útsýni fólks yrði 40 metra há háspennumöstur sem munu girða þessi svæði af. Þarna koma fjölskyldur saman á sumrin til að njóta útivistar í góðu umhverfi.
Hvað gengur mönnum til að vilja eyðileggja þessa paradís. Hólmfríður verður að svara fyrir sig og útskýra fyrir Hafnfirðingum hvað henni gengur til. Hún þarf að svara því hvort hún sjái fyrir sér börn að leik undir háspennumöstrum með nýgræðing í hendi eða hvort hún vilji varðveita til framtíðar heilnæmt og fallegt umhverfi okkar.
Með vinsemd og virðingu,
Bergur Ólafsson
Fulltrúi sjálfstæðisflokks í Umhverfisnefnd / Staðardagskrá 21.
Svona hljóðaði bókunin:
Nefnd: Umhverfisnefnd
Númer: 62
Dags: 16.6.2005
Tími: 08:15
Staður: Strandgata 6
Dagskrá
Mættir voru Kristján Bersi Ólafsson, Hólmfríður Finnbogadóttir og Bergur Ólafsson. Einnig sat fundinn Berglind Guðmundsdóttir sem ritaði fundargerð.
Fyrir var tekið:
1. Straumsvík - Alcan, deiliskipulag Mál nr. SB040557
Lögð fram að nýju tillaga Arkís dags. 18.05.05 að nýju deiliskipulagi vegna fyrirhugaðrar stækkunar álversins. Tekið fyrir á fundi skipulags-og byggingarráðs 7. júní sl og Umhverfisnefndar/st 2 15. júní.
Umhverfisnefnd Staðardagskrá 21 leggst ekki gegn því að tillaga Alcan að deiliskipulagi fyrir stækkun álversins í Straumsvík verði send út til kynningar og umræðu, en nefndin tekur fram að í því felst engin skuldbinding um að styðja stækkunina á síðari stigum málsins. Helst kysi nefndin að öll áform um þessa stækkun yrði lögð til hliðar og telur það þjóna best hagsmunum Hafnfirðinga til lengdar að ekki verði tekið meira land svo nærri íbúðabyggð undir mengandi stóriðju en það sem þegar er búið að ráðstafa til slíkrar starfsemi.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 9.00
Kristján Bersi Ólafsson (sign)
Hólmfríður Finnbogadóttir (sign)
Bergur Ólafsson (sign)
Skrifað undir Óflokkað |
mars 30th, 2007 at 19:20:23
Var að grilla um daginn og þetta var ásýndin. Svona er þetta mjög oft og þetta er ekki steypuskálinn.
http://nemendur.ru.is/stefantb04/alver.jpg
Stefán