Tap Hafnarfjarðar
31. March 2007Hagfræðistofnun Háskóla Íslands hefur réttilega reiknað út að hagnaður af þreföldun álversins í Straumsvík umfram vöxt annarrar starfsemi sé um 6-8 þúsund krónur á ári á mann.
Seðlabankinn varaði í gær eindregið við því að ráðast í þessar framkvæmdir vegna neikvæðra áhrifa á efnahagslífið, vextina og verðbólguna sem heimilin í landinu, þ.m.t. Hafnarfirði, eru að kikna undan.
Ef Hafnfirðingar segja JÁ við stækkun eru þeir líka að segja JÁ við áframhaldandi okurvöxtum á yfirdrætti heimilana í landinu. Munurinn á núverandi yfirdráttarvöxtum heimilanna og 4% lægri vöxtum (eins og stefnt er að) er um 2.9 milljarðar á ári. Hlutur Hafnfirðinga í því er líklega um 222 milljónir króna eða um tæplega 10 þúsund á mann. Lítið eftir af 6-8 þúsund krónunum þá.
Hafnarfjörður hefur verið að byggjast hratt upp, þar er mikið af ungum fjölskyldum sem hafa þurft að skuldsetja sig töluvert til að koma sér þaki yfir höfuðið. Á síðasta ári sáu verðbólgan og verðtryggingin til þess að nýlegt húsnæðislán upp á 10 milljónir hækkaði um ca 1.2 milljónir eða um ca 50 þúsund kr á mánuði.
Segi Hafnfirðingar JÁ við þreföldun álversins í Straumsvík eru þeir að viðhalda og jafnvel að auka á verðbólguna.
Þeir Hafnfirðingar sem eiga verðtryggðar skuldir geta því búist við að skuldir þeirra hækki umtalsvert á næsta og þarnæsta ári þrátt fyrir að skilvíslega sé hamast við að borga þær niður. Fyrir venjulegt heimili ungrar fjölskyldu með 15 milljóna húsnæðislán myndi áframhaldandi ástand þýða hækkun skulda upp á ca 75.000 á mánuði. Ekki mikið eftir af 6-8 þúsund kallinum þar.
Alcan hefur kappkostað að keyra áróður sinn á hræðslu við að saklausu fólki verði sagt upp störfum sínum ef Alcan fær ekki að þrefalda álverið. Fyrirtækið hefur sent andlitin á öllum sínum starfsmönnum inn á hvert heimili í Hafnarfirði. Skilaboðin eru skýr - við missum vinnuna ef þú segir nei! Það er rangt.
Hafnfirðingar sem búa í Vallahverfi horfa upp á verðfall á fasteignum sínum út af þreföldun álversins. Þetta fólk er líka með andlit þótt þau komi ekki inn um lúguna hjá öllum bæjarbúum.
Hvað ætli það séu mörg andlit, bara í Hafnarfirði, sem munu þurfa að þola hærri yfirdráttarvexti og hækkun verðtryggðra skulda sinna um tugi þúsunda á mánuði af því að Alcan heimtar leyfi til að þrefalda starfsemi sína?
Dofri Hermannsson
Sjá fleiri greinar um stækkunarmálið á www.dofri.is
Skrifað undir Aðsendar greinar |
March 31st, 2007 at 09:44:52
Ég vil ekki að láninn mín hækki. Ég á íbúð í Hafnarfirði og var að vonast eftir því að geta sótt um lóð á völlunum í næstu úthlutn. En ef stækkað verður þá verður ekki gott á búa að völlunum og þau lán sem ég er með á íbúðinni minni hækka svo það ekki öruggt að ég ráði við að selja og byggja. Þar sem ég flutti að Hólum í Hjaltadal í vetur vegna náms þá hef ég ekki kosningarétt í þeim bæ sem fasteigninn mín er svo Ég treisti á ykkur Hafnfirðingar að kjósa rétt og segja nei.
March 31st, 2007 at 10:08:53
Sæll Dofri
Þú heldur áfram að snúa útúr, rangfæra og segja ósatt.
Hvað ef Rio Pinto kaupir Álverið í Hvalfirði og Hafnfirðingar felldu stækkun. Álver í Helguvík fengi rafmagnið. Árið 2014 samþykktu Suðurnesjamenn stækkun í Helguvík og það yrði boðið á móti gamla álverinu í Straumsvík í rafmagnið. Hvað ef nýja álverið í Helguvík hefði betur og lokað yrði í Straumsvík vegna rafmagnsleysis?
Yrði það ekki stóri Hafnarfjarðarbrandarinn?
Kveðja Tryggvi L. Skjaldarson
Starfsmaður Alcan
March 31st, 2007 at 10:51:13
Þetta verður aldrei slæm ákvörðun hjá Hafnfirðingum eingöngu gott fyrir Hafnfirðinga
Já við stækkun á álverinu
March 31st, 2007 at 10:57:49
Sæll Tryggvi
Ef þú ert hræddur við að alcan fái ekki rafmagn eftir 2014 þá erti að segja að það sé ekki gott að stækka núna. Það er verið að skoða núna að reisa álver í Helguvík. það hlítur að vera búið að skoða rafmangsnotkun miðað við að bæði áverinn þurfi mikla orku. Ef alcan stækkar ekki þá þurfa alcan minni orku Ef þínar áhiggjur eru réttar þá erum við kominn á þann tímapunt að stoppa framkvæmdir á stóriðju þar sem ekki er nóg til af rafmagni á landinu. Segjum NEI við stækkun það er það besta sem við gerum
March 31st, 2007 at 12:30:55
Tryggvi.
Ef einhver annar biði í rafmagnið myndi að minsta kosti þýða það að það fengist hærra verð fyrir það. En það er svo sem ekki bara verðið sem skiptir máli.
Ertu annars að segja að álverið starfi áfram eftir 2014 án stækkunar?
March 31st, 2007 at 14:12:00
Sæll Tryggvi.
Hvað er snúið, rangfært og ósatt hjá Dofra?
March 31st, 2007 at 14:20:19
Mesti Hafnarfjarðarbrandarinn er að Davíð Oddsson komi stækkunarandstæðingum til hjálpar, maðurinn sem stendur öðrum fremur á bak við álvæðinguna síðustu áratugi sem forsætisráðherra þriggja ríkisstjórna.
March 31st, 2007 at 16:13:05
Sæll Brynjar
Bara það sem hann segir og skrifar um álverið í Straumsvík.
Það er ekki vegna skorts á upplýsingum heldur af öðrum hvötum.
Kveðja Tryggvi L. Skjaldarson
Starfsmaður Alcan
March 31st, 2007 at 20:46:06
Einhver örvænting komin upp hjá Tryggva svona í blálokin? Ef einhver skynsemi situr eftir í Hafnfirðingum átta þeir sig á að þegar Tryggvi segir “þetta er vitlaust af því bara” þá veit hann ekkert hvað hann á að segja. Eins þegar hann svaraði grein um áhrif virkjananna í Þjórsá með upplýsingum um skattaumhverfi Alcan og gömlum þingræðum.
April 8th, 2007 at 08:58:38
Ég verð nú bara að óska fólkinu sem var á móti stækkun álversins til hamingju, en einn daginn þegar bæjarfélagið horfir fram á það að tekjur bæjarfélagsins minnka sem um munar þá verður gott fyrir þetta sama fólk að hugsa aftur í tímann og spá í það hvort stækunin hefði nú ekki verið hinn betri kostur, jú það vill nefnilega oft vera þannig í þessu þjóðfélagi sem við búum í að ef tekjur minnka þá þarf að sækja tekjur annarsstaðar frá t.d. með hækkun leikskólagjalda, fasteignagjalda o.s.fr en ekki skal gleyma að atvinnan er svo rosalega mikil og allt vaðandi í peningum í vösum hjá fólki sem er bara gott mál.
En fólk ætti nú kannski líka að hugleiða eina spurningu, búið er að sýna fram á að menngun frá þessu fyrirtæki Alcan sem styrk hefur íþróttaæskuna í hafnarfirði í mörg ár er innan allra eðlilegra marka, ætti kannski að líta hinumegin við veginn og sjá þau fyritæki sem þar eru stödd eins og geymslusvæðið og hinar ýmsu partasölur, nei það er ekki verið að spá í jarðmengunina þar.
Ég vona bara að þið hafnfirðingar hafið ekki kosið af vanþekkingu sem muni kannski hafa alvarlegar afleiðingar fyrir ykkur bæjarbúa í framtíðinni. En að mínu mati er verið að taka skref í þá átt að bæjarfélagið færist um ein 20 ár aftur í tímann en það er nátturulega bara álit frá mér.