Sól í Straumi

Þverpólitískur hópur áhugafólks um stækkunarmálið í Straumsvík


Sjáum saman til sólar

Guðmundur Elíasson 

NýlegarFærslur

Flokkar

EldraEfni

Tenglar

MetaGögn

Stækkun í Straumsvík hafnað

1. apríl 2007

Þá eru Hafnfirðingar búnir að svara þeirri spurningu sem Alcan bar upp við bæjaryfirvöld um stækkun álversins í Straumsvík. Kjörsóknin var gríðaleg og er ljóst að íbúalýðræðinu í Hafnarfirði var vel tekið í þessu máli.

Atkvæði féllu sem hér segir:
6.382 greiddu atkvæði gegn tillögunni
6.294 samþykktu deiliskipulagstillöguna

16.648 voru á kjörskrá og 12.752 greiddu atkvæði, eða 76,6%. Utankjörstaðaatkvæði voru 1.195. Auðir seðlar og ógildir voru 71.

Kjörsóknin í kosningunum nú er meiri en hún var í síðustu bæjarstjórnarkosningum. Í tölfræði frá kjörstjórn kemur fram að yngri kjósendur kusu síðar en þeir eldri og skiluðu sér einnig síðar á kjörstað. Eldri karlar kusu frekar en eldri konur en annars var ekki mikill munur á kosningaþátttöku kynjanna. Íbúar miðbæjar Hafnarfjarðar létu síður sjá sig á kjörstað en þeir sem nær búa álverinu.

Sól í Straumi fagnar þessari niðurstöðu og viljum við nota tækifærði til þess að þakka öllum sem tóku þátt í þessari umræðu undanfarna mánuði, bæði þeim sem studdu okkar málstað sem og þeim sem voru á öndverðum meiði. Þó svo að kosningabaráttan hafi verið löng og á stundum hörð voru þessi skoðanaskipti nauðsynleg hér í bænum. Nú liggur ákvörðun fyrir og er það von okkar að allir Hafnfirðingar verði fljótir að setja deilur um þetta mál til hilðar og horfi bjartsýnum augum til framtíðar.

Sól í Straumi

Skrifað undir Tilkynningar |

9 Responses

  1. Alda Says:

    Þetta eru stórkostlegar fréttir! Til hamingju!!

  2. Þórður Ingi Bjarnason Says:

    Þetta er frábær niðurstaða. Til Hamingju Hafnfirðingar.

  3. Þorsteinn Gunnlaugsson Says:

    Við Hafnfirðingar höfum nú slegið á þensluna, við höfum slegið á verðbólguþróun og við höfum opnað tækifæri til að marka nýja framtíðarsýn og ráðstöfun auðlinda okkar í raforku, mannauði og jarðnæði.

    Við höfum valið rétt fyrir komandi kynslóðir! Við eigum sameiginlega að vinna að þessari framtíð.

    Lifið heil.
    Þorsteinn Gunnlaugsson

  4. Sigurður P. Says:

    Þetta var frábær sigur þó naumur væri. Sorglegt að sjá viðbrögð Inga B. Rútssonar á heimasíðu Hags Hafnarfjarðar. Kann greinilega ekki að taka tapi. Því til viðbótar segist þetta ágæta fólk hafa grun um að svik hefðu verið viðhöfð af hálfu Sólar í Straumi, nánar tiltekið að við hefðum staðið fyrir því að um 700 manns hefðu flutt lögheimili sín til Hafnarfjarðar undanfarið. Þvílík og önnur vitleysa. Hélt fyrst að þetta væri aprílgabb - er reyndar að vona enn að svo sé, en þetta rugl hefur bæði komið fram í sjónvarpsfréttum í dag og á textavarpi. Aldrei hefði mér dottið svona lagað í hug - þarf greinilega nokkurt hugmyndarflug til.

    Kv.

    Sigurður P. Sigmundsson

  5. Elvar Says:

    Óskandi væri það ef Hafnfirðingar væru búnir að slá á þensluna, en það er greinilegt að ráðamenn landsins ætla sér að auka álframleiðslu hérlendis um u.þ.b 300.000 tonn á ári. Það eina sem við getum stólað á er að það verður ekki gert í Straumsvík. Sem stendur allavega.
    Til hamingju bræður og systur í sólinni.

  6. Þórður Ingi Bjarnason Says:

    Það er ótrúlegt hverng Ingi lætur. AÐ það hafa 700 manns breitt lögheimii til að geta kosið. Ég var að hlusta á Lúðvík Geirsson á rás 1 og þar sagði hann að frá 1.des hafi 300 mans flutt sig í Hafnarfjarðr og frá þeim degi sem kosniga dagur var ákveðinn og þar til kjörskrá lokaðist hafi 180 mans flutt til Hafnarfjarðar og þar af var mikið af börnum sem ekki eru með kosnigarétt. Hvar eru þá þessir 700 hans Inga?
    Hann er bara tapsár en verður að sætta sig við þetta.

  7. Bjarni Magnússon Says:

    Margur heldur mig sig segir máltækið. Spurning hvort að HH hafi “flutt” inn eitthvað lið. Það var a.m.k. grunsamlegt hvað þeir voru öruggir með utankjörstaðaratkvæðin. Maður las á spjöllum víðsvegar að þau atkvæði væru Alcan atkvæði að mestu.

  8. Benjamín Plaggenborg Says:

    “það er greinilegt að ráðamenn landsins ætla sér að auka álframleiðslu hérlendis um u.þ.b 300.000 tonn á ári.”

    Sumir gefa bara ekki eftir. Verður gaman að sjá hvernig næsta ríkisstjórn mun taka á málunum.

  9. Bjarni Magnússon Says:

    Það er ótrúlegt að heyra hrokann í Jóni Sigurðssyni um að stækkun sé frestað! Maður fær hroll.

Skrifaðu Athugasemd

Vinsamlegast athugið:Ef athugasemdin þín birtist ekki strax er það vegna þess að eigandi síðunnar er ekki búinn að samþykkja hana.

copyright © 2oo6 by Sól í Straumi | Powered by Wordpress

Ported by ThemePorter - template by Design4 | Sponsored by 47channel