Raflínur á Völlunum í Hafnarfirði verða lagðar í jörð
4. apríl 2007Úr Morgunblaðinu, 3.apríl 2007
RAFLÍNUR í nágrenni álsversins í Straumsvík verða lagðar í jörð við nýbyggingarsvæði á Völlunum og er búið að semja um kostnaðarskiptingu við að grafa Hafnarfjarðarlínu og Hnoðraholtslínu niður. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, sagði að samkvæmt skipulagstillögu byggingarsvæða í nágrenni álversins ættu raflínur þar að fara í jörðu. Engin breyting yrði á því, þrátt fyrir niðurstöðu íbúakosningarinnar sl. laugardag, en nú þyrfti að semja um hver myndi bera kostnað sem Alcan hefði ella borið. Viðræður voru milli Hafnarfjarðarbæjar og Landsnets um málið og sagði Lúðvík Hafnarfjarðarbæ standa frammi fyrir því að taka þær viðræður upp aftur.
Í tengslum við stækkun álvers Alcan var rætt um breytingar á átta raflínum sem nú eru loftlínur og liggja að tengivirki Landsnets við Hamranes, að sögn Árna Stefánssonar, deildarstjóra eignastýringar hjá Landsneti. Þrjár línanna eru 132 kV línur. Hafnarfjarðarlína kemur frá Öldugötutengivirkinu í Hafnarfirði, nú að hluta til í streng, önnur frá tengivirkinu í Hnoðraholti í Garðabæ og er sú í eigu Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og sú þriðja liggur til suðvesturs frá Hamranesi og stóð til að leggja hana í jörð til að rýma fyrir tveimur nýjum 220 kV línum. Búið er að semja um færslu tveggja fyrrnefndu línanna og kostnaðarhlutdeild Hafnarfjarðarbæjar, Landsnets og OR í þeim framkvæmdum, að sögn Árna. Einnig var gert ráð fyrir setja í streng tvær 220 kV línur, Hamraneslínur 1 og 2, á 1,6 km kafla, þar sem þær liggja í gegnum fyrirhugaða íbúðabyggð í Vallarhverfi Hafnarfjarðar. Þá stóð til að færa Ísallínur 1 og 2 úr núverandi línustæði, önnur átti að koma í nýtt línustæði frá Hamranesi en hin frá nýju tengivirki í Hrauntungum. Að lokum átti að færa Búrfellslínu 3b þannig að hún kæmi inn í nýtt tengivirki við Hrauntungur í stað Hamraness. Með þessum aðgerðum hefði verið dregið verulega úr sýnileika flutningsvirkja við Hamranes.
Árni sagði að Hafnarfjarðarbær hefði ekki óskað eftir því formlega að Hamraneslínur 1 og 2, sem eru 220 kV línur, yrðu settar í jarðstreng en gert er ráð fyrir því í tillögu að aðalskipulagi Hafnarfjarðar sem nú bíður staðfestingar umhverfisráðherra. Árni sagði að það yrði verulega kostnaðarsamt og 220 kV línur hefðu ekki áður verið lagðar í jörð hér á landi svo neinu næmi.
Skrifað undir Óflokkað |