Þakkir til allra
5. apríl 2007Sól í Straumi þakkar öllum þeim sem komu að kosningabaráttu okkar í Hafnarfirði undanfarna mánuði kærlega fyrir stuðninginn. Þau fjölmörgu fyrirtæki og einstaklingar sem lögðu okkur ómetanlegt lið eiga þakkir skildar fyrir sitt framlag. Við viljum líka nota tækifærið og óska Hafnfirðingum til hamingju með niðurstöðuna. Við öll sem og Hafnfirðingar framtíðarinnar munu njóta góðs af þessari niðurstöðu.
Áfram Hafnarfjörður
Skrifað undir Tilkynningar |
apríl 12th, 2007 at 14:11:00
Ég þakka sömuleiðis forráðamönnum Sólar í Straumi fyrir dugmikla baráttu. Orustan vannst en ekki stríðið.
Við þurfum að gæta þess að forráðamenn álversins reyni ekki að fara í kringum niðurstöðu kosninganna.
Þeir geta stækkað upp í 350.000 tonn, en er það ekki brot á yfirlýstum vilja meirihluta bæjarbúa?