Sól í Straumi

Þverpólitískur hópur áhugafólks um stækkunarmálið í Straumsvík


google
yahoo
bing
Sjáum saman til sólar

Guðbjörg Þórisdóttir 

NýlegarFærslur

Flokkar

EldraEfni

Tenglar

MetaGögn

Klára þarf verkin

16. May 2007

Það er undarlegt að ekkert hefur heyrst frá stjórnendum bæjarins um þau verkefni sem nú liggja fyrir í framhaldi af kosningunni um stækkun álversins í Straumsvík þann 31. mars sl. Í ljósi niðurstöðunnar blasa við ýmis verkefni sem þarf að ganga í og klára og vil ég hér benda á nokkur:

1. ganga þarf frá lóðamálinu. Hafnarfjarðarbær þarf að fá aftur til ráðstöfunar lóðina sem Alcan hafði keypt undir stækkun. Bærinn þarf á þessari lóð að halda í framtíðinni undir atvinnustarfsemi og engin ástæða til að draga á langinn að ganga frá því. Það er nokkuð víst að verðmæti lóðarinnar hefur margfaldast frá því að hún var seld en rétt er að leggja öll spilin á borðið og útskýra fyrir bæjarbúum af hverju Alcan fékk að kaupa þessa nýju lóð undir stækkun sem eignarlóð árið 2003. Álverið sjálft stendur á leigulóð í dag og hvorki bæjarbúar né önnur hafnfirsk fyrirtæki fá að kaupa eignarlóðir í bæjarlandinu.

2. Ganga þarf frá samkomulagi við Landsnet um lagningu á rafmagnslínum í jörð frá álverinu og út fyrir alla byggð. Það hefur lengi legið fyrir að ganga þyrfti frá þessu máli. Stækkunarmálið seinkaði þessari vinnu en nú þarf að klára þetta mál með hagsmuni bæjarbúa að leiðarljósi.

3. Ganga þarf frá þynningarsvæðinu í kringum álverið. Lúðvík bæjarstjóri lofaði Hafnfirðingum á opnum borgarafundi fyrir kosningar um stækkunina að hart yrði gengið eftir minnkun þynningarsvæða álversins yrði stækkunartillagan felld. Hér þarf Hafnarfjarðarbær að gera strangar kröfur og krefjast þess að öll heilsufars- og gróðurverndarmörk verði uppfyllt við lóðamörk. Það er óeðlilegt og væntanlega ekki þörf á að Hafnarfjarðarbær leggi fyrirtækinu til byggingaland bæjarins undir þynningarsvæði í framtíðinni.

4. Endurskoða þarf aðalskipulag bæjarins með tilliti til brottfalls þynningarsvæða og þeirri staðreynd að bæjarbúar höfnuðu stækkun álversins. Skipuleggja þarf framtíðarbyggingaland bæjarins til suðurs þannig að framtíðar íbúabyggð bæjarins verði innan við ofanbyggðaveginn og ekki fyrir ofan ofanbyggðaveginn eins og gert er ráð fyrir í dag.

5. Fara þarf gaumgæfilega yfir skipulagt iðnaðarsvæði í suðurhluta Hafnarfjarðar sunnan Reykjanesbrautar en þar þarf bærinn að hafa forgöngu um samstarf Umhverfisstofnunar, Heilbrigðiseftirlits, Vinnueftirlits og fleiri aðila til þess að koma umhverfismálum í viðunandi horf á því svæði.

Þetta eru verkefni dagsins sem blasa við. Áhugasamir bæjarbúar bíða eftir að bæjarstjóri og meirihlutinn í ráðhúsinu láti verkin tala.

Pétur Óskarsson

Skrifað undir Óflokkað |

Skrifaðu Athugasemd

Vinsamlegast athugið:Ef athugasemdin þín birtist ekki strax er það vegna þess að eigandi síðunnar er ekki búinn að samþykkja hana.

copyright © 2oo6 by Sól í Straumi | Powered by Wordpress

Ported by ThemePorter - template by Design4 | Sponsored by 47channel