Sól í Straumi

Þverpólitískur hópur áhugafólks um stækkunarmálið í Straumsvík


Sjáum saman til sólar

Christiane Finke 

NýlegarFærslur

Flokkar

EldraEfni

Tenglar

MetaGögn

Sólirnar skora á umhverfisráðherra

5. júní 2007

Í dag kl. 14:00 fóru fulltrúar Sólar í Straumi, Sólar á Suðurnesjum og Sólar á Suðurlandi á fund Þórunnar Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra í Alþingishúsinu og afhentu henni sameiginlega áskorun frá samtökunum sem fer hér á eftir.

Við þetta tækifæri færðu gestirnir Umhverfisráðherra þrjú sólblóm, eitt frá hverjum samtökum og óskuðu henni velfarnaðar í nýju starfi.

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - — - - -

Áskorun til umhverfisráðherra frá Sól í Straumi, Sól á Suðurnesjum og Sól á Suðurlandi.

Kæra Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra,

Við óskum þér til hamingju með embætti umhverfisráðherra og óskum þér velfarnaðar
í nýju starfi.

Með bréfi þessu viljum við skora á þig að fela stofnunum þínum, Umhverfisstofnun og Skipulagsstofnun, að draga fram og kynna fyrir almenningi heildarmynd áforma stóriðjufyrirtækja, orkufyrirtækja og orkuflutningafyrirtækja á suður- og suðvesturlandi.

Aðgengileg og skýr heildarmynd af áformunum er forsenda þess að lýðræðisleg og upplýst umræða geti farið fram á meðal landsmanna.

Allir Íslendingar eiga hagsmuna að gæta en sérstaklega þó íbúar þeirra svæða sem um ræðir.

Eftir að heildarmyndin hefur verið dregin upp og víðtæk umræða og kynning hefur farið fram teljum við eðlilegt að íbúar á svæðinu fái tækifæri til þess að taka afstöðu til málsins.

f.h. Sólar í Straumi
Pétur Óskarsson

f.h. Sólar á Suðurnesjum
Guðbjörg R. Jóhannesdóttir

f.h. Sólar á Suðurlandi
Kolbrún Haraldsdóttir
- - - - - - - - - - - - — – - - - - - - - - - - - — - -
RUV sagði frá: smellið hér til að hlusta

www.mbl.is sagði frá: smellið hér til að lesa

www.visir.is sagði frá: smelli hér til að lesa

Skrifað undir Tilkynningar |

Skrifaðu Athugasemd

Vinsamlegast athugið:Ef athugasemdin þín birtist ekki strax er það vegna þess að eigandi síðunnar er ekki búinn að samþykkja hana.

copyright © 2oo6 by Sól í Straumi | Powered by Wordpress

Ported by ThemePorter - template by Design4 | Sponsored by 47channel