Sól í Straumi

Þverpólitískur hópur áhugafólks um stækkunarmálið í Straumsvík


google
yahoo
bing
Sjáum saman til sólar

Hrönn Ingólfsdóttir 

NýlegarFærslur

Flokkar

EldraEfni

Tenglar

MetaGögn

Alcan lét starfsmenn sína safna upplýsingum um einstaklinga í Sól í Straumi og skrá í miðlægan gagnagrunn

5. July 2007

Í inngangi að úrskurði Persónuverndar frá 2. júlí sl. um ábyrgð Alcan á Íslandi hf. á söfnun persónuupplýsinga í aðdraganda íbúakosninganna um stækkun álversins í Straumsvík kemur fram að fyrirtækið lagði að starfsmönnum sínum að safna sérstaklega upplýsingum um meðlimi Sólar í Straumi og skrá í miðlægan gagnagrunn (heimild: Úrskurður Persónuverndar nr. 2007/258, www.personuvernd.is ).

Þann 14. mars 2007 sendu fulltrúar í stjórn Sólar í Straumi formlega fyrirspurn til Rannveigar Rist forstjóra Alcan á Íslandi hf. á grundvelli laga um persónuvernd þar sem m.a. var farið fram á að stjórnin yrði upplýst um hvort að skráðar hafi verið persónuupplýsingar um einstaka stjórnarmeðlimi. Samkvæmt 18 gr. laga um persónuvernd nr. 77/2000 eiga einstaklingar skýran rétt á því að fá að vita hvaða persónuupplýsingar ábyrgðaraðili hefur skráð . Fyrirspurn okkar hefur til dagsins í dag ekki verið svarað.

Forstjóri Alcan á Íslandi þarf að gera hreint fyrir sínum dyrum og svara eftirfarandi spurningum:
• Af hverju áttu starfsmenn Alcan að safna persónuupplýsingum um meðlimi Sólar í Straumi?
• Til hvers átti að nota þessar upplýsingar?
• Voru einhverjar upplýsingar skráðar um meðlimi hópsins og ef svo er, hvaða upplýsingar voru þetta, hver hafði aðgang að þeim og hvernig voru þær notaðar?

Það er ljóst í dag að Alcan á Íslandi ber fulla ábyrgð í þessu máli. Svo virðist sem fyrirtækið hafi farið langt út fyrir velsæmismörk í aðdraganda kosninganna. Sú aðferð fyrirtækisins að hindra aðgang Persónuverndar að nauðsynlegum gögnum (sjá úrskurð Persónuverndar 2007/258, kafli II, málsgrein 3) bendir til þess að hér hafi verið um yfirvegaða áætlun að ræða en ekki mistök vegna vanþekkingar.

Fyrir Hafnfirðinga, meðlimi Sólar í Straumi og íbúa þeirra sveitarfélaga sem boðið hafa Alcan lóð undir starfsemi sína er mikilvægt að öll spilin verði lögð á borðið á næstu dögum. Friðhelgi einkalífs er eitt af verðmætustu gildum okkar samfélags. Fyrirtæki og einstaklingar sem þeim stjórna eiga ekki að komast upp með að svívirða grunngildi okkar samfélags átölulaust.

Sól í Straumi

Skrifað undir Óflokkað |

16 Responses

  1. Tryggvi L. Skjaldarson Says:

    Sæll Pétur
    Starfsmenn Alcan söfnuðu engum upplýsingum um meðlimi Sólar í Straumi. Það er einfaldlega rangt.

    Kveðja Tryggvi L. Skjaldarson
    Starfsmaður Alcan

  2. Theódór Norðkvist Says:

    Margt bendir til að Tryggvi sé hér að segja ósatt. Í úrskurði Persónuverndar segir:

    “Í tölvubréfi frá Sævari Guðmundssyni, dags. 30. mars sl., segir hins vegar að honum hefði verið „heimilað” að veita Persónuvernd tímabundinn aðgang að kerfinu. Þar reyndist vera um að ræða aðgang að viðmóti fyrir almennan notanda annars vegar og vefstjóra hins vegar, sem Alcan á Íslandi hf. hafði þegar sýnt fulltrúum Persónuverndar í vettvangsheimsókninni tveimur dögum fyrr, en ekki aðgang að þeim upplýsingum sem þörf var talin á til að staðreyna hvort upplýsingar varðveittar hjá aðstandendum kerfisins væru rekjanlegar til einstaklinga. Frekari tilraunir til að fá aðgang að þeim upplýsingum skiluðu ekki árangri.”

    Síðar í úrskurðinum segir:

    “Undir lið I. er í fyrsta lagi fjallað um upplýsingar um nöfn og símanúmer viðmælenda, sem eins og áður segir eru ekki til umfjöllunar hér, í öðru lagi upplýsingar sem voru aðgengilegar starfsmönnum Alcan á Íslandi hf. á tímabilinu 10.-15. mars sl., sbr. hér að ofan, og í þriðja lagi upplýsingar um svör viðmælenda sem starfsmenn Alcan á Íslandi hf. skráðu niður eftir 15. mars og urðu, að sögn félagsins, ópersónugreinanlegar. Það hefur ekki verið staðreynt.”

    Og að lokum um svar lögfræðings Alcans:

    “…er vísað til þess að upplýsingarnar hafi, eftir 15. mars, verið ópersónugreinanlegar og að eftir því sem bréfritari best veit hafi þeim verið eytt 31. mars sl. Af því tilefni skal tekið fram að í tölvubréfi Sævars Guðmundssonar til Persónuverndar, dags. 2. apríl sl., segir að senn líði að því að upplýsingunum verði eytt og er því ljóst að misvísandi upplýsingar hafa borist um þetta atriði.”

    Ef þessum upplýsingum var ekki safnað spyr ég: Hvers vegna veitti Alcan Persónuvernd ekki fullan aðgang að gagnagrunninum, svo þeir gætu staðreynt hvort persónugreinanlegum upplýsingum hefði verið eytt?

    Höfðu þeir eitthvað að fela?

  3. Tryggvi L. Skjaldarson Says:

    Hvað í ósköpunum hefði Alcan átt að gera með persónuupplýsingar um félaga í Sól í Straumi?

    Þessi umræða er út í hött.

    Tryggvi L. Skjaldarson

  4. Pétur Says:

    Blessaður Tryggvi,

    það að safna persónuupplýsingum um andstæðinga sína er gömul og öflug en ólögleg aðferð sem m.a. var iðkuð Austur-Þýskalandi fram til ársins 1989. Upplýsingarnar voru svo notaðar til þess að koma höggi á andstæðinginn, til þess að kúga hann eða þagga niður í honum.

    Ég vona að það sé satt og rétt að Alcan hafi ekki safnað persónuupplýsingum um meðlimi Sólar í Straumi. Því miður benda upplýsingar Persónuverndar til þess að á einhverjum tímapunkti hafi einhverjir starfsmenn verið beðnir um safna sérstaklega persónuupplýsingum um meðlimi hópsins. Ég reikna með því að Persónuvernd þekki sína heimildarmenn þó svo að þeir hafi ekki lagt fram formlegt erindi undir nafni.

    Alcan á Íslandi hf., sem að eigin sögn leggur áherslu á starfsemi í sátt við umhverfi og samfélag, hefur nú þegar brotið íslensk lög í tengslum við þetta mál. Í fyrsta lagi með því að hindra Persónuvernd í upplýsingaöflun í þessum máli og í öðru lagi með því að sinna ekki kröfu stjórnarmeðlima Sólar í Straumi um upplýsingar um skráningu á upplýsingum um þá.

    Þessi umræða heldur áfram þangað til allt liggur á borðinu. Ef Alcan leggur ekki öll spilin á borðið eins og lög gera ráð fyrir munum við kæra málið til lögreglu. Lögreglan hefur víðtækari heimildir til þess að skoða málið og getur m.a. skoðað gögn Persónuverndar um heimildarmenn stonfunarinnar og rætt við þá.

    Ég skil ekki afhverju þinn vinnuveitandi er ekki samvinnufúsari í þessu máli? Það skaðar ímynd fyrirtækisns að draga að gera hreint fyrir sínum dyrum. Sannleikurinn mun liggja á borðinu fyrr eða síðar.

    Með bestu kveðju,

    Pétur Óskarsson
    Sól í Straumi

  5. Theódór Norðkvist Says:

    Því miður hafa forsvarsmenn Alcans ekki verið trúverðugir í sínum málflutningi, beitt starfsmenn sína og íbúa Hafnarfjarðar hótunum og þvingunum og meinað Persónuvernd að fá aðgang að þeim gögnum sem þeir eiga rétt á að fá samkvæmt lögum.

    Þessi umræða er því ekki út í hött. Það er full ástæða til að tortryggja fyrirtæki sem brýtur lög um persónuvernd og sendir frá sér misvísandi skilaboð, eins og ég rakti hér að framan.

  6. Valgerður Halldórsdóttir Sól í Straumi Says:

    Sælir

    Það er vonandi að þessu máli ljúki fljótt af og forstjóri Alcan svari þeim spurningum sem fyrir hann hafa verið lagðar. Það er á hans ábyrgð - ekki einstakra starfsmanna að svara fyrir þetta mál.

    http://valgerdurhalldorsdottir.blog.is/blog/valgerdurhalldorsdottir/

  7. Tryggvi L. Skjaldarson Says:

    Gjarnan vildi ég fá að sjá framan í þá starfsmenn sem segjast hafa verið beðnir um að safna upplýsingum um félaga í Sól í Straumi.
    Varla er það ótti við að missa vinnuna á þessum skelfilega vinnustað sem heldur þeim í skugganum.

    Gott væri líka að það upplýstist hver eða hverjir eiga að hafa beðið starfsmennina um að safna umræddum upplýsingunum.

    Kveðja
    Tryggvi L. Skjaldarson
    Starfsmaður Alcan og var í kosningateymi fyrirtækisins.

  8. Theódór Norðkvist Says:

    Tek undir með þér Tryggvi, að gott væri að Alcan upplýsti hverjir hafa beðið starfsmennina um að safna umræddum upplýsingum.

  9. Tryggvi L. Skjaldarson Says:

    Sæll Theódór

    Alcan bað engan um að safna persónu upplýsingum um félaga í Sól í Straumi.

    Kveðja
    Tryggvi L. Skjaldarson

  10. Pétur Says:

    Blessaður Tryggvi,

    á meðan forstjórinn og félagið gerir ekki hreint fyrir sínum dyrum liggja allir þeir sem stjórnuðu kosningastarfinu undir grun um að hafa hvatt starfsmenn til þess að safna upplýsingum um meðlimi Sólar í Straumi.

    Það er alvarlegt mál og ég skora á þig að beita þér innahús til þess að farið verði eftir landslögum og bréfi okkar verði svarað sem fyrst.

    Með bestu kveðju,

    Pétur Óskarsson

  11. Theódór Norðkvist Says:

    Persónuupplýsingum var safnað á tímabilinu 10.-15. mars, hvort sem þær snertu félaga Sólar í Straumi, eða einhverja aðra, er ekki aðalatriðið.

    Ekki hefur verið sýnt fram á að upplýsingum úr kerfinu hafi verið eytt. Lögfræðingur Alcans segir þeim hafa verið eytt 31. mars, en vinnsluaðili gagnagrunnsins sagði þann 2. apríl að þeim yrði bráðum eytt. Annar hvor þessara aðila er því að ljúga.

  12. Benjamín Plaggenborg Says:

    Gaman að sjá að hér séu enn líflegar umræður.

    Mér þykir merkilegt að nú, mörgum mánuðum eftir kosningar, eimi enn af vitleysunni þér, Tryggvi. Þú vilt einfaldlega ekki viðurkenna hið augljósa: Alcan braut lög, var beðið um að eyða gagnagrunninum og þurfti að staðfesta það. Fyrir því liggja skjalfestar heimildir. Þegar þessu er patað framan í þig segir þú frekar að umræðan sé komin í vitleysu, þar sem hún nær hápunkti sínum, frekar en að þegja eða viðurkenna hið augljósa.

    Tryggvi, ég skapaði ekki heiminn og mér þykir leitt að þú getir ekki lagað þig að raunveruleikanum, en hann er sá að SANNAÐ hefur verið að Alcan braut lög, og Alcan hefur viðurkennt það. Eina leiðin til að afneita því er að afneita raunveruleikanum, sem flestir vita að er ógerlegt.

  13. Tryggvi L. Skjaldarson Says:

    Sæll Benjamín Plaggenborg

    Alcan notaði nafnalista í tölvu með sama hætti og Sól í Straumi notaði símaskrána og blíant. Félagar í Sól í Straumi hringdu ekki stöðugt í sama fólkið frekar en við hjá Alcan.

    þegar ég hitti Pétur Óskarsson yfir kaffibolla í kosningamiðstöð Sólarinnar í aðdraganda kosningar, vissi hann eitt og annað um mig t.d. að ég hafði verið í kjarabaráttu fyrir starfsmenn álversins og virkur í verkalýðsbaráttu. Ekki hvarflar það að mér að kalla það persónunjósnir eða söfnun persónuupplýsinga.

    Því miður fór mörg umræðan út í vitleysu á aðdraganda kosningarinnar 31.apríl og hér eru á ferð eftirhreitur.

    Ég veit að þú skapaðir ekki heiminn. Mína sýn á raunveruleikann er áreiðanlega hægt að gagnrýna, en það hefur ekkert komið fram í umræðum í kringum álverið í Straumsvík sem hefur breitt henni.

    Kveðja
    Tryggvi L. Skjaldarson

  14. Benjamín Plaggenborg Says:

    Þakka þér Tryggvi fyrir skilmerkileg svör. Mér þykir það þó undarlegt að Persónuvernd amist yfir gagnagrunni ef þar eru aðeins skráð símanúmer.

  15. Tryggvi L. Skjaldarson Says:

    Sæll aftur

    Hraðferð persónuverndar suður í Straumsvík rétt fyrir kosningarnar, ásamt fréttamanni RÚV var vægt til orða tekið sérkennileg.

    Persónuvernd á ekki að blandast í deilur með þessum hætti. Dregur úr trúverðugleika stofnunarinnar því miður.

    Kveðja
    Tryggvi

  16. Þórður Ingi Says:

    Ég veit að alcan notaði allt til að þeirra starfsmenn væru samþykkir stækkun. Ég veit um eitt dæmi þar sem starfsmaður sem vann hjá fyrirtæki sem er verktaki hjá alcan var fluttur til í starfi þar sem hann sagði sýna skoðun á stækkun þar sem hann var ekki samþykkur henni. Þetta líkaði alcan ekki og óskaði eftir því að þessi starfsmaður væri ekki við vinnu við alcan. Svo alcan var ekki mjög heiðarleigir í sýnum gjörðum.

Skrifaðu Athugasemd

Vinsamlegast athugið:Ef athugasemdin þín birtist ekki strax er það vegna þess að eigandi síðunnar er ekki búinn að samþykkja hana.

copyright © 2oo6 by Sól í Straumi | Powered by Wordpress

Ported by ThemePorter - template by Design4 | Sponsored by 47channel