Alcan á Íslandi og framtíðin
3. August 2007Í aðdraganda kosningana um stækkun álversins í Straumsvík þann 31. mars sl. kom margoft fram hjá stjórnendum og starfsmönnum álversins í Straumsvík að ef fyrirtækið fengi ekki stækkun yrði því lokað. Forstjóri fyrirtækisins kynnti undir þessa orðræðu í Kastljósinu nokkrum dögum fyrir kosningar og gaf í skyn að í raun væri líklega mjög fá ár eftir yrði ekki af stækkun. Góður hagnaður af rekstrinum þýddi alls ekki að í Straumsvík yrði áfram starfsemi. Meðlimir í Sól í Straumi bentu í aðdraganda kosninganna ítrekað á að þessi málflutningur væri ekki trúverður og nú hefur komið í ljós að hér var um ódýran hræðsluáróður að ræða. Svo virðist sem að yfirmenn Alcan hafi visvítandi dreift röngum upplýsingum um framtíðarhorfur fyrirtækisins fengi það ekki stækkun bæði til starfsmannana sinna og Hafnfirðinga allra.
Michel Jacques yfirmaður Alcan sem heimsótti Ísland í júní var heiðarlegur þegar hann sagði að ekki stæði til að loka í Straumsvík og stefnt yrði að rekstri þar fram til ársins 2030. Líklegt væri að stækunin yrðí tekin annarstaðar t.d. í Þorlákshöfn eða á Keilisnesi og stefndi Alcan þá að því að reka tvö álver á Íslandi. Þessar upplýsingar fara líka heim og saman við aðra þætti sem hafa legið á borðinu allan tímann og fulltrúar Sólar í Straumi héldu á lofti. Alcan á Íslandi í Straumsvík er í góðum rekstri og það var og er ekkert í kortunum sem bendir til þess að því verði lokað fyrr en í fyrsta lagi 2024 þegar framlengdir raforkusamningar renna út. Michel Jacques bætir um betur og talar um árið 2030 sem hugsanlegt lokunarár.
Margir velta því nú fyrir sér hvað það þýðir að álverið í Straumsvík hefur nú verið selt ásamt allri Alcan samsteypunni til námafyrirtækisins Rio Tinto. Hingað til hafa eigendur fyrirtækisins haft mikil áhrif á framgöngu fyrirtækisins hér á landi. Sem dæmi um það kenndi Rannveig Rist fyrrum eigenda fyrirtækisins Alusuisse um að fyrirtækið tók nær ekkert þátt í samfélaginu í Hafnafirði áratugum saman. Þegar nýr eigandi tók við komu skilaboð um aukna þáttöku í samfélagslegum verkefnum. Nú verður spennandi að sjá hvaða skilaboð koma frá Rio Tinto um framgöngu álversins í Hafnfirsku samfélagi.
Kæru Hafnfirðingar, Það eru áfram spennandi tímar í Hafnarfirði.
Pétur Óskarsson
Skrifað undir Óflokkað |
August 14th, 2007 at 23:14:05
Sæll Pétur
Það er ekki á borðinu nein trygging fyrir rekstri í Straumsvík til lengri tíma. Það sem þú og margir aðrir andstæðingar stækkunar í Straumsvík kalla hræðsluáróður er útúrsnúningur.
Það var bent á fyrir kosningarnar að hér væri óvissa á ferð með framhaldið ef stækkun yrði felld og óvissan vissulega ennþá til staðar.
Álver á stað þar sem fyrirtækið mætir meiri velvild t.d. Þorlákshöfn, getur orðið til þess að allt rafmagn sem í boði verður nýttist betur þar og því sjálfhætt í Straumsvík.
Annar kostur væri t.d. að eftir byggingu álvers í Þorlákshöfn að rífa álverið í Straumsvík og byggja nýtt á staðnum. Það verður ekki framhjá því horft að Straumsvík er frábær staður fyrir álver. Er það er ásættanlegt af hálfu Sólarfólks að byggja nýtt álver innan lóðarmarka?
Það sorglega við málið er að stækkun í Straumsvík hefði verið úr þremur kerskálum í fjóra þegar til lengri tíma er litið. Þar hefði staðið frábært álver með leiðandi tækni á heimsmælikvarða.
En ég er sammála þér með að það eru spennandi tímar framundan.
Með kveðju
Tryggvi L. Skjaldarson