Sól í Straumi

Þverpólitískur hópur áhugafólks um stækkunarmálið í Straumsvík


google
yahoo
bing
Sjáum saman til sólar

Kolbrún Benediktsdóttir fulltrúi í barnaverndarnefnd og lögfræðingur

NýlegarFærslur

Flokkar

EldraEfni

Tenglar

MetaGögn

Álframleiðsla í Straumsvík verður aukin um 22%

29. December 2007

Á www.mbl.is í dag er vitnað í Ísal-tíðindi þar sem fram kemur að í Straumsvík verður nú farið í miklar fjárfestingar til þess að auka afköst verksmiðjunnar um 22% (ca. 36.000 tonn)

“Unnið er að því að auka framleiðslu álvers Alcans á Íslandi í Straumsvík í núverandi kerskálum. Er það gert með því að auka rafstrauminn sem fer um hvert ker og með því mun heildarframleiðslan í Straumsvík aukast um 40 þúsund tonn á ári. Þetta er meðal þess sem kemur fram í desemberútgáfu ISAL-tíðinda – fréttabréfs Alcans á Íslandi.

Til þess að af aukinni framleiðslu geti orðið þarf að ráðast í miklar fjárfestingar, að því er segir í pistli Gunnars Guðlaugssonar, framkvæmdastjóra stækkunarsviðs. Meðal annars þarf að bæta við nýrri þurrhreinsistöð og ofni í steypuskála. „Í skautsmiðju og skautskála þarf að ráðast í miklar endurbætur því stækka þarf skautin frá því sem nú er. Með þessum aðgerðum mun framleiðni álversins aukast og mun það því verða samkeppnishæfara en nú er. Samhliða tæknilegum undirbúningi straumhækkunarinnar er unnið að því að tryggja raforku til verkefnisins.”

Nýtt álver í undirbúningi
Jafnframt er unnið að undirbúningi nýs álvers, annaðhvort í Þorlákshöfn eða á Keilisnesi, þrátt fyrir óvissu í raforkumálum. „Það gerir okkur betur í stakk búin til að keppa um þá raforku sem mun verða til reiðu í framtíðinni. Þetta hefur í för með sér að við munum hleypa af stokkunum umhverfismati og fullhanna verksmiðju í samvinnu við íbúa og aðra hagsmunaaðila á þeim stað sem fyrir valinu verður,” segir Gunnar.” (heimild: www.mbl.is, 29.12.07).

Hér þarf félagið að útskýra fyrir Hafnfirðingum hvað hefur breyst. Hvað með lokunarhótunina? Eru fyrri yfirlýsingar Alcan um framtíðarhorfur fyrirtækisins hér með felldar úr gildi? Rannveig Rist spáði í Kastljósinu þremur dögum fyrir kosningar um álversstækkunina að ef Hafnfirðingar segðu nei við stækkun væru líklega aðeins örfá ár eftir í rekstrinum. Getur verið að félagið hafi beitt Hafnfirðinga hótunum til þess að reyna að hafa áhrif á niðurstöðu lýðræðislegra kosninga? Er ekki kominn tími til að gera hreint fyrir sínum dyrum?

Gleðilegt nýtt ár og góðar stundir.

Pétur Óskarsson

Skrifað undir Almennt um stækkun |

One Response

  1. Tryggvi L. Skjaldarson Says:

    Sæll Pétur og gleðilegt ár.

    Hvað þarf að útskýra? Þetta liggur alveg skýrt fyrir. Alcan er að vinna að undirbúningi að nýju álveri. Og það er ekki í Hafnarfirði.

    Varast ber að rugla saman stækkunar áformunum sem felld voru í kosningunum 31.mars s.l. og þeim áformum sem nú er verið að ræða um í Straumsvík.

    Stækkun eins og nú er rætt um má líkja við 40 ára gamla vél sem er að verða of lítil. Ekki fékkst leyfi til að kaupa nýja aflmeiri vél af fullkomnustu gerð sem gengið hefði örugg a.m.k. næstu 40-60 árin svo hugmyndir eru uppi um að setja túrbínu á þá gömlu til að auka afl hennar og treina líftímann sem mest má.

    Þetta hótunartal er orðið hálf þreytt, en það virkaði vel fyrir ykkur sem viljið álverið burt.

    Kveðja
    Tryggvi L. Skjaldarson

Skrifaðu Athugasemd

Vinsamlegast athugið:Ef athugasemdin þín birtist ekki strax er það vegna þess að eigandi síðunnar er ekki búinn að samþykkja hana.

copyright © 2oo6 by Sól í Straumi | Powered by Wordpress

Ported by ThemePorter - template by Design4 | Sponsored by 47channel