Sól í Straumi mótmælir lagningu línumannvirkja um útivistarsvæði Hafnfirðinga
25. March 2008Sól í Straumi skorar á bæjarstjórn Hafnarfjarðar að hafna tilleitan Landsnets um að loftlínur fyrir álver í Helguvík fari í gegnum bæjarlandið. Þegar tekist var á um stækkun álversins í Straumsvík kom fram gríðarleg andstaða við þau línumannvirki sem til hefði þurft.
Ef álver rís í Helguvík þarf umfangsmikla orkuflutninga í gegnum fjölmörg sveitarfélög sem eiga ríkra hagsmuna að gæta. Auk Hafnarfjarðar þyrftu Vogar, Grindavík, Reykjavík, Kópavogur, Garðabær og Ölfus að breyta skipulagi sínu. Hvað Hafnarfjörð varðar þá yrði um að ræða breytingu sem innifelur hluta af þeim áformum sem Hafnfirðingar hafa nú þegar hafnað með lýðræðislegum hætti. Af virðingu við íbúa og kjósendur er þess krafist að öllum tillögum um loftlínur fyrir hugsanlegt álver í Helguvik verði alfarið hafnað.
Sól í Straumi
Skrifað undir Tilkynningar |