Sól í Straumi

Þverpólitískur hópur áhugafólks um stækkunarmálið í Straumsvík


Sjáum saman til sólar

Hrönn Ingólfsdóttir 

NýlegarFærslur

Flokkar

EldraEfni

Tenglar

MetaGögn

Rio Tinto í Hafnarfirði tryggir sér orku til ársins 2037

9. ágúst 2008

Forsvarsmenn Alcan í Straumsvík sögðu Hafnfirðingum ósatt í aðdraganda álverskosninganna um framtíðarhorfur fyrirtækisins yrði ekki af stækkun. Forsvarsmenn Alcan í Straumsvík mótmæltu ítrekað í fjölmiðlum þeirri skoðun margra Hafnfirðinga að líklega yrði fyrirtækið starfandi í Hafnarfiði til ársins 2014 eða 2024. Starfsmönnum Alcan var uppálagt að segja Hafnfirðingum í persónulegum samtölum frá yfirvofandi lokun Alcan yrði ekki af stækkun . Það var óheiðarlegt, það var lágkúrulegt, það var skammarleg framkoma gagnvart bæjarbúum sem þurftu að taka erfiða ákvörðun.

Eftirfarandi grein birtist á www.mbl.is í dag:

Rekstur álvers í Straumsvík tryggður til 2037

Landsvirkjun segir, að með samkomulagi, sem náðst hafi við Rio Tinto Alcan, eiganda álversins í Straumsvík, um tæknilegar endurbætur á álverinu, hækki raforkuverð og rekstur álversins sé tryggður til lengri tíma en ella eða til ársins 2037.

Rio Tinto Alcan hugðist stækka álverið um tæplega 200.000 tonna ársframleiðslu með byggingu tveggja nýrra kerskála. Þessi áform náðu ekki fram að ganga þar sem íbúar í Hafnfirði lögðust gegn þeim þegar kosið var um skipulagstöllögu er sýndi þessa stækkun.

Rio Tinto Alcan átti síðan í viðræðum við Landsvirkjun um orkukaup til nýs álvers sem staðsett yrði á Reykjanesi eða í Þorlákshöfn. Þau áform voru lögð á hilluna eftir að stjórn Landsvirkjunar gerði fyrrnefnda samþykkt.

Landsvirkjun segir, að Rio Tinto Alcan sjái hins vegar fram á möguleika á að auka afkastagetu núverandi álvers án stækkunar með því að framkvæma vissar tæknilegar endurbætur á því. Við það aukist framleiðslugetan um allt að 40.000 tonnum á ári og aflþörfin um 75 MW.

Viðræðum sem átt hafa sér stað milli RTA og Landsvirkjunar um þetta mál er lokið með samkomulagi sem jafnframt inniheldur ákvæði um endurnýjun á eldra rafmagnssamningi og segir það afar mikilvægt. Landsvirkjun hefur ákveðið að hefja framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun að nýju til að uppfylla samninginn og samning við Verne Holding um rafmagnssölu til netþjónabús sem fyrirtækið hyggst koma upp á Keflavíkurflugvelli.

Landsvirkjun segir einnig, að viðræður standi nú yfir um orkusölu til nokkurra fyrirtækja sem yrðu væntanlega staðsett í Þorlákshöfn. Landsvirkjun áformar að anna orkuþörf þeirra með byggingu virkjana í neðrihluta Þjórsár. Takist að ná samningum við þau munu skapast nokkur hundruð ný störf á svæðinu.

Heimild: www.mbl.is 8. ágúst 2008

Skrifað undir Óflokkað |

13 Responses

  1. Tryggvi L. Skjaldarson Says:

    Það er kannski að bera í bakkafullan lækinn að endurtaka enn og aftur að með höfnun á deiliskipulaginu var framtíð álversins í Straumsvík sett í fullkomna óvissu. Fullyrðingar um annað eru einfaldlega rangar.

    Trúlega anda einhverjir léttar sem greiddu atkvæði gegn deiliskipulaginu nú þegar samningar liggja fyrir um tryggt rafmagn til 2037 í stað 2014.

    Líklegt má telja að margir íbúar nagi sig í handarbökin þegar þeir átta sig betur á hve miklum fjármunum bæjarfélagið missir af vegna “sigursins” í kosningunum um deiliskipulagið.

  2. Pétur Says:

    Blessaður Tryggvi, gott að sjá að þú ert á vaktinni.

    Þegar fjallað er um framtíðarhorfur fyrirtækja er ljóst að enginn veit hvernig framtíðin verður. Framtíðin er aldrei viss, en það er langt frá því að hún sé þar með “í fullkominni óvissu”. Þeir sem kynntu sér áliðnaðinn og rekstur Alcan í Straumsvík vissu að lokunarhótunin var gróft fantabragð í kosningabaráttunni.

    Opinberlega var lokunahótuninni lætt inní umræðuna undir rós en í persónulegum samtölum var starfsmönnum uppálagt að sveifla lokunarhótuninn framan í bæjarbúa. Það geta þúsundir Hafnfirðinga sem fengu persónuleg símtöl frá starfsmönnum staðfest.

    Ég hef ekki hitt einn einasta Hafnfirðing sem kaus gegn stækkun og nagar sig í handarbökin þessvegna. Þvert á móti hitti ég næstum á hverjum degi Hafnfirðinga sem kusu með stækkun er eru núna fegnir að stækkunin fór ekki í gegn. Framganga fyrirtækisins í kosningabaráttunni og ímynd nýs eigenda hafa að því er mér virðist skaðað ímynd fyrirtækisins alvarlega. Það er rík ástæða fyrir bæjarbúa að draga í efa allar upplýsingar sem koma frá ykkur í framtíðinni. Bkv, P. Óskarsson

  3. Pétur Says:

    Hér er dæmi um lokunarhótunina undir rós:

    Viðtali við Rannveigu Rist í Kastljósi fimm dögum fyrir kosningarnar:

    Jóhanna: En hvað ertu þá að segja okkur Rannveig?

    Rannveig Rist: Ég er að segja það að þetta er upphafið að endalokunum ef þetta verður fellt og það er alveg skýrt.

    Jóhanna: Og hvenær farið þið þá?

    Rannveig Rist: Það yrði ekki, svona verksmiðja er, það er erfitt að flytja, þannig að henni yrði frekar lokað.

    Jóhanna: Og hvenær yrði henni lokað?

    Rannveig Rist: Það er voða erfitt að segja til um það hvað það er nákvæmlega. Við erum með raforkusamning í einhver 6 ár í viðbót.

    Jóhanna: Og yrði það þá hámarkstími sem að álverið myndi standa?

    Rannveig Rist: Ja, það er eini tíminn sem er náttúrulega alveg skuldbundið að vera þarna áfram. Ég meina við erum búin að ganga frá því en ég meina það er, við erum ekki samkeppnisfær og þess vegna erum við að stækka og þess vegna og þess vegna erum við líka að tala um fulla stærð. Við erum ekki að tala um að bæta einhverri smásporslu við heldur gerum við þetta alveg fyrir opnum tjöldum. Við segjum 460 þúsund tonn sem hljómar auðvitað dálítið há tala en það er líka bara talan sem við erum að tala um.

    Heimild: Fjölmiðlahandrit, Kastljósið 26. mars 2007

    Bkv, P.Óskarsson

  4. Tryggvi L. Skjaldarson Says:

    Sæll Pétur

    Þegar kosið var um deiliskipulagið 31.mars 2007 lá ekki fyrir að sumarið 2008 næðust samningar um sölu á rafmagni til 2037. Svör forstjórans voru fullkomlega eðlileg á þeim tíma.

    Þetta gast hvorki þú eða aðrir séð fyrir. Bara giskað.

    Hef bent á það áður að framleiðsluaukningin er fengin með því að hleypa meiri straum á gömlu kerin.

    Þetta er hægt að gera þegar mjög hæfur mannskapur er til staðar.

    Tekjutapið fyrir Hafnarfjörð vegna stöðunar í dag hleypur á milljörðum á milljarða ofan. Það er mergur málsins.

    Kosningin kom líka í veg fyrir að hægt væri að hefja enduruppbyggingu í Straumsvík og halda álverinu í fremstu röð hvað varðar tækni.

    Það er væntanlega það sem þið Sólarfólk fagnið hvað mest?

  5. Pétur Says:

    Sæll Tryggvi,

    þessi sami forstjóri sagði áður en að ákveðið var að nota lokunarhótunina í kosningabaráttunni í viðtali við RUV 8. janúar 2007

    “Alcan í Straumsvík lifir lengur en önnur álver af sömu stærð vegna sérhæfðar framleiðslu”.

    Þegar kosið var um álversstækkun voru 12 af 22 álverum Alcan af sömu stærð eða minni og hvergi í upplýsingum til fjárfesta fyrirtækisins var gefið til kynna að framtíð álversins í Straumsvík eða annara af sömu stærð væri annað en björt. Lokunarhótunin var heimatilbúin ætluð til þess að hræða Hafnfirðinga og starfsfólkið til þess að samþykkja stækkun. Það að senda Hafnfirðingum andlitsmyndir af Starfsmönnum álversins átti svo að kynda undir sektarkennd þeirra sem voru á móti stækkun. Þetta voru bæði óheiðarlegar og lágkúrulegar aðferðir sem sköðuðu ímynd fyrirtækisins.

    Varðandi tekjur Hafnfirðinga af álverinu þá hafa þær hækkað verulega þrátt fyrir að ekki hafi orðið af stækkun. Það var orðið löngu tímabært, framlag þess til samfélagsins í Hafnafirði hefur verið til skammar í gegnum árin.

    En það er einfaldlega ekki allt til sölu Tryggvi og það eru ekki allir tilbúnir til þess að fórna lífsgæðum fyrir peninga sem betur fer.

  6. Tryggvi L. Skjaldarson Says:

    Sæll aftur Pétur

    Það breytir ekki staðreyndum málsins þótt þú endurtakir í sífellu útúrsnúningana sem hafðir voru uppi í aðdraganda kosninganna 31. mars 2007.

    Tekjurnar af álverinu til Hafnarfjarðar hafa ekki hækkað nema um brot af því sem hefði orðið. Hafnfirðingar missa að miklum tekjum. Þúsundum milljóna á næstu árum og svo öll störfin sem voru í boði. Þetta veist þú alveg en horfir einhverra hluta vegna framhjá því.

    Ekki hef ég grænan grun um hvaða lífsgæði voru varin með því að hafna stækkununni.

    Innantóm slagorð held ég.

    Veit aftur á móti að ef íbúar höfuðborgarsvæðisins vilja anda að sér fersku lofti sýna mælingar að það sé öruggast í nágrenni álversins í Straumsvík.

    Þessa mánuðina er að koma í ljós að við Íslendingar erum ekkert greindari en gengur og gerist í samfélagi þjóðanna og verðum ekki öll rík á því að taka lán og borga þau með því að taka stærra lán.

    Ég spái því að margir, margir Hafnfirðingar sem greiddu atkvæði gegn deiliskipulaginu eigi eftir að naga handarbökin og neglurnar líka þegar draumalandsglígjan fjarar út og kaldur raunveruleikinn blasir við.

  7. Pétur Says:

    Blessaður Tryggvi,
    ég skil vel að þú viljir ekki tala um kosningabaráttuna og þær aðferðir sem fyrirtækið beitti í henni. Lokunarhótunin, loforðið um milljónir inná hvert heimili, atvinnubloggið, maður á mann aðferðin, myndafalsanirnar, söfnun persónuupplýsinga í gagnagrunn, boð á íþróttaleiki og tónleika ásamt auglýsingum fyrir milljónatugi dugði ekki til.

    Ef þetta hefði virkilega verið góð hugmynd hefði aðeins þurft að kynna hana með einum bæklingi og Hafnfirðingar hefðu hlaupið á kjörstað til þess að samþykkja hana. Þá hefði Alcan ekki þurft að hóta lokun og lofa heimilum í bænum peningum.

    Hafnfirðingar sögðu nei takk og eftir stendur blómlegur bær með öflugt atvinnulíf sem bæjarbúar geta verið stoltir af. Þó það sé gott að búa í Kópavogi þá er ennþá best að búa í Hafnarfirði.

  8. Tryggvi L. Skjaldarson Says:

    Sæll enn og aftur Pétur

    Ekki veit ég hvernig þú kemst að þeirri niðurstöðu að ég vilji ekki tala um kosningabaráttuna og þær aðferðir sem fyrirtækið beitti.

    Ég er meir en til í að skoða aðferðirnasr sem báðir aðilar beittu í kosningabaráttunni.

    Það eina sem ég fer fram á er að þú og félagar þínir farið rétt með.

    Gaman væri t.d. að skoða hvernig þér tókst að leika litla manninn í slagnum við stóra skrímslið.

    Hvernig ykkur tókst að leggjast yfir unga fólkið í framhaldsskólunum með einn kennara í fjölmiðlafræðum í broddi fylkingar.

    Eða fjölmiðlafólkið sem tók lítt rökstudda afstöðu með ykkur.

    Eða Framtíðarlandið, Vinstri Græna, Ingibjörgu Sólrúnu, listaspírurnar allar og svona er hægt að telja áfram.

    Eftir stendur að þið höfðuð í gegn gamla álverið áfram og tugi milljarða tap fyrir Hafnarfjörð.

    Auðvitað var 3 milljarða lánið sem bærinn tók í vetur bara tekið af gamni.

  9. Pétur Says:

    Blessaður Tryggvi, það er hressandi að rifja þetta mál aðeins upp.

    Ég talaði fyrir hóp fólks sem var á móti þessu. Ég þurfti ekkert að leika litla manninn og “skrýmslið” kynnti sig sjálft til sögunnar.

    Ég fór sjálfur í Flensborg og hitti þar nemendur sem vildu stækkun. Ég gat ekki séð að einhver kennari réði þar skoðunum nemenda á þessu máli.

    Ég er algjörlega ósammála því að fjölmiðlar hafi tekið afstöðu með okkur. Ég upplifði fagmennsku víðast hvar hjá fjölmiðlunum nema á Útvarpi sögu þar sem ekki var gerður skýr greinarmunur á ritstjórnarefni, kostuðu efni og auglýsingum.

    Upptalning þín á Framtíðarlandinu og fleirum er furðuleg. Það tóku hópar afstöðu með og á móti. Sambærileg upptalning á hinn bóginn væri Framsóknarflokkurinn, Hagur Hafnarfjarðar, Jón Sigurðsson, Þorgerður Katrín og félag málmiðnaðarmanna.

    Þú staglast á milljörðum á milljarða ofan sem Hafnarfjörðu á að vera að tapa í stað þess að svara gagnrýni minni á óheiðarlegar baráttuaðferðir Alcan.

    En hér aðeins um milljarðana: Í deiliskipulagstillögunni voru engar skuldbindingar á hendur Alcan. Það var ekki einu sinni kveðið á um hvar á lóðinni stækkað álver ætti að standa (bygginareitur) hvað þá að Alcan greiddi eitthvað til bæjarfélagsins fyrir “já” við skipulagstillögunni. Peningaloforðin voru að stærstum hluta byggð á því að allir væru atvinnulausir og allt væri í rúst þegar álverið dytti af himnum ofan. Forsendurnar voru jafn óraunhæfar og aðferðirnar við að skrúfa hugsanlegar tekjur sem berast áttu hverju heimili upp úr öllu valdi. Við skýrðum á heimasíðu Sólar í Straumi 26. mars 2007 allar hliðar þessa máls og útskýrðum fyrir áhugasömum allar upphæðir sem nefndar voru til sögunnar í kosningabaráttunni. Alcan hinsvegar sauð eigin tölusúpu saman úr tveimur mismunandi niðurstöðum (SA sem er ekki óháður aðli og Hagfræðistofnun) og kynnti þær ranglega sem niðurstöðu Hagfræðistofnunnar og þá einu réttu. Niðurstða Alcan var loforðið um stórar upphæðir inná hvert heimili í bænum sem kynnt var massíft með auglýsingamilljónum félagsins.

    Ég veit að bæjarstjóður hefði fengið í framtíðinni meiri tekjur af stækkuðu álveri en við höfum í dag og það vissu Hafnfirðingarnir sem sögðu nei takk líka. Flest sveitafélög á Íslandi hafa engar tekjur af álframleiðslu, er það áhyggjuefni?

    Það er síðan allt annar handleggur hvernig Samfylkingin í Hafnarfirði glannar með bæjarsjóð um þessar mundir. Þar dunar dansinn og mér sýnist enginn ætli að láta renna af sér fyrr en eftir sveitastjórnarkosningar 2010.

    Álver hjálpar ekki fjárálaóreiðu kratanna í Hafnarfirði enda eigum við þeim að þakka að Hafnarfjörður er eitt skuldsettasta bæjarfélag á landinu og það þrátt fyrir álbræðslu í meira en 40 ár.

    3gja milljarða lánið sem kratarnir fengu á Írlandi á dögnum á að nota til þess að fjármagna stórvirki sem opnuð verða og gangsett rétt fyrir sveitastjórnarkosningarnar 2010. Þar ætlar bæjarstjóri að glansa með borðaskærinn. Lánið hefðu þeir tekið óháð stækkun álversins í Straumsvík.

  10. Tryggvi L. Skjaldarson Says:

    Já sæll Pétur, það er hressandi að rifja þetta upp.

    Víst lékstu litla manninn og lékst vel. Einnig dróstu ekki af þér við að halda að fólki að Alcan í Straumsvík væri eitthvað ekki nógu gott.

    Þú veist vel að í Flensborgarskóla og víðar voru og eru kennarar sem beittu sér af fullum þunga gegn álverinu.

    Frá degi eitt áttum við sem reyndum að halda uppi sjónarmiðum álversins á brattann að sækja hjá fjölmiðlum. það er einfaldlega staðreynd.

    Ég get haldið áfram að telja upp og nefnt t.d. Persónuvernd sem kom hlaupandi með RÚV í eftirdragi suður í Straumsvík.

    Kompás þátturinn rétt fyrir kosninguna. Þar var ekki áhugi á efni sem kom álverinu vel. Og nota bene þar fór kennari, gott ef ekki er í Flensborg, langt út í móa í fullyrðingum sínum um áhrif brennisteins frá álverinu á nágrennið. Sennilega eitt versta klámhöggið af mörgum sem álverið þurfti að þola í aðdraganda kosninganna.

    Auðvitað staglast ég á milljörðunum. Ég vil halda því til haga að Hafnfirðingar missa af a.m.k. þúsund milljónum (1000.000.000.-) í beinum og óbeinum tekjum á ári við það að stöðva þær hugmyndir sem voru um stækkun. þetta snýst ekkert um það hvort Samtök Atvinnulífsins eru hlutlaus eða ekki. kaldur raunveruleiki, því miður.

    Ekki vil ég fara langt inn í bæjarpólitíkina í Hafnarfirði, en ég veit það er nokkuð algengt að minnihluti hvort sem hann snýr að ríki eða sveitarfélagi býr gjarnan yfir lausnum t.d. hversu sjálfsagt það er að hækka laun m.a.umönnunarstétta og kennara.

    Hversu sjálfsagt það er að styðja æskulýðinn til dáða og sinna gamalmennum með reisn.

    En þegar á hólminn er komið þá stranda góð mál gjarnan á hverju? Jú,skorti á peningum.

  11. hþh Says:

    Góðan daginn. Ég skynja samvikubit hjá Pétri.Það er nauðsynlegt að halda til haga og rifja upp þann áróður sem sólarliðið hélt fram í kosningarbaráttunni.

  12. Pétur Óskarsson Says:

    Blessaður Tryggvi, fyrirgefðu sein svör. Ég þarf öfugt við þig að skrifa inná þessa síðu í frítíma mínum :-)

    Ég skil ekki þessa kvörtun þína um litla manninn sem ég á að hafa leikið. Telur þú að ég hafi vilt á mér heimildir?

    Það er rétt hjá þér að víða beitti fólk sér af þunga gegn stækkun álversins. En ekki gleyma því að á sama hátt beittu sér víða einstaklingar af miklum þunga fyrir stækkun álversins. Það er rangt mat hjá þér að skoðanir einhvers kennara í Flensborg hafi vegið þar þyngra en skoðanir margra annara sem tóku afstöðu með og á móti.

    Persónuvernd hélt verndarhendi yfir Alcan með því að tilkynna komu sína með nokkra daga fyrirvara. Rannsókninni á gagnagrunnsmálinu var klúðrað og ykkur tókst að láta eyða gögnum án þess að Persónuvernd gæti skoðað málið.

    Þið áttuð alls ekki á brattan að sækja hjá fjölmiðlum. Ykkar sjónarmið komu allstaðar fram. Að auki voruð þið með tugi launaðra sérfræðinga á ykkar snærum til þess að matreiða fróðleikinn um stækkunina fyrir Hafnfirðinga. Þið keyptuð fyrir tugi milljóna auglýsingatíma til þess að koma ykkar sjónarmiðum á framfæri. Heilsíður í blöðum, gjafir til Hafnfirðinga, fríir tónleikar, fríir handboltaleikir og flugeldasýningar dugðu ekki til. Ástæðan var einfaldlega sú að þetta var vond hugmynd sem bæjarbúar afþökkuðu.

    Tölur þínar um glataðar tekjur bæjarsjóðs verða ekki sannar þó að þú staglist á þeim.

    Þrátt fyrir ofurloforð Alcan um stórar summur inná hvert heimili sögðu Hafnfirðinar nei takk, ekki gleyma því.

  13. Tryggvi L. Skjaldarson Says:

    Sæll enn og aftur Pétur

    Rak við á síðunni og sá síðbúin viðbrögð þín við síðustu athugasemdum mínum.

    Þú segir: “Ég þarf öfugt við þig að skrifa inná þessa síðu í frítíma mínum”.

    Dæmigerð smjörklípa og útúrsnúningur. Það kemur málinu ekkert við hvar ég eða þú ert staddur hverju sinni þegar hripaðar eru niður línur á netið.

    Þú spyrð: “Telur þú að ég hafi vilt á mér heimildir?”

    Nei Pétur það tel ég ekki. Þú sýndir snilldartakta við að afla málsstað þínum stuðning.
    Málstað sem ég held að tíminn muni leiða í ljós að hafi ekki verið skynsamur.

    Þú segir: “Það er rangt mat hjá þér að skoðanir einhvers kennara í Flensborg hafi vegið þar þyngra en skoðanir margra annara sem tóku afstöðu með og á móti.”

    Þið unnuð kosningarnar með 45 manns. Þið höfðuð unga fólkið með ykkur. Það var “inn” að vera á móti. Doktorinn sem tjáði sig með eftirminnilegum hætti í Kompásþættinum kostulega er ekki eini kennarinn. Við skulum ekki gleyma kennaranum í fjölmiðlafræðunum.

    Persónuverndarmálið er og verður brandari og þar fenguð þið nóg af skít til að smyrja á Alcan. það er óþarfi fyrir þig að kvarta þar.

    Það tókst ekki að matreiða fróðleikinn um stækkunina fyrir Hafnfirðinga. Það er alveg rétt.

    Spurning hvort ekki ætti að endurtaka skoðanakönnun meðal Hafnfirðinga samhliða næstu sveitarstjórnarkosningum?

    Kanna hvort bæjarbúar séu enn á því að þúsund milljónir í viðbótartekjur árlega skipti ekki máli fyrir bæjarfélagið.

    Ég skil betur afstöðu þína gegn stækkun í Straumsvík ef þú hefur haldið að þúsund milljóna tekjuaukningin sem á borðinu lá væri bara plat

Skrifaðu Athugasemd

Vinsamlegast athugið:Ef athugasemdin þín birtist ekki strax er það vegna þess að eigandi síðunnar er ekki búinn að samþykkja hana.

copyright © 2oo6 by Sól í Straumi | Powered by Wordpress

Ported by ThemePorter - template by Design4 | Sponsored by 47channel