Rio Tinto er eigandi Alcan á Íslandi hf.
19. September 2008Eitthvað hefur álverið í Straumsvík farið varlega í að kynna nýjan eiganda álversins til sögunnar hér á landi. Í apríl á þessu ári kom loksins fréttatilkynning um nýjan eiganda fyrirtækisins. Íslenska fyrirtækið heitir enn Alcan á Íslandi hf. og verksmiðjuheitið innan Rio Tinto Alcan samsteypunnar er áfram ISAL. Rio Tinto er mjög umdeilt alþjóðlegt námafélag sem keypti Alcan í Kanada seint á síðasta ári. Álframleiðsla fyrirtækisins er rekin undir sameinuðum nöfnum félaganna. Hjá Rio Tinto Alcan eru nú 73 þúsund starfsmenn og starfar félagið í 61 landi víða um heim.
Skrifað undir Um álvinnslu |