Sól í Straumi

Þverpólitískur hópur áhugafólks um stækkunarmálið í Straumsvík


Sjáum saman til sólar

Elsa Dóróthea Gísladóttir 

NýlegarFærslur

Flokkar

EldraEfni

Tenglar

MetaGögn

Rio Tinto fær rauða spjaldið í Noregi

19. september 2008

Norski olíusjóðurinn, eftirlaunasjóðurinn sem stór hluti olíuvinnslutekna Norðmanna rennur í, mun ekki lengur fjárfesta í bresk-ástralska námufyrirtækinu Rio Tinto, móðurfélagi Alcan á Íslandi, sem rekur álverið í Straumsvík. Ástæðan er námuverkefni, sem Rio Tinto er með í Indónesíu en því fylgir gríðarleg mengun.

Norska ríkisútvarpið, NRK, hefur eftir Kristin Halvorsen, fjármálaráðherra, að engar upplýsingar liggi fyrir um að Rio Tinto muni breyta um stefnu í Indónesíu og olíusjóðurinn geti ekki fjárfest í slíkum félögum.

Olíusjóðurinn seldi fyrir tveimur árum hlutabréf í námufélaginu Freeport McMoRan vegna þátttöku félagsins í umdeildum framkvæmdum í á Papua í Indónesíu við svonefnda Grasbergnámu, sem er stærsta gullnáma heims og þriðja stærsta koparnáma í heimi.

Í kjölfarið var bent á að Rio Tinto ætti 40% í Freeport McMoRan. Í apríl í ár bað norska fjármálaráðuneytið seðlabanka landsins að selja bréf olíusjóðsins í Rio Tinto Plc. og Rio Tinto Ltd. Þeirri sölu er lokið en alls voru seld hlutabréf fyrir 4419 milljónir norskra króna í Rio Tinto Plc. og fyrir 430 milljónir norskra króna í Rio Tinto Ltd. Samtals nemur þetta nærri 77 milljörðum íslenskra króna.

NRK segir að við framkvæmdirnar í Indónesíu sé um 230 þúsund tonnum af jarðefni út í vatnakerfi svæðisins og þessi losun muni aukast eftir því sem námugreftrinum vindur fram. (heimild: Morgunblaðið 10. september 2008)

Skrifað undir Um álvinnslu |

Skrifaðu Athugasemd

Vinsamlegast athugið:Ef athugasemdin þín birtist ekki strax er það vegna þess að eigandi síðunnar er ekki búinn að samþykkja hana.

copyright © 2oo6 by Sól í Straumi | Powered by Wordpress

Ported by ThemePorter - template by Design4 | Sponsored by 47channel