Sól í Straumi

Þverpólitískur hópur áhugafólks um stækkunarmálið í Straumsvík


Sjáum saman til sólar

Jón William Sewell 

NýlegarFærslur

Flokkar

EldraEfni

Tenglar

MetaGögn

Yfirlýsing frá Sól í Straumi 15. október 2008

15. október 2008

Samtökin Sól í Straumi vilja ítreka í ljósi umræðna um mögulega stækkun álvers Rio Tinto í Straumsvík mikilvægi þess að bæjarstjórn Hafnarfjarðar virði niðurstöðu lýðræðislegra íbúakosninga sem fram fóru 31. mars 2007 í bænum.

Íbúakosningarnar fóru fram eftir ítarlegar umræður og kynningu á stækkunarmálinu. Kosningaþátttakan var mikil, niðurstaðan skýr og hana ber að virða. Í aðdraganda þeirra kosninga lýsti bæjarstjóri því ítrekað yfir, bæði á fundum og í fjölmiðlum, að stækkunarmálið yrði ekki tekið upp aftur á þessu kjörtímabili. Við Íslendingar þurfum nú, meira en nokkru sinni áður, á stjórnmálamönnum að halda sem standa við orð sín.

Komi til þess að leggja eigi málið aftur fyrir bæjarbúa er eðlilegt að gera það samfara næstu bæjar- og sveitastjórnarkosningum vorið 2010 enda mun núverandi ríkistjórn leggja fram rammaáætlun um náttúruvernd og nýtingu orkuauðlinda haustið 2009. Þá fyrst mun skýrast hvaða orka mun standa Rio Tinto til boða og þá hvort að Íslendingar vilja auka hlutdeild áliðnaðar í ráðstöfun á
orkuframleiðslu landsins.

Ríkistjórn Íslands vinnur nú að rammaáætlun sem ætlað er að skapa þjóðarsátt um ráðstöfun landsins okkar og vera leiðarljós til framtíðar. Varla þarf að minna stjórnvöld á þá hættu sem skapast getur í samfélaginu skorti viðeigandi leikreglur. Hrun bankakerfisins með ófyrirsjáanlegum afleiðingum fyrir fólkið í landinu og komandi kynslóðir er merki þess. Hættan er sú
að sambærilegar aðstæður geti orðið til í orku og umhverfismálum þar sem stjórnvöld hafa í dag ekki næg stjórntæki til áhrifa.

Sól í Straumi

Skrifað undir Óflokkað |

12 Responses

  1. Guðmundur R. Says:

    Góðan daginn
    Má þá skilja þetta á þann veg að samtökin séu mótfallin þeim lýðræðislega rétti Hafnfirðinga að fara fram á nýjar kosningar með því að safna undirskriftum 25% kjörgengra íbúa?

    Kv.
    Guðmundur

  2. Tryggvi L. Skjaldarson Says:

    þegar þjóðin missir buxurnar niður á hæla dugar ekki að stytta bara skrefin.

    Það þarf að leita allra leiða til að búa til verðmæti í landinu.

    Stækkun í Straumsvík eins og kynnt var fyrir kosningarnar um deiliskipulagið í fyrra er góður kostur í stöðunni.

    Stundum er að hika er sama og að tapa.

  3. Pétur Says:

    Blessaður Guðmundur, við erum ekki á móti því að aftur verði kosið um málið. Við teljum hinsvegar fráleitt að hægt sé að láta íbúa bæjarins kjósa aftur og aftur um sama málið innan kjörtímabilsins. Íbúakosningar eru einskis virði ef þær gilda bara rétt á meðan niðurstaða þeirra er lesin upp.

  4. Eyrún Ósk Jónsdóttir Says:

    Heyr, heyr. Ég er fylgjandi íbúðarkostningum. En ekki að haldnar séu kostningar, og peningum sé eytt í allt sem því fylgir á nokkra mánaðar fresti um sama málið. Það er fáránlegt. Því hvað gerist eftir þessar kostningar? Önnur kostning, og aftur önnur, í hvert sinn sem ‘aðstæður breytast’? Þesskonar hamfararkapitalísmi minnir heldur mikið á Ambulance chasers. Nú þegar heimsmarkaðsverð á áli hefur fallið um 25 % (http://www.si.is/upplysingar-og-utgafa/frettasafn/2008/09) er ekki rétti tímin til að stökkva til að skella öllum eggjunum sínum í sömu álkörfuna. Lærum að mistökum útrásarvíkingana, förum okkur hægt, stefnum að sjálfbærni og veðjum ekki öllu á sama hestinn.

  5. Guðmundur Says:

    Sæll Pétur
    Ert þú ss. að segja að þegar það hentar ekki málsstaðnum að fara að leikreglum lýðræðisins þá ert þú ekki stuðningsmaður íbúalýðræðis? Er það ekki lýðræðislegur réttur Hafnfirðinga að ákveða hvort að þeir vilji kjósa aftur eða ekki?

    Eyrún. Verð á áli fer að öllum líkindum ekki lægra en þetta að svo stöddu (er um 2100 USD/t). Það er hinsvegar 50% hærra en meðalverð síðustu 10 ára (1400 USD/t) sem þýðir að álverð er enn mjög hátt og spá flestra sérfræðinga er að verðið eigi einungis eftir að hækka í framtíðinni jafnvel uppfyrir 4000 USD/t. Álver eru mjólkurkýr sem alltaf skila sínu hvernig sem líður kvótabresti eða fjárglæfrum útrásarvíkinga. Það vantar kanski glamúrinn en sígandi lukka er jú best eins og sannast kanski vel á atburðum undanfarinna vikna.

  6. Þórður Ingi Bjarnason Says:

    Ef á að verða íbúkostning aftur þá á að hafa hana á sama tíma og næstu kostningar til sveitastjórna. Svo er það annað að stækkun álversins mun ekki bæta ástandið i efnahagsmálum þjóðarinnar. það má fara að horfa á fleir hluti en álver. Andri Snær er með góða grein í fréttablaðinu um helgina sem allri ættu að lesa og þar kemur fram hvað álver er að skila litlu til landsins.

  7. Guðmundur Says:

    Það er skrýtið hvað virðingin fyrir lýðræði er lítil hjá fólki þegar það hentar ekki málstaðnum.

  8. Pétur Says:

    Blessaður Guðmundur, þú hefur greinilega ekki lesið svarið frá mér eða villt ekki skilja það. Við höfum ekkert á móti kosningum um málið. Teljum það hinsvegar vera dellu að kjósa um sama málið aftur og aftur á sama kjörtímabili.

  9. Axel Says:

    Langar að benda á grein í Fréttablaðinu 21.10.2008 bls 17.
    Eftir Jóhannes Geir Sigurgeirsson.
    Þar er farið aðeins yfir útreikninga Andra.

  10. Guðmundur Says:

    Sæll Pétur
    Ég bæði las svarið og skildi það. Ákvæðið um að 25% kjósenda geti farið fram á kosningar er einfaldlega sett inn til þess að hægt sé að taka upp vitleysisgjörninga eins og síðustu kosningar. Það væri freklega gengið á lýðræðislegann rétt kjósenda að fresta kosningum um 2 ár og trúlega brot á lögum um góða stjórnsýsluhætti. Það fer reyndar að læðast að mér sá grunur að þið þorið ekki í nýjar kosningar.

  11. Pétur Says:

    Blessaður Guðmundur, hugmyndin um að 25% íbúa geti óskað eftir að einhver ákvörðun verði sett í kosningar er mjög góð? Hafi slíkar kosningar hinsvegar ekkert gildi er betur heima setið en af stað farið. Þeir sem ekki eru sáttir við niðurstöðuna geta farið fram á kosningar aftur og aftur um sömu ákvörðunina á sama kjörtímabilinu. Upphaflega hugmyndin um að skjóta ákvörðunum til bæjarbúa og láta þá ÁKVEÐA hlutina hefur þá enga þýðingu lengur.

    Það er hjákátlegt að sjá þig reyna að bera á okkur óvirðingu fyrir lýðræðislegum vinnubrögðum og á sama tíma kalla síðustu íbúakosningar þar sem meirihluti bæjarbúa tók afstöðu gegn stækkun álversins “vitleysisgjörning”.

  12. Guðmundur R. Says:

    Sæll Pétur
    Ég átti alls ekki við að síðustu kosningar hefði verið vitleysisgjörningur. Það sem ég átti við var að ég veit að aðeins nokkrum dögum eftir kosningarnar hafði ég hitt fjölda manns að máli sem sáu eftir því að hafa greitt atkvæði á móti. Möguleikinn að fara fram á nýjar kosningar er til staðar fyrir fólk til að endurskoða ákvörðun sína í ljósri breyttra aðstæðna. Þér má finnast lýðræðið hjákátlegt þegar það vinnur ekki með þér en fyrir mér er lýðræðið mikilvægt og þín skoðun er sú að svipta eigi íbúa Hafnarfjarðar þeim rétti sínum að endurskoða sína afstöðu.

Skrifaðu Athugasemd

Vinsamlegast athugið:Ef athugasemdin þín birtist ekki strax er það vegna þess að eigandi síðunnar er ekki búinn að samþykkja hana.

copyright © 2oo6 by Sól í Straumi | Powered by Wordpress

Ported by ThemePorter - template by Design4 | Sponsored by 47channel