Rio Tinto og íbúakosningar
22. October 2008Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar Gunnar Svavarsson hitti naglann á höfuðið þegar hann mótmælti hástöfum umræðum um endurtekna atkvæðagreiðslu um stækkun álvers Rio Tinto í Straumsvík á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar þriðjudaginn 14. október síðastliðinn. Í fyrsta lagi sagði Gunnar að málið væri ekki á dagskrá bæjarstjórnar, í öðru lagi sagði hann að ekki lægu fyrir hjá bæjarfélaginu áætlanir Rio Tinto um stækkun álversins og í þriðja lagi væri ekki fyrirsjáanlegt að hægt væri að útvega orku í þetta verkefni næstu árin og það væri fásinna að fara af stað með þetta mál án þess að búið væri að tryggja orku til verkefnisins.
Þetta voru orð í tíma töluð enda mikið í húfi fyrir Samfylkinguna sem ber ein og óstudd fulla árbyrgð á þeim farvegi sem stækkunarmál Rio Tinto í Straumsvík er nú í. Hugsanlegt er að nokkuð ábyrgar hugmyndir um lýðræðislega aðferðafræði séu nú að breytast í Hafnarfjarðabrandara í boði Samfylkingarinnar verði kosið um sama málið margoft á sama kjörtímabili.
Þegar gengið var til kosninga um stækkunarmálið árið 2007 lofaði bæjarstjóri ítrekað á fundum og í fjölmiðlum að aðeins yrði kosið einu sinni um þetta mál á þessu kjörtímabili. Við treystum því að bæjarstjóri standi við orð sín og virði niðurstöður lýðræðislegra kosninga .
Við sem stöndum að Sól í Straumi skorum á Samfylkinguna í Hafnarfirði að fjalla um þetta mál af ábyrgð og festu. Á landsvísu vinnur Samfylkingin í ríkisstjórn að rammaáætlun um nýtingu og verndun Íslands. Fyrst þegar sú áætlun liggur fyrir haustið 2009 mun verða ljóst hvaða virkjunarkostir standa til boða. Þá mun ekki vera ljóst hversu stóran hlut af raforkuframleiðslu landsins þjóðin ætlar til álframleiðslu. Þeim fjölgar hratt þessa dagana sem telja að nú sem aldrei fyrr þurfi að huga að áhættudreifingu skuldsettra orkufyrirtækja í almannaeigu.
Bæjar- og sveitastjórnarkosningarnar vorið 2010 eru góður tími til að kjósa aftur um stækkunarmálið hugnist mönnum það enn. Þá gætu allar forsendur fyrir þessa ákvörðun legið á borðinu og bæjarbúar tekið ábyrga afstöðu á grundvelli þeirra.
Pétur Óskarsson
Höfundur er talsmaður Sólar í Straumi
Skrifað undir Óflokkað |
October 23rd, 2008 at 13:27:08
Sæll Pétur
Enn ert þú við sama heygarðshornið. Veit ekki betur en að Lúðvík hafi lýst því yfir margoft að Hafnarfjarðarbær muni ekki hafa frumkvæði að öðrum kosningum á þessu kjörtímabili. Hann hefur oftsinnis tekið það fram að íbúarnir verði að fara fram á nýjar kosningar ef kjósa eigi aftur á kjörtímabilinu og væntanlega stendur hann við það.
October 26th, 2008 at 09:57:06
Álverið vantar bara leyfi frá Hafnfirðingum til að nota lóðina sem Hafnarfjarðarbær seldi félaginu árið 2003.
Umhverfismat og starfsleyfi liggja fyrir.
Orkusamningar eru gerðir við orkufyrirtækin en ekki við Hafnarfjarðarbæ og koma leyfinu með að nýta lóðina lítið við.
Hefur það farið framhjá einhverjum að við Íslendingar erum í fjárhagslegum vanda? Hafnfirðingar eru engin undantekning þar og að halda til streitu andstöðu við uppbyggingu í Straumsvík er erfiðara að skilja með hverjum deginum sem líður.
October 29th, 2008 at 08:43:15
Mér barst til eyrna fregn sem að ég vona að sé ekki sönn að forsvarsmaður frá Sól í Straumi hafi rifið niður undirskriftalista með nöfnum á og með því gengið á rétt Hafnfirðinga til að láta skoðanir sínar í ljós. Ég vona að menn séu þroskaðri en þetta.
October 29th, 2008 at 09:39:35
Blessaður Guðmundur, það er ekki málstað þínum til framdráttar að bera gróusögur á torg.
October 30th, 2008 at 14:58:01
Sæll Guðmundur R.
Ertu til í að koma fram undir fullu nafni því þá er betra að átta sig á hvort þú ert handbendi Rio Tinto, skrifir athugasemdir þínar í vinnunni og berir hagsmuni þeirra fyrir brjósti. Nafnleynd finnst mér nefnilega alltaf veikja málstað þeirra sem hana nota.
kv, Bergur Ólafsson - meðlimur í Sól í Straumi