Rio Tinto er ekki jólasveinninn
31. October 2008Í gær var heilsíðuauglýsing í Fjarðarpóstinum frá Rio Tinto (með einum eða öðrum hætti) um undirskriftarherferð til stuðnings nýjum íbúakosningum um stækkun álvers Rio Tinto. Einnig grein frá starfsmanni álversins um að nú sé lag að redda atvinnumálum í Hafnarfirði og ef ekki bara gjaldeyrismálum þjóðarinnar .
Það eru nú aldeilis tíðindi að Río Tinto bregði sér í líki jólasveinsins og ætli sér að bjarga í einu vettvangi því klúðri sem nokkrir fjármálamenn hafa komið þjóðinni í. Eins og kunnug er þá eru hvergi þekkt dæmi um slíkt hjá Rio Tinto fyrirtækinu sem er því miður þekkt af öðru sbr umsvif fyrirtækisins í Indónesíu og víðar sem varð til þess að Norski Olíufjárfestingarsjóðurinn vill ekki bendla sig við fyrirtækið.
Veit ekki hvort það var meiningin með íbúalýðræði í Hafnarfirði að afar umdeilt alþjóðlegt stórfyrirtæki ráðist í hundruð milljóna „kosningabaráttu“ ár eftir ár? Haldi úti persónunjósnum um fólk sbr úrskurð Persónuverndar , haldi úti her launaðra starfsmanna, ráði til sín færustu ímyndar sérfræðinga, birti glansauglýsingar í dýrustu miðlum landsins, svona mætti telja og ekki má gleyma disknum hans Bo sem við Hafnfirðingar fengum sendan heim í álpakkningum. Er þetta íbúalýðræði ? Nei því fer fjarri þetta er grímulaus hagsmunabarátta stórfyrirtækis .
Þrátt fyrir erfiða tíma þá er margt í pípunum í Hafnarfirði. Allt stefnir í að frá Hafnarfirði hefjist umsvifamikill vatnsútflutningur . Umsókn um netþjónabú er til umræðu og svona mætti lengi telja. Rio Tinto álbræðsla sprettur ekki upp morgun og hefur enga þýðingu í þeirri krísu sem nú geisar. Álver og mengandi stóriðja nánast í miðbæ Hafnarfjarðar eru ekki lausnir morgundagsins – Samfélag morgundagsins byggir á umhverfisverndarsjónarmiðum og umhverfisvænni atvinnustarfsemi.
Árni Guðmundsson
Skrifað undir Óflokkað |
November 1st, 2008 at 01:40:25
jæja nú er Hafnafjörður bara brandari, hvar eru öll störfin sem sól í straumi lofaði að yrðu til staðar um ókomin ár þótt að stækkun yrði ekki í straumsvík? ef álverið mengar svona gífurlega mikið hvernig stendur þá á því að mengunin fer aldrei yfir heilsuverndarmörk? en það gerir mengunin iðulega í rvk þegar logn er, og ég get ekki betur séð en að nú er fjármálakerfið hrunið og öll lán og allir vextir búnir að hækka (en samkvæmt grein hérna inná skrifuð í mars 2007 væri það hryllingssagan sem myndi gerast ef álverið fengi stækkun) og núna er RioTintoAlcan að ihuga stækkun aftur og ef úr henni yrði myndi það skapa gríðarlega mörg störf og koma með jafn mikið fjármagn inn í landið og við erum að fá lánað frá alþjóðagjaldeyrissjóðnum! svo ég segi bara já RíoTinto er jólasveinninn!!
November 1st, 2008 at 10:37:12
Blessuð Svandís, það er engum til góðs að halda sig ekki við staðreyndir þar sem það er hægt í þessari umræðu. Hér á þessir síðu er að finna allar upplýsingar sem bæði Sól í Straumi sendi frá sér í aðdraganda kosninganna sem og greinar sem einstaklingar sendu til birtingar á síðunni. Endilega notið þessar upplýsingar sem hér eru til málefnalegrar umræðu. Efnahagsástandið hefur breyst já um það eru allir sammála en réttlætir það stækkun álversins í Hafnarfirði? Um það erum við líklega ekki sammála. Því miður hefur Rio Tinto Alcan valið að fjarlægja allar sínar upplýsingar um stækkunarmálið af internetinu.