Sól í Straumi

Þverpólitískur hópur áhugafólks um stækkunarmálið í Straumsvík


Sjáum saman til sólar

Jón William Sewell 

NýlegarFærslur

Flokkar

EldraEfni

Tenglar

MetaGögn

Frá Sól í Straumi vegna fyrirhugaðra álverskosninga í Hafnarfirði.

25. January 2010

Sól í Straumi hvetur bæjarstjórn Hafnarfjarðar til að hafa fyrirhugaðar kosningar um svonefnda stækkun álversins í Straumsvík samhliða bæjarstjórnarkosningum í vor. Fram hefur komið í fjölmiðlum undanfarna daga að bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Lúðvík Geirsson, sjái fyrir sér að endurteknar kosningar um málið fari fram 6. mars næstkomandi, samhliða kosningu um eitt stærsta mál sem íslenskt samfélag hefur þurft takast á við, Icesave.

- Bygging á nýju 55% stærra álveri í Straumsvík og samþykkt Icesave laganna eru óskyld málefni og þykir Sól í Straumi ljóst að öll umræða um nýtt álver við hlið þess gamla muni vera kæfð í umræðu og umfjöllun fjölmiðla um Icesave kosninguna.

- Verði kosningar um byggingu þessa álvers haldnar 6. mars. næstkomandi mun bæjarbúum gefast mjög skammur tími til að kynna sér kosti og galla nýs 280.000 tonna álvers. Til að tryggja opna og lýðræðislega umræðu, auk þess að gefa íbúum bæjarins svigrúm til að mynda sér skoðanir, er eðlilegra að kosning um þetta stóra mál verði haldin í vor samhliða bæjarstjórnarkosningum.

- Kosning um nýtt álver í Straumsvík við hlið þess gamla er náskyld kosningu um stjórn bæjarins næsta kjörtímabil enda snýst kosningin um framtíð og framtíðar-uppbyggingu Hafnarfjarðar.

- Íbúar Hafnarfjarðar hafa sælla minninga kosið einu sinni um svokallaða stækkun álversins í Straumsvík á þessu kjörtímabili. Sól í Straumi telur óeðlilegt að kosningarnar fari fram um tveimur mánuðum áður en bæjarstjórn endurnýjar umboð sitt til að stjórna bænum eða ný forysta verður mynduð. Æskilegra er að kjósendur fái að heyra afstöðu framboða og frambjóðenda til bæjarstjórnar til þessa mikilvæga máls fyrir Hafnarfjörð og íbúa bæjarins.

Um leið og deiliskipulagsferlið verður sett af stað verður ekki aftur snúið fyrir Hafnfirðinga. Réttur Rio Tinto til að byggja nýtt risaálver í Straumsvík verður innsiglaður og óafturkræfur um ókomna framtíð. Þess vegna þurfa ALLAR forsendur þessa máls að liggja á borðinu áður en gengið verður aftur að kjörborðinu. Bæjarstjóri lagði sjálfur á það áherslu í aðdraganda síðustu kosninga um þetta mál að allar forsendur yrðu að liggja fyrir áður en bæjarbúar gætu tekið afstöðu. Í dag er mörgum lykilspurningum ósvarað svo sem:

- Hvaðan á orkan fyrir nýtt álver í Straumsvík að koma? Liggi það ekki fyrir er málið ekki tilbúið til atkvæðagreiðslu.

- Óskar lóðareigandinn Rio Tinto eftir að byggja nýtt álver í Straumsvík? Í venjulegu deiliskiplagsferli þarf umsóknin að koma frá lóðareiganda sjálfum en ekki frá bæjarstjóra eða öðrum bæjarbúum.

- Hvenær ætlar Rio Tinto að byggja nýtt álver verði það samþykkt? Gætu framkvæmdir dregist um 10-15 ár? Liggi framkvæmdatíminn ekki fyrir er málið ekki tilbúið í atkvæðagreiðslu.

- Eftir hvaða línumannvirkjum og um hvaða svæði á að flytja orku til nýs álvers í Straumsvík? Liggi það ekki fyrir er málið ekki tilbúið til atkvæðagreiðslu.
Að lokum vill Sól í Straumi lýsa yfir óánægju með þau vinnubrögð bæjarstjóra að ræða við Rio Tinto Alcan, langstærsta einstaka hagsmunaaðila málsins, áður en málið er tekið fyrir innan bæjarstjórnar eða fyrirhuguð kosning rædd við fulltrúa Sólar í Straumi, sem ekki hefur enn verið gert. Með þessum vinnubrögðum hefur Rio Tinto Alcan verið gefið forskot á aðra hagsmunaaðila fyrir undirbúning fyrirhugaðra kosninga.

Hafnfirðingar eiga rétt á að vandað sé til meðferðar á þessu stóra máli. Sú aðferð að keyra þetta mál fyrirvaralaust í kosningar nú er óásættanleg og óvönduð málsmeðferð.

Sól í Straumi

samtök um íbúalýðræði og skipulagsmál í Hafnarfirði
www.solistraumi.org

Skrifað undir Óflokkað |

Skrifaðu Athugasemd

Vinsamlegast athugið:Ef athugasemdin þín birtist ekki strax er það vegna þess að eigandi síðunnar er ekki búinn að samþykkja hana.

copyright © 2oo6 by Sól í Straumi | Powered by Wordpress

Ported by ThemePorter - template by Design4 | Sponsored by 47channel