Faxaflóasvæðið verður helsta mengunarsvæði á Norðurlöndunum
30. October 2006Ef verður af stækkunaráformum í Hvalfirði og í Hafnarfirði mun mengunin verða umtalsverð á svæðinu þrátt fyrir góðar mengunarvarnir. Í staðviðri á brennisteinsloftmengun á svæðinu frá Grundartanga til Straumsvíkur eftir að tvöfaldast verði af stækkun þessara álvera. Ætla má að hættuástand skapist á þessu svæði (SO,2 + vatn=Brennisteinssýra).
Fjölhringa kolvatnsefni (PAH-efni) eru mörg hver krabbameinsvaldandi og þar með skaðleg mönnum og dýrum. Gert er ráð fyrir að 680kg af krabbameinsvaldandi PAH-efnum berist árlega frá verksmiðjunni í Hvalfirði eftir stækkun. Hvalfjörður er nú þegar orðinn ókræsilegur á að líta.
Gangi eftir þær byggingar á álbræðslum sem nú eru í umræðunni svo og þær stækkanir á þeim álverum sem fyrir eru þá stefnir í 20.000 tonna heildarlosun á SO,2 á Íslandi. Faxaflóasvæðið á þá eftir að verða helsta mengunarsvæðið á Norðurlöndum. (fyrrverandi starfsmaður hjá Alcan í Straumsvík, oktober 2006)
Skrifað undir Rök Hafnfirðinga gegn stækkun |
May 1st, 2007 at 11:46:26
Ég stunda nú mikla útivist í hvalfirði ég hef ekki orðið var við það hvað hanner orðin ókræsilegur á að líta, held að höfundur ætti aðeins að athuga hvað hann er að skrifa svo hann eyðileggji ekki annars góðan málstað