Fundur hjá Sól í Straumi 21. nóvember 2006
19. nóvember 2006Á nýju ári þurfa Hafnfirðingar að gera upp hug sinn um það hvort þeir vilji að leyfð verði stækkun álbræðslunnar í Straumsvík eins og Alcan, eigandi fyrirtækisins, vinnur nú að.
Búið er að selja Alcan lóð undir stækkaða starfsemi og kynna deiliskipulag sem miðað er við stækkun. Önnur yfirvöld eru búin að gefa grænt ljós m.a. á umhverfismat og starfsleyfi. Alcan er nú að semja við birgja um aðföng fyrir stækkaða verksmiðju. Geta Hafnfirðingar í raun og veru komið í veg fyrir að álbræðslan stækki?
Sól í Straumi, hópur áhugafólks um stækkunarmálið mun á fundi sínum 21. nóvember fara yfir skipulagsmálið “stækkun í Straumsvík”.
Aðalfyrirlesari fundarins verður Þór Tómasson, sérfræðingur Umhverfisstofnunar sem gaf út starfsleyfi fyrir stækkaða verksmiðju sem gildir til ársins 2020.
Þarna fá bæjarbúar einstakt tækifæri til þess að spyrja óháðan sérfræðing útí umhverfisþátt málsins.
Kynntu þér málið og taktu afstöðu !
Fundurinn verður þriðjudaginn 21. nóvember kl. 20:00 í Gúttó.
Skrifað undir Tilkynningar |