HVER Á ÍSLAND?
22. February 2007Eftir Jón Baldvin Hannibalsson
Þann 31. mars n.k. mun athygli allra landsmanna beinast að ykkur Hafnfirðingum. Þann dag svarið þið því, hvort ykkur hugnast tillögur bæjarstjórnar um deiliskipulag vegna stækkunar álversins í Straumsvík. Það er mál, sem varðar framtíð ykkar bæjarfélags, kannski næstu hálfa öldina eða svo. Það er ykkar ákvörðun og ekki annarra.
En um leið og þið kjósið sjálfum ykkur örlög, mun ákvörðun ykkar ráða miklu um framhald þeirrar stóriðjustefnu, sem ríkisstjórn og þingmeirihluti hefur kappsamlega fylgt fram á undanförnum árum. Það varðar þjóðina alla. Ég ætla mér ekki þá dul að blanda mér í ykkar sérmál,. Reyndar get ég með góðri samvisku sagt, að ég hef tröllatrú á pólitískri dómgreind Hafnfirðinga. Hér er hreinn meirihluti jafnaðarmanna við völd. Hafnfirðingar áréttuðu það í seinustu sveitarstjórnarkosningum, að Hafnarfjörður er höfuðvígi jafnaðarstefnunnar á Íslandi. Lesa afganginn af þessari færslu »
Skrifað undir Almennt um stækkun |
20 Athugasemdir »