Mengunaraukningin verður mjög mikil
30. March 2007Það er ekki undarlegt að Alcan í Straumsvík reyni að losna við að leggja staðreyndir um aukningu á mengun við stækkun á borðið fyrir Hafnfirðinga. Sú mynd sem reynt er að draga upp af mengunarmálunum er kolröng og alls ekki ætluð til þess að upplýsa Hafnfirðinga. Það er auðvitað einfaldast og heiðarlegast að sýna Hafnfirðingum mengun fyrir stækkun og mengun eftir stækkun á súluriti eða í tölum sem allir skilja. Stefán Georgsson verkfræðingur og Finnbogi Óskarsson efnafræðingur hafa sitt í hvoru lagi sett fram upplýsingar um þetta mál á skýrann og skilmerkilegan hátt sem eru hér samanteknar í einföldu súluriti.
Á þessu línuriti sést mengunaraukningin miðað við grænt bókhald Alcan árið 2005 (grænt) , samkvæmt minnismiða starfshóps um deiliskipulag Hafnarfjarðarbæjar og Alcan (blátt) og samkvæmt starfsleyfi sem gildir til ársins 2020 og stendur ekki til að endurskoða fyrir kosningarnar 31. mars. Á bak við þetta súlurit standa eftirfarandi tölulegar upplýsingar.
Skrifað undir Rök Hafnfirðinga gegn stækkun |
26 Athugasemdir »
