Hafnarfjörður og framtíðin
17. February 2007Á dögunum lauk starfshópur Hafnarfjarðarbæjar og Alcan við tillögur að deiliskipulagi sem lagðar verða til grundvallar í kosningum um stækkun álversins í Straumsvík 31. mars n.k. Á blaðamannafundi sem bæjarstjóri hélt í kjölfarið og í fjölmiðlum þann dag sem vitnað var í, sendi bæjarstjóri Hafnarfjarðar út villandi skilaboð sem ekki hafa enn verið leiðrétt. Fullyrðingin um að nær engin mengunaraukning verði við stækkun álbræðslunnar í Straumsvík er einfaldlega ekki rétt og það er ábyrgðarlaust að halda slíku fram. Ef við Hafnfirðingar veljum stærstu álbræðslu í Evrópu í garðinn okkar næstu 50-60 árin þá mun mengunin aukast töluvert miðað við þá mengun sem við búum við í dag. Rétt er að öll mengunargildi nema brennisteinsmengun mun tvö- til þrefaldast við stækkun. Línumannvirkin sem flokkast líka sem mengun (sjónmengun) verða þau umfangsmestu sem við höfum séð á Íslandi, enda mun álbræðslan ein og sér þurfa meira rafmagn en Reykjavík öll með öllum sínum íbúðum, fyrirtækjum og stofnunum.
Skrifað undir Rök Hafnfirðinga gegn stækkun |
22 Athugasemdir »