Ég mun segja JÁ og aftur já
30. desember 2006Ég er einn þeirra sem hafa gert upp hug sinn varðandi leyfi til handa álverinu til stækkunar. Ég mun segja JÁ og aftur já, ef ég get!
Mér er hreinlega orðið misboðið vegna afstöðu þeirra sem eru orðnir svo samdauna velmeguninni, að þeir halda að það þurfi ekki lengur hráefnaframleiðslu til að halda uppi lifi “standard” á Fróni. Það eru t.o.m . einstaka Íslendingar sem hafa sagt það beinum orðum, að það þurfi ekki mikið lengur á sjómennsku og tilheyrandi verkamannavinnu að halda; af því að viðskiptagróði muni halda “standardinum” uppi!
Ég get vel skilið afstöðu þeirra Vinstri Grænu sem eru á meðal ykkar mótmælendanna. Þeir eru alveg eins og kommarnir sem trúðu á Stalín og ismann sinn framyfir rauða dauðann hér í denn og munu sjálfsagt aldrei skipta um skoðun. Svona afstöðu ber þó að virða; hversu fáránlega vitlaus sem hún er, en berjast mót henni með rökum.
Ég hef meiri áhyggjur gagnvart þeim nýríku nútímans sem hafa sannarlega notið góðs af hráefnaframleiðslu fortíðarinnar til að mynda auð og völd og ætla að nýta þetta allt saman, kannski bara vegna þess að útsýnið út um stofugluggann þeirra muni skerðast!
Kveðja,
HH
Skrifað undir Rök Hafnfirðinga með stækkun |
7 Athugasemdir »