Sól í Straumi

Þverpólitískur hópur áhugafólks um stækkunarmálið í Straumsvík


Sjáum saman til sólar

Óðinn Gústafsson 

NýlegarFærslur

Flokkar

EldraEfni

Tenglar

MetaGögn

Sól í Straumi mótmælir lagningu línumannvirkja um útivistarsvæði Hafnfirðinga

25. mars 2008

Sól í Straumi skorar á bæjarstjórn Hafnarfjarðar að hafna tilleitan Landsnets um að loftlínur fyrir álver í Helguvík fari í gegnum bæjarlandið. Þegar tekist var á um stækkun álversins í Straumsvík kom fram gríðarleg andstaða við þau línumannvirki sem til hefði þurft.

Ef álver rís í Helguvík þarf umfangsmikla orkuflutninga í gegnum fjölmörg sveitarfélög sem eiga ríkra hagsmuna að gæta. Auk Hafnarfjarðar þyrftu Vogar, Grindavík, Reykjavík, Kópavogur, Garðabær og Ölfus að breyta skipulagi sínu. Hvað Hafnarfjörð varðar þá yrði um að ræða breytingu sem innifelur hluta af þeim áformum sem Hafnfirðingar hafa nú þegar hafnað með lýðræðislegum hætti. Af virðingu við íbúa og kjósendur er þess krafist að öllum tillögum um loftlínur fyrir hugsanlegt álver í Helguvik verði alfarið hafnað.

Sól í Straumi

Skrifað undir Tilkynningar | Engar athugasemdir »

Heildarkostnaður við baráttuna 3.841.339 kr.

1. júlí 2007

Heildarkostnaður við kosningabaráttu Sólar í Straumi, vegna kosninga um stækkun álversins í Straumsvík, 31. mars sl. var 3.841.339 kr. Tekjur á móti voru 3.829.985 kr. og rekstrartap því upp á 11.354 kr. Stærstu útgjaldaliðirnir voru útgáfa dreifiefnis og birting auglýsinga í fjölmiðlum, alls 3.193.972 kr. Framlag einstaklinga til samtakanna nam um einni milljón króna eða um 25% allra tekna Sólar í Straumi. Til samanburðar styrkti Hafnarfjarðarbær samtökin um 450.000 kr. eða um 12% af heildartekjum. Yfirlit yfir kostnað og tekjur er að finna hér fyrir neðan. Lesa afganginn af þessari færslu »

Skrifað undir Tilkynningar | Engar athugasemdir »

Sólirnar skora á umhverfisráðherra

5. júní 2007

Í dag kl. 14:00 fóru fulltrúar Sólar í Straumi, Sólar á Suðurnesjum og Sólar á Suðurlandi á fund Þórunnar Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra í Alþingishúsinu og afhentu henni sameiginlega áskorun frá samtökunum sem fer hér á eftir.

Við þetta tækifæri færðu gestirnir Umhverfisráðherra þrjú sólblóm, eitt frá hverjum samtökum og óskuðu henni velfarnaðar í nýju starfi.
Lesa afganginn af þessari færslu »

Skrifað undir Tilkynningar | Engar athugasemdir »

Þakkir til allra

5. apríl 2007

Sól í Straumi þakkar öllum þeim sem komu að kosningabaráttu okkar í Hafnarfirði undanfarna mánuði kærlega fyrir stuðninginn. Þau fjölmörgu fyrirtæki og einstaklingar sem lögðu okkur ómetanlegt lið eiga þakkir skildar fyrir sitt framlag. Við viljum líka nota tækifærið og óska Hafnfirðingum til hamingju með niðurstöðuna. Við öll sem og Hafnfirðingar framtíðarinnar munu njóta góðs af þessari niðurstöðu.

Áfram Hafnarfjörður

Skrifað undir Tilkynningar | 1 Athugasemd »

Stækkun í Straumsvík hafnað

2. apríl 2007

Úr Morgunkorni Glitnis 2. apríl 2007

Sú niðurstaða kosninga í Hafnarfirði að hafna stækkun álvers Alcan í Straumsvík hefur í för með sér að meiri líkur en ella eru á tiltölulega mjúkri lendingu hagkerfisins, vextir taki að lækka fyrir árslok og verðbólga verði í námunda við markmið Seðlabanka á komandi misserum. Nýútkomin þjóðhagsspá okkar gerir ekki ráð fyrir frekari álversframkvæmdum og styður því útkoma kosninganna þá spá. Mikilvægt er að hagkerfið fái ráðrúm til að jafna sig eftir mikið þensluskeið og er hætt við að stækkun í Straumsvík, sem hefði að líkum hafist af fullum krafti í kring um næstu áramót, hefði slegið aðlögun hagkerfisins að jafnvægi á frest og aukið hættu á harðari skelli seinna meir.

Skrifað undir Tilkynningar | 10 Athugasemdir »

Stækkun í Straumsvík hafnað

1. apríl 2007

Þá eru Hafnfirðingar búnir að svara þeirri spurningu sem Alcan bar upp við bæjaryfirvöld um stækkun álversins í Straumsvík. Kjörsóknin var gríðaleg og er ljóst að íbúalýðræðinu í Hafnarfirði var vel tekið í þessu máli.

Atkvæði féllu sem hér segir:
6.382 greiddu atkvæði gegn tillögunni
6.294 samþykktu deiliskipulagstillöguna

16.648 voru á kjörskrá og 12.752 greiddu atkvæði, eða 76,6%. Utankjörstaðaatkvæði voru 1.195. Auðir seðlar og ógildir voru 71.

Kjörsóknin í kosningunum nú er meiri en hún var í síðustu bæjarstjórnarkosningum. Í tölfræði frá kjörstjórn kemur fram að yngri kjósendur kusu síðar en þeir eldri og skiluðu sér einnig síðar á kjörstað. Eldri karlar kusu frekar en eldri konur en annars var ekki mikill munur á kosningaþátttöku kynjanna. Íbúar miðbæjar Hafnarfjarðar létu síður sjá sig á kjörstað en þeir sem nær búa álverinu.

Sól í Straumi fagnar þessari niðurstöðu og viljum við nota tækifærði til þess að þakka öllum sem tóku þátt í þessari umræðu undanfarna mánuði, bæði þeim sem studdu okkar málstað sem og þeim sem voru á öndverðum meiði. Þó svo að kosningabaráttan hafi verið löng og á stundum hörð voru þessi skoðanaskipti nauðsynleg hér í bænum. Nú liggur ákvörðun fyrir og er það von okkar að allir Hafnfirðingar verði fljótir að setja deilur um þetta mál til hilðar og horfi bjartsýnum augum til framtíðar.

Sól í Straumi

Skrifað undir Tilkynningar | 9 Athugasemdir »

Kjördagurinn - hvert atkvæði skiptir máli

31. mars 2007

Upplýsingaskrifstofa Sólar í Straumi sem hefur aðsetur í Hótel Viking (Fjörukránni) mun vera opin frá 10 til 22 á morgun Laugardaginn 31. mars 2007. Við hvetjum sem flesta til að kíkja til okkar, það verður boðið upp á kaffi og meðlæti.

Fyrstu tölur eru væntanlegar upp úr kl 19.00 um kvöldið. Gaman væri að sem flest okkar séum saman komin á þessum tíma, erum með stóran flatskjá.

AKSTUR Á KJÖRSTAÐ ALLAN DAGINN Í SÍMA 8997544

Skrifað undir Tilkynningar | Engar athugasemdir »

Síðasti kynningarfundurinn í fundaröð Hafnarfjarðarbæjar i kvöld kl. 19.00

29. mars 2007

Af heimasíðu Hafnarfjarðarbæjar:

Í kvöld er lokafundur í fundaröð Hafnarfjarðarbæjar vegna atkvæðagreiðslunnar á laugardaginn. Á fundinum í kvöld munu fulltrúar ólíkra sjónarmiða, sem varðar fyrirhugaða stækkun álversins, koma þeim á framfæri.

Hafnfirðingar eru hvattir til að mæta á fundinn sem hefst kl. 19.00 í Hafnarborg. Fundurinn fer þannig fram að um stuttar framsögur verður að ræða og svo verða fyrirspurnir úr sal. Hægt er að fylgjast með fundinum á www.hafnarfjordur.is og upphafi hans á Stöð 2, Ísland í dag.
Lesa afganginn af þessari færslu »

Skrifað undir Tilkynningar | 1 Athugasemd »

YFIRLÝSING SAMTAKA UM BETRI BYGGÐ

28. mars 2007

Samtök um betri byggð lýsa yfir eindreginni andstöðu við fyrirhugaða stækkun álvers ALCAN í Straumsvík.

Samtökin benda á að útblástur frá stækkuðu álveri getur haft verulega neikvæð áhrif á heilsufar íbúa í Hafnarfirði og í öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. 

Samtök um betri byggð telja að álver af þeirri stærð, sem fyrirhuguð er svo nærri byggð á höfuðborgarsvæðinu, sé fullkomin tímaskekkja, sé óheppilegt fyrir ímynd svæðisins og valdi umtalsverðri sjónmengun.  Lesa afganginn af þessari færslu »

Skrifað undir Almennt um stækkun, Tilkynningar | 1 Athugasemd »

Yfirlýsing vegna auglýsingar í RUV 27. mars 2007

27. mars 2007

Vegna auglýsingar sem birtist á RUV 27. mars vill Sól í Straumi taka fram að auglýsing þessi var birt fyrir mistök sem urðu innanhúss hjá RUV. Hópnum hafði verið sýnd auglýsingin sem gerð er í anda Hugleiks Dagssonar og var ákveðið að sýna hana ekki vegna þess að innihaldið þótti ómálefnalegt og ekki styðja við þá málefnalegu umræðu sem hópurinn hefur staðið fyrir á undanförnum mánuðum. Sól í Straumi hefur undir höndum skriflega staðfestingu frá RUV um að auglýsingin hafi verið afturkölluð en því miður fór hún í loftið.

Sól í Straumi

Skrifað undir Tilkynningar | Engar athugasemdir »

« Fyrri Færslur

copyright © 2oo6 by Sól í Straumi | Powered by Wordpress

Ported by ThemePorter - template by Design4 | Sponsored by 47channel