Baráttuhelgi framundan
23. March 2007Nú er heldur betur að færast fjör í leikinn. Um helgina stendur mikið til í kosningabaráttunni og við hvetjum alla sem vettlingi geta valdið að koma við í kynningarmiðstöð okkar við Strandgötu og leggja okkur lið. T-bolirnir “sumar stækkanir eru betri en aðrar” eru seldir í öllum stærðum á staðnum og kosta 1.000 kr. stykkið. Á verkefnaskránni eru úthringingar, dreifing á kynningarefni og fleira. Þeir sem vilja taka þátt í útburði i dag og á morgun eru beðnir um að skrá sig til þáttöku ásamst heimilisfangi og gsm númeri á postur@solistraumi.org
Við hvetjum alla til þess að taka þátt í atburðum helgarinnar en á morgun kl. 14:00 verður stórkostleg hugmynd um Eldfjallaþjóðgarð á Reykjanesi kynnt fyrir Hafnfirðingum í Hraunseli. Sjón er sögu ríkari.
Annað kvöld verða svo baráttutónleikar á vegum hljómsveitarinnar Úlpu í íþróttahúsinu við Strandgötu sem hefjast kl. 19:30 en meðal ræðumanna eru Jón Baldvin Hannibalsson, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Árni Matthíasson. Dagskrá kvöldsins mun svo ljúka með atriði úr uppsetningu Draumalandsins eftir Andra Snæ Magnarsson.
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
Sól í Straumi
Skrifað undir Tilkynningar |
3 Athugasemdir »