Stefnuyfirlýsing - Sól í Straumi
20. október 2006Í vetur þurfa Hafnfirðingar að gera upp hug sinn um það hvort þeir vilji að leyfð verði stækkun álverksmiðjunar í Straumsvík eins og Alcan, eigandi fyrirtækisins, vinnur að.
Búið er að selja Alcan lóð undir stækkaða starfsemi og kynna deiliskipulag sem miðað er við stækkun. Önnur yfirvöld eru búin að gefa grænt ljós m.a. á umhverfismat og starfsleyfi. Alcan er nú að semja við birgja um aðföng fyrir stækkaða verksmiðju.
Þegar kosið verður um málið þurfum við öll að vera búin að skoða þetta mál ofan í kjölinn og allir bæjarbúar búnir að mynda sér skoðun. Ef við veljum að leyfa nærri þrefalda stækkun álverksmiðjunar þá hefur sú ákvörðun áhrif um ókomna framtíð í bænum okkar.
Við þáttakendur í hópnum “Sól í Straumi” komum úr ólíkum áttum og höfum ólíkar stjórnmálaskoðanir. Við erum óflokksbundin eða starfandi í Sjálfstæðisflokki, Samfylkingu eða Vinstri grænum. Við erum launþegar, atvinnurekendur, opinberir starfsmenn eða námsmenn.
Það sem tengir okkur saman er sú afstaða okkar að ekki sé ráðlegt að leyfa Alcan að stækka verksmiðju sína í bænum okkar. Við munum svara spurningunni um stækkun neitandi þegar til kosninga kemur.
Þó að við höfum komist að sameiginlegri niðurstöðu byggir hún á ólíkum rökum fyrir hvert og eitt okkar. Við höfum farið yfir rökin með og á móti og komist að niðurstöðu hver og einn á eigin forsendum. Við hvetjum alla Hafnfirðinga til þess að gera slíkt hið sama.
Það er ekki eftir neinu að bíða, setjum stækkunarmálið á dagskrá og förum að ræða saman.
Skoðaðu málið og taktu afstöðu.
Sól í Straumi
Þverpólitískur hópur áhugafólks um stækkunarmálið í Straumsvík Hafnarfirði 23. október 2006.
Valgerður Halldórsdóttir íbúi í vesturbæ
Svala Heiðberg íbúi á Völlum
Pétur Óskarsson íbúi í Áslandi
Margrét Pétursdóttir íbúi í suðurbæ
Guðni Kjartansson íbúi í norðurbæ
Kristín Einarsdóttir íbúi í suðurbæ
Hrönn Håkansson íbúi í Áslandi
Aðalsteinn Eyþórsson íbúi í vesturbæ
Gestur Svavarsson íbúi í norðurbæ
Haukur Agnarsson íbúi í suðurbæ
Kolbrún Benediktsdóttir íbúi í suðurbæ
Skrifað undir Stefnuyfirlýsing - Sól í Straumi |
Engar
athugasemdir »