Hver er að hugsa um hag Hafnarfjarðar?
26. February 2007Sól í Straumi gerir alvarlegar athugasemdir við málflutning fulltrúa hóps fyrirtækja, sem eiga viðskipti við álverið í Straumsvík, í fjölmiðlum í gær undir nafninu “Hagur Hafnarfjarðar”. Þær fullyrðingar og röksemdafærslur sem þar voru tíundaðar eru því miður meira eða minna úr lausu lofti gripnar og eiga alls ekki heima í annars málefnalegri og upplýsandi umræðu um þetta mál í bænum.
Af hverju segir hópurinn “Hagur Hafnarfjarðar” ekki eins og satt er að hópurinn hefur áhuga á því að auka hjá sér veltuna og þar með ábata sinn af rekstri sínum? Það er eðlilegt og ekkert við það að athuga. Sú aðferð að nota hræðslu áróður og reyna að stilla Hafnfirðingum upp við vegg með fullyrðingum um að störf séu í hættu og allt fari á versta veg samþykki Hafnfirðingar ekki stækkun er þessum hópi til minnkunar og skorar Sól í Straumi á hópinn að stunda ábyrgari umræðu um þetta mikilvæga mál.
Skrifað undir Tilkynningar |
15 Athugasemdir »