Klára þarf verkin
16. May 2007Það er undarlegt að ekkert hefur heyrst frá stjórnendum bæjarins um þau verkefni sem nú liggja fyrir í framhaldi af kosningunni um stækkun álversins í Straumsvík þann 31. mars sl. Í ljósi niðurstöðunnar blasa við ýmis verkefni sem þarf að ganga í og klára og vil ég hér benda á nokkur:
1. ganga þarf frá lóðamálinu. Hafnarfjarðarbær þarf að fá aftur til ráðstöfunar lóðina sem Alcan hafði keypt undir stækkun. Bærinn þarf á þessari lóð að halda í framtíðinni undir atvinnustarfsemi og engin ástæða til að draga á langinn að ganga frá því. Það er nokkuð víst að verðmæti lóðarinnar hefur margfaldast frá því að hún var seld en rétt er að leggja öll spilin á borðið og útskýra fyrir bæjarbúum af hverju Alcan fékk að kaupa þessa nýju lóð undir stækkun sem eignarlóð árið 2003. Álverið sjálft stendur á leigulóð í dag og hvorki bæjarbúar né önnur hafnfirsk fyrirtæki fá að kaupa eignarlóðir í bæjarlandinu. Lesa afganginn af þessari færslu »
Skrifað undir Óflokkað |
Engar
athugasemdir »