Alcan á Íslandi og framtíðin
3. August 2007Í aðdraganda kosningana um stækkun álversins í Straumsvík þann 31. mars sl. kom margoft fram hjá stjórnendum og starfsmönnum álversins í Straumsvík að ef fyrirtækið fengi ekki stækkun yrði því lokað. Forstjóri fyrirtækisins kynnti undir þessa orðræðu í Kastljósinu nokkrum dögum fyrir kosningar og gaf í skyn að í raun væri líklega mjög fá ár eftir yrði ekki af stækkun. Góður hagnaður af rekstrinum þýddi alls ekki að í Straumsvík yrði áfram starfsemi. Meðlimir í Sól í Straumi bentu í aðdraganda kosninganna ítrekað á að þessi málflutningur væri ekki trúverður og nú hefur komið í ljós að hér var um ódýran hræðsluáróður að ræða. Svo virðist sem að yfirmenn Alcan hafi visvítandi dreift röngum upplýsingum um framtíðarhorfur fyrirtækisins fengi það ekki stækkun bæði til starfsmannana sinna og Hafnfirðinga allra. Lesa afganginn af þessari færslu »
Skrifað undir Óflokkað |
1 Athugasemd »