Rio Tinto Alcan í Straumsvík
26. January 2008Nú er nokkuð um liðið síðan námufyrirtækið Rio Tinto keypti Alcan Inc. og breytti nafni félagsins í Rio Tinto Alcan. Rio Tinto Alcan er nú eitt af fimm framleiðslusviðum (product groups) Rio Tinto. Á heimasíðu www.alcan.com eru nýjir eigendur búnir að breyta nafni fyrirtækisins úr “Alcan Inc.” í “Rio Tinto Alcan”. Væntanlega verður nafni álversins í Straumsvík breytt á næstu misserum úr “Alcan á Íslandi hf.” í “Rio Tinto Alcan á Íslandi hf”. Ekki er enn búið að uppfæra heimasíðu Alcan á Íslandi eftir eigendaskiptin en væntanlega verða þau kynnt í næstu ÍSAL tíðindum. Eftirfarandi merki er að finna á heimasíðunni www.alcan.com
Skrifað undir Um álvinnslu |
Engar
athugasemdir »